Fréttablaðið - 22.10.2009, Side 18

Fréttablaðið - 22.10.2009, Side 18
18 22. október 2009 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna UMHVERFISMERKI MISÁREIÐANLEG „Bestu kaupin gerði ég líklega á bóka- markaði Félags íslenskra bókaútgefenda árið 2002, þegar ég keypti mér bæði bindin af Ástarhringnum eftir Atla Högna- son (nafn höfundar er dulnefni) saman í pakka á 100 krónur. Bókin segir frá ævintýrum félag- anna Kalla og Geira, sem ferðast um hinn nýopnaða hringveg og lenda í hinum ýmsu ævintýrum á leiðinni. Ástarhringinn hef ég síðan lesið mér til ánægju oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, svo það er óhætt að segja að þarna hafi ég fengið mikið fyrir pening- inn.“ Vonbrigði með meinta gæðasokka sitja enn í Ölvi. „Verstu kaupin voru hins vegar líklega sokkar sem ég keypti fyrir mistök í Austurbæjarapóteki fyrir allmörgum árum. Sokkarnir voru í dýrari kantinum svo ég gerði ráð fyrir að þarna væru óvenju vandaðir karlmannssokk- ar. Þegar heim var komið og ég opnaði pakkann kom hins vegar í ljós að þarna voru á ferðinni hnésokkar úr næloni. Ég hafði greinilega ekki lesið innihaldslýs- inguna nógu vel. Eða skoðað myndina utan á pakkanum, ef út í það er farið. Sokkarnir reyndust svo einstaklega óþægilegir. Bæði var mér kalt í þeim og svo var ég bara búinn að ganga í þeim í nokkra daga þegar það var komið stærðarinnar gat á annan þeirra.“ NEYTANDINN: ÖLVIR GÍSLASON FRAMKVÆMDASTJÓRI EKKI SPURNINGAR EHF. Hnéháir nælonsokkar verstu kaupin Útgjöldin >50 cl dós af Víking bjór Heimild: Hagstofa Íslands og vefur ÁTVR. Guðrún Arndís Tryggva- dóttir segir Íslendinga nota of mikið af hreinsiefnum og ofnotkun þeirra geti verið dýrkeypt fyrir um- hverfið. Hún bendir á að hægt sé að kaupa hreinsi- efni sem eru vistvæn en einnig sé í mörgum tilfell- um hægt að sleppa þeim og nota náttúruleg efni eins og salt og edik. „Vistvænar hreinlætisvörur eru til í miklu úrvali og margar þeirra eru umhverfisvottaðar,“ segir Guðrún Arndís Tryggvadóttir, myndlistar- maður og for- kólfur vefjar- ins natturan.is. „Það er ekki þar með sagt að þær séu ekki skað- legar umhverf- inu, en þær eru framleiddar þannig að skað- leg áhrif þeirra fyrir umhverfið eiga að vera minni,“ segir Guðrún og bendir fólki á að skoða umbúðir hreinlætisvara og leita eftir viður- kenndum merkingum á því hvort vörurnar eru umhverfis vænar. Guðrún bendir og á að í flestum tilfellum dugi að nota helming af ráðlögðum skammti hreinsiefna. „Erlendis er oft mikið kalk í vatn- inu og því þarf meira af hreinsi- efnum en hér á landi.“ Hún segir ofnotkun hreinsiefna vera skað- lega umhverfinu og dýrkeypta. „Efnin hverfa ekki þegar þau eru komin í skolpleiðslurnar heldur enda þau í hafinu. Þau eru áfram virk og geta skaðað lífríkið. Að efni brotni niður í umhverfinu segir ekki allt um hversu fljótt þau gera það og einnig geta niður- brotsefnin verið skaðlegri en upp- runalegu efnin,“ segir á vef Guð- rúnar natturan.is. Fyrir utan að velja umhverfis- vænar vörur eru ýmsar vörur sem til eru á hverju heimili nothæfar sem hreinsiefni. „Edik, salt, kaffi- korgur og sítrónur nýtast öll við hreingerningar,“ segir Guðrún og útskýrir málið nánar. „Smá edik og salt út í vatn er til dæmis mjög góður gluggaþvottalögur, og þá eru gömul dagblöð það besta til að pússa gluggana. Sítrónur eru mjög gott hreinsiefni, sömuleiðis edik. Kaffikorgur virkar frábær- lega til að hreinsa potta og ekki má gleyma að hann er mjög góður áburður. Ef fólk á svo goslaust kók sem það ætlar ekki að drekka er tilvalið að hella því í klósettið, láta það liggja um stund og þrífa svo skálina, hún verður tandurhrein á eftir.“ Guðrún hvetur fólk til að prófa sig áfram, margir trúi því ekki að náttúruleg efni virki jafn vel og kemísk en sú sé raunin í mörg- um tilfellum. „Það verður svo að góðum vana að velja umhverfis- vottaðar vörur, fólk hættir því ekki ef það á annað borð byrjar, rétt eins og fæstir hætta að flokka rusl ef þeir byrja á því.“ Á vefnum natturan.is eru ýmis góð ráð er kemur að umhverfis- vænum hreinsiefnum. Þar er og bent á að jarðarbúar noti gríðarlegt magn af salernispappír, bleium og ýmiss konar einnota vörum. Þær sé allar hægt að kaupa umhverfisvottaðar sem sé miklu betra fyrir umhverfið. sigridur@frettabladid.is Náttúruleg efni nýtast við hreingerningar GUÐRÚN A. TRYGGVADÓTTIR SÍTRÓNUR ERU TIL MARGRA HLUTA NYTSAMLEGAR Sítrónur þekkja flestir í matargerð en færri vita að þær má nota til hreingerninga. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES Norræni svanurinn er eitt af fjórum áreiðanlegustu umhverfismerkjum í heimi segir á síðunni Náttúran. is og er þar vísað til úttektar sem ráðgjaf- arfyrirtækið ERM gerði fyrir breska umhverfisráðuneytið. Úttektin náði til 207 mismunandi merkja. Auk Svansins vermdu Blái engillinn í Þýskalandi, Evrópublómið og nýsjálenska merkið Environmental Choice toppsætin í úttektinni. Á síðunni er og bent á að mismikið liggi á bak við umhverf- ismerkingu á vörum eða þjónustu. Mun áreiðanlegra sé ef slíkt er gert af óháðum úttektaraðila. Bent er á að varast eigi að blanda saman umhverfisvottun fyrirtækja og vottuðum umhverfismerkjum. Umhverfisvottun fyrirtækja (ISO 14001) staðfesti að í fyrirtækinu séu ákveðnir verkferlar sem taka tillit til umhverfismála, hún segi hins vegar ekkert til um umhverfis- áhrif varanna sem fyrirtækið framleiðir eða selur. Heimild: www.natturan.is Oft er hægt að sleppa hreingern- ingarefnum við þrif ef notaðir eru örtrefjaklútar og náttúruleg efni eins og edik eða salt. Yfirleitt er hægt að helminga ráðlagða skammta hreinsiefna því vatn á Íslandi er mun mýkra en t.d. víða í Evrópu. Til að koma í veg fyrir vonda lykt í eldhúsinu er gott að leggja appelsínubörk á heita eldavélar- hellu. Til þess að fá gluggana til að vera sérstaklega fallega er ráðlagt að bæta salti út í sápuvatnið. Eða setja salt og edik út í vatn og pússa með dagblöðum. Fjarlægja má rispur í timbur- gólfum með stálull sem dýft er í vaxbón. Þvoið baðkarið með blöndu af ediki og salti. Kaffikorg má nota til að þrífa potta en einnig sem áburð. Hellið afgöngunum af kóki í klósettið því það hefur hreins- andi áhrif. Sítrónuvatn er notadrjúgt hreinsiefni, bæði inni á baði og eldhúsi. *Heimild: Náttúran.is VISTVÆN HÚSRÁÐ* 21 6 k r 2 2 3 k r 2 2 9 k r 2 57 k r 32 6 k r 2005 2006 2007 2008 2009 Viðskiptavinir TM fá tuttugu prósenta afslátt af barnabílstólum í verslun Baby Sam. Þessar upplýsingar komu ekki fram í greininni Hvað kostar bílstóll fyrir ungbarn, sem birtist á Neytendasíðu í síðustu viku og er hér með bætt úr því. Hægt er að sjá upplýsingar um verð á stólunum með afslætti á vefsíðu félags- ins, www.tm.is. ■ Viðskiptavinir TM fá afslátt í Baby Sam 20 prósenta afsláttur í Baby Sam Listakokkar munu reiða fram ókeypis kjötsúpu fyrir gesti og gangandi á Skólavörðustígnum á laugardag. Þeir Siggi Hall, Úlfar Eysteinsson, Friðgeir Eiríksson og Snorri Birgir Snorrason munu standa yfir pottunum og seðja hungur þeirra sem eru í bæjarferð. Súpan verður framreidd á fimm stöðum á Skólavörðustígnum frá klukkan eitt, þegar fyrsti skammturinn verður réttur inn í Hegningarhúsið við Skólavörðustíg. ■ Fyrsta vetrardegi fagnað Kjötsúpa á Skólavörðustígnum Réttur dagsins, súpa og salatbar verður allt á fimm ára gömlu verði í október hjá heilsustaðnum Maður lifandi í tilefni af fimm ára afmæli fyrirtækisins. Réttur dagsins kostar 1.190 krónur, í stað 1.490, súpan 790 krónur í stað 890 og súpa og salatbar 1.090 krónur en ekki 1.390. ❍Maður lifandi með fimm ára gamalt verð Réttur dagsins á 1.190 krónur Full búð af föndur- vörum fyrir jólin... Snjókarlar Pakkningin inniheldur allt efni í 4 stk. Tvo 5 sm og tvo 8 sm háa snjókarla Verð áður 2.590 kr. Smáratorgi 1, Kópavogi + Sími: 515 5100 + sala@a4.is + www.a4.is Glerárgötu 34, Akureyri + Sími: 515 5160 + akureyri@a4.is + www.a4.is 40% AFSLÁTTUR Könglafjölskylda Settið inniheldur allt efni í 10 stk. Hæð 12 sm. Verð 2.660 kr. Englasveinar Settið inniheldur allt efni í 6 stk. Hæð 9 sm. Verð 2.880 kr. Bjöllusveinar Settið inniheldur allt efni í 2 stk. Hæð 30 sm. Verð 2.990 kr. Ég var um daginn að hengja upp myndir í barnaherbergi sonar míns, sem er eins árs. Myndirnar eru í eins metra hæð svo hann geti skoðað þær. Þar sem ég vil hafa umhverfi hans öruggt keypti ég ramma með plasti í stað glers. Svo hengdi ég myndirnar ekki upp á nagla heldur setti þær á franskan rennilás með lími báðum megin. Það er öruggt, mjög þægilegt og hann getur ekki kippt myndunum niður. Sama gerði ég við speglaflís. Ég setti hana inn í einfaldan ramma og með plasti. Ef spegillinn dettur á gólfið fara brotin ekki neitt. Spegillinn er ekki hættulegur í rammanum. GÓÐ HÚSRÁÐ LÍMIR RAMMANA UPP ❁ Eyrún Magnúsdóttir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.