Fréttablaðið - 22.10.2009, Side 28
22. október 2009
FIMMTU-
2
Sérverslun með
FÁKAFENI 9
(við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18
& laugard. 11-16
Skór & töskur
www.gabor.is
Bæjarlind 6 - Eddufelli 2
Sími 554-7030 Sími 557-1730
www.rita.is
Fígúrur og furðuverur prýða
barnaföt Rannveigar Gísladóttur
sem hún býr til samhliða fata-
hönnunarnámi í Los Angeles.
Rannveig Gísladóttir, sem legg-
ur stund á fatahönnun við The
Fashion Institute of Design and
Merchandising í Los Angeles,
tók upp á því þegar hana vant-
aði sængurgjöf handa frænku
sinni að prenta fígúrur á sam-
fellur. Þær spurðust út og fór hún
að selja þær á netinu til að verða
sér úti um aukapening með skólan-
um. „Þetta eru krúttlegar en svo-
lítið furðulegar fígúrur sem ég er
með í stöðugri þróun. Ég prentaði
þær upphaflega á samfellur en er
nú farin að gera buxur og boli í
hinum ýmsu stærðum líka.“
Rannveig, eða Ranna eins og
hún er kölluð, segist alltaf hafa
verið mikill handavinnufíkill
og hefur prjónað og heklað frá
barnsaldri. Hún fór að hanna og
sauma föt á unglingsárum og
stefnir að því að koma á fót sínu
eigin fyrir tæki þegar fram líða
stundir. Rönnu vegnar vel ytra
og hlaut hún skólastyrk eftir að
hafa unnið hönnunarkeppnina
Fashion Group International í Los
Angeles fyrr á þessu ári.
Fötin er að finna á www.face-
book.com/rannadesign. - ve
JIMMY CHOO , skóhönnuðurinn frægi, er vinsæll meðal tískumeðvitaðra
stjarna á borð við Paris Hilton og Beyoncé. Hann hefur nú hannað nýja
skólínu fyrir H&M sem er væntanleg í verslanir í nóvember víða um heim.
Býr til barnaföt
samhliða námi
Settin henta vel
sem sængurgjafir.
Fígúrurnar eru í
stöðugri þróun.
Ranna
prentar
bæði á
stutterma
og síðerma
samfellur.
„Þetta er í þriðja sinn sem ég tek þátt í sýningunni Hand-
verk og hönnun en í þetta sinn ætla ég að vera með meira af
fylgihlutum en stærri flíkum,“ segir Sonja Bent tískuhönn-
uður, sem nýlega hlaut styrk úr Árórusjóði til að koma nýrri
herralínu sinni á markað í Bandaríkjunum.
Á sýningunni í Ráðhúsinu verður hún meðal annars með
slaufur, bindi, húfur og trefla úr herralínunni ásamt auka-
hlutum fyrir konur. Til dæmis blóm sem eru hluti af verk-
efni sem hún vann fyrir sænskt leikhús nýlega. „Mary,
vinkona mín, er að hanna búninga fyrir starfsfólkið í
Götalejonleikhúsinu í Stokkhólmi. Hún fékk mig til að hanna
aukahluti, bindi fyrir strákana og blóm í hárið fyrir stelp-
urnar,“ segir hún og tekur fram að allt sé þetta unnið úr
ull og silki.
Sonja vinnur mikið með prjónað efni en hefur upp á síð-
kastið notið þess að blanda saman ólíkum efnum. „Í herra-
línu minni blanda ég saman prjóni og venjulegu skyrtuefni,“
segir Sonja. Hún bjó til sitt eigið skyrtusnið og ákvað
að fylgja ekki þeirri tísku sem hefur verið allsráðandi
undanfarið að hafa skyrtur aðsniðnar. „Ég vildi hafa
sniðið aðeins víðara og þannig að hægt væri að klæð-
ast skyrtum hvunndags yfir buxur,“ útskýrir hún.
Sonja vinnur einnig við að koma á markað kven-
línu. Hana segir hún í raun runna upp úr útskrift-
arverkefni sínu úr Listaháskólanum þaðan sem
hún útskrifaðist árið 2008. „Ég hef aldrei komið
þeim flíkum á markað fyrr. Nú er ég búin að
þróa þær og einfalda og verður hægt að kaupa
þær bráðlega í Kirsuberinu,“ segir Sonja.
solveig@frettabladid.is
Hannar nýja
herralínu
Sonja Bent er ein fjölmargra sem taka þátt í sýningunni
Handverk og hönnun sem haldin verður í Ráðhúsinu
30. október til 2. nóvember. Hún nýtur þess að blanda
saman ólíkum efnum í hönnun sinni.
Sonja Bent hannar föt og
fylgihluti bæði á karla og
konur.
Hluti af þeim fylgihlutum sem Elsa mun sýna í Ráðhúsinu.
Sonja blandar saman prjóni
og venjulegu skyrtuefni í
herralínu sinni.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Peysa úr smiðju Sonju sem
vinnur mikið með prjónaefni.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N