Fréttablaðið - 22.10.2009, Síða 30
22. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR
1.
2.
4.
1. Goodyear UG 7
Vetrardekk. Afburðardekk við íslenskar aðstæður. Háþróað dekk
frá Goodyear sem hlotið hefur 1. verðlaun í stórum saman-
burðarkönnunum víða um heim.
2. Sava Eskimo Ice
Neglanleg vetrardekk með djúpu munstri. Frábær dekk
á hagstæðu verði. Framleidd af Goodyear.
3. Winterforce
Neglanleg vetrardekk. Frábær kanadísk dekk á hagstæðu verði.
Tilvalin undir jepplinga og óbreytta jeppa.
4. Goodyear Wrangler MT/R
Neglanleg vetrardekk. Sterk og endingargóð dekk sem henta við
flestar aðstæður. Stærðir 30”–40”
3.
Hjá Heklu áttar fólk sig á
muninum á hjólbörðum, eigin-
leikum þeirra og gæðum.
Á þeim 76 árum sem fyrirtækið
Hekla hefur starfað hefur ótal
margt skemmtilegt gerst á Ís-
landi og Íslendingar eignast
kynstrin öll af fallegum og eða
nytsamlegum hlutum fyrir til-
stuðlan fyrirtækisins.
Ekki átta sig þó allir á því að
meðal vinsælustu hlutanna skipa
hjólbarðarnir stóran sess og góð
dekk eiga mikinn þátt í daglegu
lífi fólks. „Með okkar breiðu
vörumerkjalínu getum við upp-
fyllt þarfir viðskiptavina okkar
og mismunandi kröfur þeirra
um verð og gæði,“ segir Þorgeir
Ragnar Pálsson, vörustjóri hjól-
barðadeildar Heklu.
Hekla er elsti umboðsaðili
Goodyear í Evrópu, en umboðið
fékk fyrirtækið árið 1952. En auk
þess er fyrirtækið með umboð
fyrir Winterforce, Dunlop og
Sava, og eru tvö síðast nefndu
vörumerkin í eigu Goodyear.
Auk þess er Hekla söluaðili fyrir
Mickey Thompson. Fyrirtækið
býður því upp á breiða línu af
dekkjum, allt frá minnstu fólks-
bíladekkjum til stærstu vörubíla-
og vinnuvéladekkja.
En hver er munurinn á þessu
öllu? Á því kann Þorgeir góð skil.
„Sava-dekkin höfum við aðallega
flutt inn í stærðum fyrir fólks-
bíla. Sem vetrardekk eru þau
bæði fáanleg negld og ónegld og
svo auðvitað sem sumardekk.
Winterforce-dekkin hafa aðal-
lega verið í stærðum sem passa
undir jepplinga og óbreytta jeppa;
þau dekk eru bæði fáanleg negld
og ónegld. Þessi dekk hafa verið
gríðarlega vinsæl og eru mjög
hentug fyrir íslenskar aðstæður,“
útskýrir hann.
„Goodyear Wrangler og Mickey
Thompson hafa verið gríðarlega
vinsæl jeppadekk hér á landi í
mörg ár. Þessar tvær tegundir
eru fáanlegar fyrir bæði óbreytta
og breytta jeppa,“ segir Þorgeir.
En einnig býður fyrirtækið upp
á mikið úrval af mótorhjóla- og
fjórhjóladekkjum. „Þar er Dunlop
okkar helsta vörumerki,“ bætir
Þorgeir við.
Þorgeir segir auðvelt að fá
nánari leiðbeiningar hjá fyrir-
tækinu. Hekla rekur eigið hjól-
barðaverkstæði í Klettagörðum
þar sem hægt er að fá umfelgun
fyrir fólksbílinn og upp í stærstu
gerð af flutningabílum. Þá býður
Hekla viðskiptavinum sínum
vaxtalaus þjónustulán bundin
greiðslukortasamningi við kaup
á dekkjum. Hann bendir á að
helstu sölustaðir Heklu séu
Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns
Hátúni 2a, Gúmmívinnustofan
Skipholti 35, Höldur dekkjaverk-
stæði Glerártorgi Akureyri, Kjal-
fell Blönduósi, KS Sauðárkróki og
helstu dekkjaverkstæði um land
allt.
Leyndardómar dekkjanna
Hekla hefur umboð fyrir fjölmörg vörumerki og leggja starfsmenn fyrirtækisins metnað sinn í að geta uppfyllt þarfir viðskipta-
vina sinna og kröfur þeirra um verð og gæði. Gísli Ólafsson, Þorgeir Pálsson og Eggert B. Eggertsson eru meðal þeirra sem sjá um
að hver viðskiptavinur fái dekk við hæfi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
● EÐLI HJÓLBARÐA Hjólbarðinn er eina snerting ökutækisins við veginn og
hann þarf að vera gæddur mörgum kostum. Honum er ætlað að bera þunga
bílsins með öllu sem honum fylgir og þola gífurlegar breytingar á þunga-
þoli við hverja inngjöf og hemlun. Til að ökutækið láti vel að stjórn á hvaða
vegi og í hvaða veðri sem er þarf hjólbarðinn að hafa rásfestu og halda
stefnunni auk þess að koma í veg fyrir að hindranir og holur trufli akstur
og þægindi bílstjóra og farþega. Svo þarf hann að rúlla og endast svo vel
sem kostur er.
Árið 2003 veitti Alþingi Ditlev
Thomsen, konsúl og kaupmanni,
2.000 króna styrk til að gera til-
raunir með hvort hægt væri
að nota bifreiðar á íslenskum
vegum. Thomsen keypti Cudell-
bifreið til að prófa á íslenskum
vegum, en val hans á bílnum var
nokkuð umdeilt. Gripinn flutti
hann til Íslands árið 1904 en hann
keypti bílinn í Kaupmannahöfn.
Cudellinn var þó framleiddur í
Aachen í Þýskalandi, að mestu
leyti eftir teikningum DeDion í
Frakklandi.
Bíllinn hefur jafnan verið
kallaður Thomsen-bíllinn og
var mikið skrifað og skrafað um
ófarir hans, en bíllinn var þriggja
ára er hann kom til landsins. - jma
Fyrsti bíllinn umdeildur
Lengst til vinstri er annar ekill fyrstu bifreiðarinnar, Tómas Jónsson. Í miðið er Þorkell
Clementz sem fyrst ók honum og til hægri er Ditlev Thomsen konsúll.