Fréttablaðið - 22.10.2009, Qupperneq 42
30 22. október 2009 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
JEFF GOLDBLUM FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1952.
„Fólk leggur harðar að sér
í erfiðum aðstæðum.“
Jeff Goldblum er bandarísk-
ur leikari. Hann hefur einnig
verið rödd flestra Apple-
auglýsinga.
MERKISATBURÐIR
1253 Flugumýrarbrenna. 25
manns láta lífið þegar
kveikt er í bænum á
Flugumýri í Skagafirði.
1954 Vestur-Þýskaland gengur í
Nató.
1961 Bjarni Benediktsson er
kosinn formaður Sjálf-
stæðisflokksins.
1974 Sprengjuárás á skemmti-
stað í London með þeim
afleiðingum að þrír starfs-
menn særast.
1992 Stærsta síldarfarmi sem
landað hefur verið úr einu
skipi er landað á Eskifirði.
2002 Rútubílstjóri er skotinn til
bana í Washington. Morð-
ið er hluti af raðmorðun-
um sem eiga sér stað í
Washington þegar tveir
karlmenn skjóta ókunn-
uga úr launsátri.
Á þessum
degi árið
1985 féllu
fimm aur-
skriður úr
Bíldudalsfjalli
niður í kaup-
túnið, flest-
ar með miklu
vatni. Skrið-
urnar fóru yfir
nokkrar lóðir
og skemmd-
ust þær tölu-
vert.
Í Morgunblaðinu hinn 23. október árið 1985
segir sjónarvottur að skriðurnar hafi „byrjað eins
og lítill snjóbolti uppi í fjallinu sem stækkaði á
leið sinni niður fjallið“.
Skriðurn-
ar féllu allar á
aðeins einum
og hálfum
klukkutíma
og fóru fram
hjá varnar-
garðinum,
út fyrir hann
og niður á
milli tveggja
húsa. Fólk var
ekki í hættu
og skemmd-
ir urðu ekki á
húsunum. Mjög hvasst var á köflum og björgunar-
sveitarmenn úr björgunarsveitinni Kópi aðstoð-
uðu fólk og skólabörn við að komast heim. Mikil
úrkoma hafði verið dagana á undan.
ÞETTA GERÐIST: 22. OKTÓBER 1985
Fimm aurskriður féllu á Bíldudal
„Tilfinningin er svolítið tvíbent. Maður er auðvitað óskap-
lega glaður en þegar maður gefur út heildarsafn er það
óneitanlega eins og maður sé að setja einhvern punkt á ævi-
starfið, sem ég er ekki að gera,“ segir Ingibjörg Haralds-
dóttir rithöfundur. Í gær, á 67 ára afmælisdegi hennar, var
heildarsafn ljóða hennar gefið út af Forlaginu.
„Þessar bækur hafa ekki fengist lengi í búðum og það er
alltaf svolítið leiðinlegt fyrir rithöfunda að ljóðin þeirra
séu ekki lesendum aðgengileg. En nú er bætt úr því og ég
er mjög ánægð með að ljóðin séu ekki lengur uppseld og
gleymd, það skiptir auðvitað höfuðmáli. Bókin er líka mjög
falleg og kemur út í stórri kilju en hún er 336 blaðsíður.“
Dagný Kristjánsdóttir skrifar formálann með fræðilegri
úttekt á ljóðunum.
„Svo er hitt, að ég er náttúrlega orðin löggiltur eldri borg-
ari sem er bæði gott að sumu leyti og slæmt að öðru. Þetta
er nú kannski ekki mest spennandi aldurinn en ég er svo
sem ekkert neikvæð.“
Elstu ljóðin í safninu eru 35 ára gömul og komu út í fyrstu
bók Ingibjargar, Þangað vil ég fljúga. Aðrar bækur í safn-
inu eru Orðspor daganna, Nú eru aðrir tímar, Safnritið Ljóð,
Höfuð konunnar og Hvar sem ég verð.
„Ljóðið er alltaf jafn heillandi form enda er svo margt
hægt að segja í ljóði sem maður getur ekki sagt öðruvísi.
Ég hugsa að það fari nær skáldinu og ljóðelskum lesend-
um en prósi.“
Þessa dagana er Ingibjörg að þýða enn einn rússneska
doðrantinn. „Bókin heitir Oblomov og er eftir 19. aldar rúss-
neskan klassíker sem hét Gontsjarov. Þetta er skemmti-
leg bók en það tekur mjög langan tíma að þýða svona stór
rússnesk verk. Þau eru þykk og strembin. En þetta hefst allt
saman.“ juliam@frettabladid.is
INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR:
LJÓÐASAFN GEFIÐ ÚT Á AFMÆLISDEGI
Öll ljóð komin
í eina bók
UNDARLEG TILFINNING Ingibjörg Haraldsdóttir segir að það sé sérstök
tilfinning að gefa út heildarljóðasafn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför elsku
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Sigurrósar Eddu
Ófeigsdóttur.
Þórdís Hlöðversdóttir
Hildur Hlöðversdóttir Gunnlaugur Guðmundsson
Sigríður Hlöðversdóttir Guðmundur Ragnar Ólafsson
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær sambýliskona mín og móðir,
Hugrún B. Þórarinsdóttir
Skarðsbraut 4, Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju mánudaginn
26. október kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahús
Akraness.
Birgir S. Elínbergsson
Elísabet Jónatansdóttir.
Ástkær eiginmaður, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi,
Þorsteinn Kristinsson
Hörgshlíð 20, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 20. október. Jarðarförin verður
auglýst síðar.
Frida Petersen
Kristinn Már Þorsteinsson
María Þorsteinsdóttir Karl Sigurðsson
Ingibjörg Þorsteinsdóttir Hans Jakob Beck
Ester Þorsteinsdóttir Þröstur Jensson
Eyðstein Wardum Súsanna S. Wardum
Alf Wardum Unnur Sigurjónsdóttir
Hallur Wardum Marjun F. Wardum
Klara Kristinsdóttir Vignir Daníel Lúðvíksson
afabörn og langafabörn.
Elsku mamma okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigurbjörg Sigvaldadóttir
Sjávargrund 4a, Garðabæ,
verður jarðsungin frá Garðakirkju á morgun, föstudag-
inn 23. október, kl. 11.00.
Hanna Stefánsdóttir Jón Guðlaugsson
Sigrún Stefánsdóttir Sigþór Sigurjónsson
Bylgja Eybjörg Stefánsdóttir
Stefán Sigurður Stefánsson Guðfinna Baldvinsdóttir
Guðný Stefánsdóttir Agnar Agnarsson
ömmubörn og langömmubörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Bogason
frá Flatey á Breiðafirði,
Sæbólsbraut 32, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum þriðjudaginn
20. október sl. Útförin verður auglýst síðar.
Herdís Jónsdóttir Halldór Snorri Gunnarsson
Sigurborg Inga Jónsdóttir Einar Hafsteinsson
Bogi Jónsson Narumon Sawangjaitham
Sigurbjörg Jónsdóttir Jón Líndal
Berglind Jónsdóttir Ari Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, systur og ömmu,
Gyðu Grímsdóttur.
Óttar Egilsson Anat Egilsson
Davíð Sigmarsson Sólrún Sigurðardóttir
Guðrún Rut Sigmarsdóttir Lárus Guðmundsson
Kristín María Grímsdóttir
Sigríður Grímsdóttir
og barnabörn.
Eiginkona mín,
Helga Ingólfsdóttir
semballeikari,
lést á Landspítalanum að morgni miðvikudags
21. október. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þorkell Helgason.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Björn Ólafsson
Þverbrekku 4, Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut hinn 19. októb-
er. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn
29. október kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Krabbameinsfélagið.
Kolbrún D. Magnúsdóttir
Erla María Kristinsdóttir Ómar Óskarsson
Hrafnhildur Björnsdóttir Jón Magnús Katarínusson
Magnús Ólafur Björnsson Aníta Ýr Eyþórsdóttir
Oddný Björnsdóttir Róbert James Abbey
Eygló Björnsdóttir Friðrik Þór Hjartarson
Berglind Björnsdóttir Ólafur Tryggvason
barnabörn og barnabarnabörn.
AFMÆLI
DORIS
LESSING
rithöfundur
er níræð.
CATHERINE
DENEUVE
leikkona er
66 ára.
JAN DE BONT
leikstjóri er
66 ára.
VALERIA
GOLINO
leikkona er
43 ára.