Fréttablaðið - 22.10.2009, Page 58
46 22. október 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Laun knattspyrnumanna
í Noregi hafa hækkað gríðarlega
undanfarin tvö ár, eða um 55 pró-
sent. Launahæsti leikmaðurinn
í norska boltanum er Erik Andre
Huseklepp hjá Brann en launin
hans hafa hækkað um 2.503 pró-
sent á aðeins tveimur árum, sem
er lyginni líkast.
Veigar Páll Gunnarsson þén-
aði mest íslensku leikmannanna,
hann var með tæplega 4,6 milljónir
íslenskra króna á mánuði fyrir
skatt en tekjuskattar eru um fimm-
tíu prósent í Noregi.
Gríðarlega athygli vekur að
Gylfi Einarsson er þriðji launa-
hæsti Íslendingurinn í norska
boltanum með fjórar milljónir í
mánaðarlaun. Gylfi var týndur í
Englandi þar sem hann spilaði lít-
inn fótbolta í langan tíma vegna
meiðsla. Þrátt fyrir það hefur
honum tekist að landa frábærum
samningi hjá Brann.
Brann er það félag sem virðist
greiða hæstu launin. Laun Ólafs
hafa til að mynda hækkað um 187
prósent á tveimur árum og laun
Kristjáns hafa hækkað um 135
prósent á sama tímabili.
„Þetta er meiri hækkun en liðin
geta staðið undir. Utanaðkomandi
peningar frá fjársterkum einstakl-
ingum eru ástæðan fyrir þessari
hækkun. Þetta er hættuleg þróun
því einstaklingarnir geta hlaupið
frá samningunum og þá standa
félögin eftir með ábyrgðina,“
segir Magnús Agnar Magnússon
umboðsmaður. - hbg
Veigar Páll Gunnarsson var launahæstur Íslendinganna í Noregi í fyrra:
Launasprengja í norska boltanum
GULLKÁLFUR Laun Veigars Páls Gunnars-
sonar hækkuðu um 245 prósent á
aðeins tveimur árum. NORDIC PHOTOS/AFP
LAUNIN Í NOREGI
Mánaðarlaun íslenskra leikmanna
í Noregi fyrir skatta. Launin eru í
íslenskum krónum.
Veigar Páll Gunnarsson 4,6 m. ísl. kr
Ólafur Örn Bjarnason 4,4 m.
Gylfi Einarsson 4 m.
Kristján Örn Sigurðsson 3 m.
Indriði Sigurðsson 2,1 m.
Garðar Jóhannsson 1,5 m.
Ármann Smári Björnsson 1,4 m.
Pálmi Rafn Pálmason 1,3 m.
Birkir Már Sævarsson 1,2 m.
Birkir Bjarnason 800 þ.
Jóhannes Harðarson 740 þ.
Aðalfundur
Knattspyrnudeildar Fylkis
2009
Aðalfundur Knattspyrnudeildar Fylkis
verður haldinn í Fylkishöll fi mmtudaginn
5. nóvember 2009 kl. 20.30.
Dagskrá;
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis.
> Andri orðaður við Grindavík
Andri Ólafsson var í gær sagður vera með freist-
andi samningstilboð í höndunum frá Grindavík
en samningur hans við ÍBV er að renna út.
Þetta kom fram á vef Eyjafrétta í gær.
Andri var reyndar í síðustu viku sagður
hafa komist að munnlegu samkomulagi
við ÍBV um að vera áfram hjá félaginu
en í samtali við Eyjafréttir í gær sagði
hann að viðræður stæðu enn yfir.
Hann vildi þó ekkert tjá sig um áhuga
annarra liða. „Eitt get ég sagt. Ef ég færi
frá ÍBV, þá yrði það erfiðasta ákvörðunin
sem ég gæti tekið,“ er haft eftir Andra.
Varnarmaðurinn og landsliðskonan Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
þurfti sem kunnugt er að draga sig út úr landsliðshópnum fyrir
leikina gegn Frakklandi og Norður-Írlandi í undankeppni HM
2011 í fótbolta. Guðrún Sóley fékk heilahristing í fyrsta leik
Íslands á lokakeppni EM í sumar og lenti svo aftur í því
sama í leik með liði sínu Djurgården í Svíþjóð fyrir
þremur vikum og hefur ekki náð sér almenni-
lega síðan.
„Ég kom heim til Íslands og fór í mynda-
töku og hitti taugalækni en í þessum
tilfellum er erfitt fyrir lækninn að gefa
einhvern tíma sem tekur að jafna
sig því það er svo misjafnt hvernig
fólk bregst við meiðslum sem
þessum. Ég er með það sem er kallað „eftir heilahrist-
ings einkenni“ og má í raun ekkert gera aftur fyrr en
ég er laus við alla fylgifiska heilahristings, það er að
segja hausverk og slappleika og svoleiðis. Þetta
getur víst varað upp í nokkra mánuði í versta falli
þannig að ég verð að vera ótrúlega dugleg að hvíla mig og vona
að ég losni við þetta sem fyrst. Ég er líka ef til vill að lenda í
þessu núna útaf því að ég hvíldi ekki þegar ég lenti í þessu fyrst.
Ég þjösnaðist þá á þessu áfram þrátt fyrir að vera aðeins slöpp
en verð að læra af því og sýna skynsemi núna,“ segir Guðrún
Sóley.
Meiri líkur en minni eru á því að hún missi af síðustu
leikjum tímabilsins með Djurgården en félagið er sem
stendur í sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar.
„Það er mjög ólíklegt að ég nái að spila þessa tvo
leiki sem eru eftir af tímabilinu með Djurgården.
Það er ekki sniðugt að spila þessa leiki út af
hættunni á því að fá enn annan heilahristing
því eftir því sem maður fær heilahristing oftar
þá þarf alltaf minna til í hvert skipti til þess að maður lendi
í þessu aftur. Ég er því búin að tala við liðið mitt og aðstand-
endur þess og við erum sammála um það að eins og staðan
er núna þá sé best að ég spili þessa leiki ekki og einbeiti mér
að því að verða hraust aftur,“ segir Guðrún Sóley.
GUÐRÚN SÓLEY GUNNARSDÓTTIR: MUN MJÖG LÍKLEGA MISSA AF SÍÐUSTU LEIKJUM TÍMABILSINS MEÐ DJURGÅRDEN
Má ekkert gera fyrr en ég losna við öll einkenni
Meistaradeild Evrópu
A-riðill:
Bordeaux-Bayern München 2-1
Juventus-Maccabi Haifa 1-0
1-0 Giorgio Chiellini (47.).
B-riðill:
CSKA Moskva-Manchester United 0-1
0-1 Antonio Valencia (86.).
Wolfsburg-Besiktas 0-0
C-riðill:
Real Madrid-AC Milan 2-3
1-0 Raul (19.), 1-1 Andrea Pirlo (62.), 1-2 Alex-
andre Pato (66.), 2-2 Royston Drenthe (76.), 2-3
Pato (88.).
FC Zürich-Marseille 0-1
D-riðill:
Porto-Apoel 2-1
Chelsea-Atletico Madrid 4-0
1-0 Salomon Kalou (41.), 2-0 Kalou (52.), 3-0
Frank Lampard(69.), 4-0 Luis Perea, sjálfsm.(90.).
KÖRFUBOLTI Þrír leikir fóru fram
í Iceland Express-deild kvenna í
körfubolta í gærkvöldi.
KR vann 58-77 sigur gegn
Grindavík þar sem Signý Her-
mannsdóttir var atkvæðamest
hjá KR með 18 stig en Petrún-
ella Skúladóttir skoraði 22 stig
fyrir Grindavík. Þá unnu Íslands-
meistarar Hauka 70-43 sigur
gegn Snæfelli og Njarðvík vann
Hamar 83-61. - óþ
Iceland Express-deild kvenna í körfubolta í gær:
KR áfram á sigurbraut
FÓTBOLTI Sigurganga Chelsea og
Manchester United hélt áfram í
gærkvöldi þegar þriðju umferð
riðlakeppni Meistaradeildarinn-
ar lauk með átta leikjum. Þá vann
AC Milan ótrúlegan sigur gegn
Real Madrid í bráðfjörugum stór-
liða slag.
Antonio Valencia sá til þess
að Manchester United er búið að
vinna alla þrjá leiki sína til þessa
í riðlakeppninni en hann skoraði
sigurmarkið á 86. mínútu í 0-1
sigri gegn CSKA Moskva á gervi-
grasinu á Luzhniki-leikvanginum
í Moskvu.
Knattspyrnustjórinn Sir Alex
Ferguson hjá Manchester United
var hæstánægður með sína menn í
leikslok og ítrekaði að undirlagið á
vellinum hefði verið aukaatriði.
„Ég sagði fyrir leikinn að sá
sem er góður í fótbolta hefur fulla
stjórn á boltanum. Undirlagið,
hvort sem það er gervigras eða
gras, skiptir ekki máli. Við sýnd-
um það í þessum leik. Við náðum
líka að skapa okkur mikið af mark-
tækifærum og Antonio Valencia
skoraði gott mark þannig að við
erum mjög ánægðir,“ sagði Fergu-
son.
Salomon Kalou kom Chelsea á
bragðið gegn Atletico Madrid á
heimavelli sínum í Lundúnum með
tveimur mörkum beggja megin við
hálfleik.
Þá bætti Frank Lampard við
þriðja markinu um miðjan síðari
hálfleikinn áður en Luis Perea
skoraði sjálfsmark og innsigl-
aði þar með glæsilegan 4-0 sigur
Chelsea.
Brasilíumaðurinn efnilegi Alex-
andre Pato stal senunni á Santiago
Bernabeu-leikvanginum í Madríd
í gær þegar hann skoraði tvennu
í 2-3 sigri AC Milan gegn Real
Madrid. Madrídingar leiddu leik-
inn 1-0 í hálfleik með marki Raul
Gonzalez en Pato og Andrea Pirlo
komu gestunum yfir með tveimur
mörkum með skömmu millibili um
miðjan síðari hálfleik.
Royston Drenthe jafnaði leikinn
fyrir heimamenn þegar stundar-
fjórðungur lifði leiks en það var
svo Pato sem tryggði AC Milan
sigurinn skömmu fyrir leikslok.
omar@frettabladid.is
Pato með tvennu í Madríd
Alexandre Pato skoraði tvö mörk í fræknum sigri AC Milan gegn Real Madrid í
rússíbanaleik. Chelsea og Manchester United eru enn með fullt hús stiga.
FÖGNUÐUR Leikmenn AC Milan höfðu ærna ástæðu til þess að fagna á Santiago
Bernabeu-leikvanginum í Madríd í gærkvöldi eftir 2-3 sigur gegn Real Madrid.
NORDIC PHOTOS/AFP