Fréttablaðið - 22.10.2009, Side 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
Í dag er fimmtudagurinn 22. okt-
óber 2009, 295. dagur ársins.
8.40 13.12 17.43
8.31 12.57 17.21
Mig dreymdi að væri komið árið 2012, þeir tunglið höfðu
malbikað og steypt í hólf og gólf.
Já veröldin var skrýtin, það var
allt orðið breytt, því vélar unnu
störfin og enginn gerði neitt,“
söng Vilhjálmur Vilhjálmsson
árið 1969 á plötunni Hún hring
minn ber.
SKONDIN framtíðarsýn og
fyndið hvernig fólk sá alltaf fyrir
sér að tunglið yrði aðalstaðurinn
á 21. öldinni, eins og við hefðum
eitthvað þangað að sækja sérstak-
lega.
ÉG man líka eftir því að hafa
lesið einhvers staðar fyrir mörg-
um árum vangaveltur nokkurra
grunnskólanemenda um fram-
tíðina, gæti kannski hafa verið í
Æskunni. Krakkarnir höfðu árið
1985 verið beðnir um að ímynda
sér hvernig umhorfs yrði á Íslandi
eftir 25 ár í máli og myndum. Þá
virtist árið 2010 svo óralangt í
burtu, nánast óraunverulegt í
barnshuganum og spárnar eftir
því.
LÍKT og Vilhjálmur söng spáðu
flestir krakkarnir því að tungl-
ferðir yrðu orðnar daglegt brauð
og vélmenni sæju um öll verk,
sérstaklega heimilisverkin. Ein-
hverjir hafa verið orðnir leiðir á
að taka til í herberginu sínu og
að vera settir í uppvaskið. Allir
byggju í kúlulaga húsum og svíf-
andi ökutæki hefðu leyst bíla af
hólmi, veðrið væri alltaf gott, fólk
þyrfti ekkert að vinna og gæti
leikið sér og slappað af. Flestir
sáu líka fyrir sér að eiga helling
af peningum. Ekki amaleg fram-
tíðarsýn það.
ÉG man ekkert hvernig ég sjálf
hélt að heimurinn yrði árið 2010.
Sem jarðbundin sveitastúlka sá
ég ekkert endilega fyrir mér að
flandrast til tunglsins í tíma og
ótíma. Man þó að kúlulaga hús
eins og Barbafjölskyldan bjó í
þótti mér flott. En kannski hélt ég
bara að ég yrði hvort eð er orðin
svo rosalega gömul árið 2010 að
það tæki því ekkert að hugsa um
það.
ÞESSA dagana veltir margur
framtíðinni fyrir sér enda er hún
óljós og jafnvel óárennileg svo
ekki sé meira sagt. Spár grunn-
skólanemendanna þarna um árið
virðast ekki ætla að ganga eftir.
En þeir voru bjartsýnir og það
þýðir ekkert annað. Ég vona alla-
vega að ef grunnskólanemend-
ur í dag fá þetta sama verkefni
horfi þeir af sömu bjartsýni til
tilverunnar eftir 25 ár, árið 2034.
Icesave-skuldin verður þá von-
andi að mestu frá.
Framtíðarsýn
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur