Iðnneminn


Iðnneminn - 01.05.1989, Qupperneq 2

Iðnneminn - 01.05.1989, Qupperneq 2
2 IÐNNEMINN Kjaramálaályktun INSÍ Sambandsstjórnarfundur lönnemasambands (slands haldin þann 4.mars mótmælir harölega þeim veröhækkunum er hafa átt sér stað eftir aö verð- stöövuninni lauk 1. mars. Sú holskefla verðhækkana er þá dundi yfir launafólk úr öllum áttum er til háborinnar skammar fyrir ríkisstjórn þessa lands. Hiö opinbera hefur gengið fram fyrir skjöldu og leyft opin- berum fyrirtækjum aö hækka sín- ar gjaldskrár langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Einnig má minna á að á meðan verðstöðvunin var virtist hún ekki eiga við hið opinbera. Ríkisstjórn- in tók lítið mark á verðstöðvun- inni, heldur sá til þess að kaup- máttur launafólks minnkaði all verulega á meðan verðstöðvunin var og kaup var fryst. Gengið hefur verið fellt nokkr- um sinnum og síðan verið látið síga og í heild hefur gengið fallið um 30 prósent á innan við einu ári sem að sjálfsögðu rýrir kaup- mátt launafólks. Það er furðulegt að þeir flokkar er kenna sig við félagshyggju eiga sök á flest öllum þeim verð- hækkunum er hafa átt sér stað á meðan laun voru fryst. Á þessum tímamótum þarf verkalýðshreyfingin að snúa vörn í sókn og ná aftur þeim kaup- mætti er tapast hefur. Það er krafa Iðnnemasam- bandsins að gengið verði til samninga strax og laun verði hækkuð all verulega því gjaldþrot blasir við mörgum heimilum í dag verði ekkert að gert. Eftirtaldir aðilar stóðu að útgáfu Iðnnemans Ritnefnd Iðnnemans: Viktoría Guðnadóttir, Margrét Halldórsdóttir, Gunnar R. Guðjónsson, Ingólfur Þórsson og Herdís Jónsdóttir.Auglýsinga söfnun: Anna Hildur Hildibrandsdóttir.Umbrot, filmuvinna og prentun: PrentstofaG. Benediktssonar hf. Sérstakarþakkirfá:Torfi Jónssonog nemendurá3. önn í Bókagerðardeild IR.Forsíða er unnin af: Kristinn Þór Elíasson. Útgáfudagur: 1. maí 1989. Iðnneminn er málgagn Iðnnemasambands íslands. Skrifstofa samtakanna er að Skólavörðustíg 19,101 Reykjavík. Símar 14410-14318 og 10988. Skrifstofan er opin alla virka daga milli kl. 13.00-17.00.

x

Iðnneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.