Iðnneminn - 01.05.1989, Blaðsíða 11
IÐNNEMINN
11
Leigumál
Iðnneminn heyrði átal tveggja
stúlkna í Iðnskólanum í Reykjavík
á haustdögum. Þær sátu þar og
ræddu leigumál. Þeim bar sam-
an um að erfitt væri að fá leigt á
sanngjörnu verði í höfuðborginni.
Önnur þeirra, utan af landi hafði
auglýst í Dagblaðinu eftir her-
bergi eða lítilli íbúð. Og viti menn,
eitt tilboð kom þó, maður hringdi,
kynnti sig sem 36 ára fjölskyldu-
mann. Hann kvaðst eiga litla íbúð
vestur í bæ sem hann leigði ung-
um stúlkum fyrir sanngjarnt verð,
í staðinn fékk hann afnot af þeim
einu sinni í viku eða svo þ.e.a.s.
stúlkunum. Það fylgdi sögunni að
stúlkan afþakkaði boðið og fékk
loks húsnæði á okurprís.
Iðnneminn hefur síðan þetta
var, haft eyrun opin og komist að
því að þetta tilboð er ekki eins-
dæmi og mér er spurn: Hversu
algengt er þetta? Eru margir í
þeirri aðstöðu að neyðast til að
taka svona tilboði? Og síðast en
ekki síst: Hversu margir eru ekki
eins heiðarlegir og umræddur
maður var þó, sem sagði strax
hvernig var. ( stað þess að bíða
þar til leigjandinn er kominn og
nota þá kannski lykil til þess að
komast inn og áreita leigjanda
sinn?
Já ég bara spyr?
HJ.
nms-
Mjólkursamsalan
búfaerð
kraft «ÖL.
KókomjolK.