Iðnneminn


Iðnneminn - 01.05.1989, Qupperneq 14

Iðnneminn - 01.05.1989, Qupperneq 14
14 IÐNNEMINN Brjótum Viðtal við Valgerði Bjamadóttur Jæja, Valgerður hvað er BRYT og hvers vegna var það stofnað? BRYT er samnorrænt verkefni og kallast á íslensku Brjótum múr- ana. Þetta er verkefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og er ætlað að auka þátttöku kvenna í hinum hefðbundnu karlagreinum, það er starfrækt á öllum norðurlöndunum. Yfirleitt hefur Norræna ráðherranefndin bara staðið fyrir rannsóknum og stuttum verkefnum en vegna aukinnar umræðu um jafnréttis- mál og mikillar sóknar kvenna inn á vinnumarkaðinn var ákveðið að Brjótum múrana (BRYT) yrði fyrsta aðgerðarverkefnið og stæði í 4 ár frá 19851-1989. Meg- inmarkmið þessa verkefnis er að auka fjölbreytni í starfsvali kvenna, að fá skilning á kynskipt- ingu vinnumarkaðarins og leiðir til að breyta þessu. Það sem hef- ur aðallega komið í Ijós á þessum þremur og hálfa ári er hvað það er erfitt að hafa áhrif á þessa þróun. Og í þeim tilvikum sem kven- menn sækja í karlastörf virðist fljótlega verða til ný skipting í því starfi. Ef tekið er dæmi frá t.d. lögfræði sem var lengi vel hefð- bundið karlmannsfag, en konur hafa sótt mikið í á undanförnum árum, þá er orðin mikil kynskipt- ing þar þ.e.a.s. karlmennirnir starfa mikið meira sjálfstætt, taka að sér verkefni sem lúta að við- skiptum, fjármálum, fyrirtækjum ofl. Kvenmenn starfa meira hjá því opinbera og þá í félagsmál- um, barnavernd, taka að sér skilnaðarmál og ýmis réttinda- mál. efnisfreyja BRYT á Islandi. Brjótum múrana verkefnið hér á Akureyri lagði fyrst megin áherslu á náms- og starfsfræðslu Í9. bekk grunnskóla, upphaflega var ætlunin að koma þessu á var- anlega sem sérstakri námsgrein, en fyrir það fyrsta gekk mjög erf- iðlega að ráða kennara þrátt fyrir auglýsingar innan og utan skól- anna, en þó hafðist að fá kennara fyrstu tvö árin. Farið var með krakkana á vinnustaði 3 eftirmið- daga, 3 tíma í senn á 3 vinnustaði og 3 sinnum á hvern vinnustað og þeim kynnt hin margvísleg- ustu störf, bæði hefðbundin karla-og kvennastörf. Náttúrlega voru þau ekki öll sátt við þetta, en þegar upp var staðið þá vissu þau þó nokkuð meira út á hvað hin ýmsu störf gengu og ýmsum hugmyndum og spurningum um ákveðin störf var svarað. En því miður gekk þetta bara í 2 ár sem er í rauninni mjög leitt miðað við hve mikil vinna og undirbúningur var lagður í að koma þessu af stað. í raun gekk þetta mjög vel eins og áður sagði en varð ekki að fastri námsgrein. En nú er í bígerð að kanna hjá þessum krökkum hvort þau hafi farið aðrar leiðir í starfsvali. Svo er það Verkmenntaskólinn á Akureyri, VMA, sem getur stát- að af því að vera með hæsta hlut- fall kvenna í tæknigreinum, eða 5-10 á hverju ári, meðan aðrir iðn- og verkmenntaskólar hafa 1-3. En því miður virðist ekki vera skilningur hjá stjórn VMA á því að kynna tæknifög sérstaklega með tilliti til kvenna, sem væri í raun bráðsniðugt fyrir þá því það eru allt of fáir nemar í sumum iðn- greinum og það myndi nú breyta að fá fjölgun um helming í suma bekki, kannski úr 4 í 8. En því miður hefur reynslan sýnt að ef það er ekki vilji á að breyta innan frá þá eru enn minni líkur á að það takist utan frá. Helstu ástæðurnar fyrir því að iðn- og verkmennta- skólar ættu að reyna að höfða meirtil kvennaerað þaðerfullt af kvenfólki sem hefur áhuga á tæknigreinum en vantar þessa örlitlu hvatningu til að byrja. Einn- ig er mjög gott fyrir þessar grein- ar að fá kvenfólk inn, það veldur vissri endurskoðun bæði á kennslu og seinna meir í vinnu. Því eins og allir vita er meðal karl- maðurinn líkamlega sterkari en meðal kona og sum „erfiðis-

x

Iðnneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.