Iðnneminn


Iðnneminn - 01.05.1989, Page 15

Iðnneminn - 01.05.1989, Page 15
IÐNNEMINN 15 múrana! verkefnisfreyju BRYT á Akureyri vinna“ þarf í raun ekki að vera erfið, Því það má alitaf finna leið tii að létta hana, ekki vantar tækn- ina. Annars var starfandi um- ræðuhópur í VMA þ.e.a.s. nokkr- ar stelpur í tæknigreinum sem komu saman nokkrum sinnum á vetri og ræddu málin. Reyndar fóru 5 þeirra á kvennaráðstefn- una margumræddu í Osló síð- asta sumar og skemmtu sér stór- vel og kynntu sínar námsgreinar ásamt 60 öðrum stelpum frá hin- um BRYT-hópunum. í Danmörku og Svíþjóð hefur verið haldið uppi óvenju miklum áróðri til að fá kvenmenn í karla- störf. Meðal annars er boðið upp á stelpubekki í tækniskólum og sérstök endurmenntunarpró- grömm sem hafa verið mikið sótt. Hins vegar gefast margar kvenn- ana upp eftir að þær fá vinnu þar sem mórallinn á vinnustað er mik- ið erfiðari en í skólanum, sem veldur því, að stór hluti kvennafer í hefðbundin kvennastörf eftir nám. Vinnan sjálf er þá ekki vandamálið, heldur hræðsla við niðurlægjandi athugasemdir, pressa frá fjölskyldu sem vill ekki að viðkomandi stundi karlavinnu, ekki er heldur gert ráð fyrir veik- indum barna ofl. Annars hefur kvenkyns málurum í Danmörku tekist að fá það inn í samninga að um leið og þær vita að þær eru orðnar ófrískar, fá þær leyfi á launum þar til barnið fæðist og venjulegt fæðingarorlof. þetta er í raun lofsvert framtak því málarar vinna með mikið af efnum sem geta skaðað fóstrið. Því miður hafa kannanir leitt í Ijós að atvinnuleysi í tæknigrein- um hjá kvenfólki, sem hefurfarið í gegnum skólann á réttum tíma, er meira en hjá körlum, en reynd- ar er atvinnuleysi hjá kvenfólki í hefðbundnum kvennagreinum meira en hjá körlum innan sömu greina. Nú stóðuð þið fyrir könnun um kynferðislega áreitni gagnvart konum á vinnustað, sem olli ansi miklu fjaðrafoki? Já, reyndar þá varð þessi könnun hálfgerð æsifrétt, en það var talað við 38 konur og af þeim höfðu 10 orðið fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað. í raun er úr- takið mjög lítið en nóg til að segja okkur að þetta viðgengst hér eins og annars staðar, en ekki til að álykta að 3,8 konur af hverjum 10 verði fyrir áreitni á vinnustað. Reyndar var þetta sett á síður dagblaðanna sem 3. hver kona í verksmiðjum á Akureyri hefði orðið fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað. Þannig að flestir álykt- uðu að þessar verksmiðjur væru SÍS-verksmiðjumar, á Akureyri, sem er ekki alls kostar rétt, því könnunin var gerð meðal verksmiðjufólks á Akureyri og þar inni voru mörg fyrirtæki. Ein nið- urstaða könnuninnar var sú að þetta er ekki vandamál þar sem vinna margar konur undir verk- stjórn kvenna, þar sem svona framkoma er ekki látin viðgang- ast, hins vegar virðast karlkyns- verkstjórar ekki taka eins ákveðið á málunum. En þetta er í raun mjög leiðinlegt og viðkvæmt mál sem hægt er að koma í veg fyrir með ákveðnu aðhaldi. Það kom reyndar fram í ís- lensku könnuninni og víðar að eldri konur á vinnustöðum taka gjarnan að sér að vernda þær yngri (sem eru þá gjarnan nýbyrj- aðar) fyrir svona áreitni. f sænskri könnun kom fram að það er algengast að yfirmenn á skrifstofum og í þjónustugreinum beiti kynferðislegri áreitni og svo samverkamenn í verksmiðjum. Til marks um það hvað þetta er viðkvæmt mál ákvað ég að at- huga hvort væri ekki hægt að gera eitthvað í þessu, en þá kom í Ijós að ekki var vilji fyrir því í nor- rænu og íslensku verkefnisstjórn- inni, fannst þeim þetta vera alltof viðkvæmtmál. Þessarstjórnireru blandaðar en aðallega konur, en vert er að taka það fram að það voru ekki allir sammála, en meiri- hlutinn réði. Svo héldum við námskeið 1987 með yfirskriftinni „Konur stofna fyrirtæki", það námskeið tókst í alla staði mjög vel og var eigin- legayfirfullt. Másegja að það hafi skilað mjög góðum árangri, 6 ný fyrirtæki voru stofnuð, þau fyrir- tæki sem voru í rekstri þessara kvenna tóku í raun kipp og nokkr- ar þeirra eru enn að móta hug- myndir sínar en bíða bara eftir

x

Iðnneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.