Iðnneminn - 01.05.1989, Blaðsíða 17
/------------ -------------------------------------
Láfnasjéðyr Islatmskra méfnmsmarafna
Nokkrar ábendingar til
iönnema varöandi
lokaafgreiðslu 1988-89
og umsóknir 1989-90
Lánasjóðurinn vill vekja athygli iðnnema á nokkrum atriðum
varðandi lokaafgreiðslu á yfirstandandi námsári og umsóknir
um námsaðstoð á því næsta.
Lokaafg reiösla
Námsmenn voru beðnir að skila upplýsingum um endanlegartekjur
1988 fyrir 10. febrúar s.l. Þeir sem skiluðu umbeðnum upplýsingum
á tilsettum tíma fengu lokagreiðslu í síðasta lagi um miðjan apríl
s.l.. Á sama tíma voru öafgreiddar umsóknir um ferðastyrki og
aukalán afgreiddar.
Ofreiknað lán
í lokaútreikningi er heildarupphæð námsláns fyrir námsárið reiknuð
út að nýju miðað við endanlegar upplýsingar um tekjur og nýjar
framfærslutölur. Ef endanlegartekjur reynast mun hærri en upphaf-
lega var áætlað og heildarlán lækkar þess vegna meira en sem
nemur framfærslu það sem eftir er námsársins, verður að
endurgreiðamismuninn.0freiknaðlánendurgreiðistá34mánuðum
og fyrsti gjalddagi er 1. júni n.k.
Vanskila fylgiskjöl
Þeir sem hafa ekki skilað umbeðnum fylgiskjölum verða áminntir
fljótlega og þeim veittur lokafrestur til 28. apríl n.k.
Lán á sumarmisseri
LÍN veitir í vissum tilvikum lán til náms yfir sumartímann. Þeir eiga
rétt á láni sem eru við samningsbundið nám/verknám í sumar.
Síðasti skiladagur umsóknar um sumarlán er 16. maf n.k.
Framhaldsumsókn
Eyðublað vegna umsóknar um námsaðstoð á komandi námsári var
sent lánþegum um miðjan mars. Síöasti skiladagur var 31. mars.
i maí verður móttaka umsóknar staðfest og helstu atriði varðandi
námsaðstoð 1989-90 kynnt
Grunnumsókn
Þeir sem sækja um í fyrsta skipti, skipta um skóla eða námsgrein
eða sækja um að loknu námshléi verða að leggja inn grunn-
umsókn. Umsókn um námslán fyrir næsta skólaár skal skila fyrir
2.. maí n.k. .vegna náms á íslandi og fyrir25 maí n.k. vegna náms
erlendís.
Kröfur LÍN um námsárangur
Þeir sem nutu aðstoðar sjóðsins á yfirstandandi námsári verða aö
fullnægja kröfum LÍN um námsárangur til að fá lán næsta haust.
Skípulag náms í iðnskólum, sem kröfur LÍN taka mið af, er nokkuð
mismunandi. Námsmaöur veröur aö fullnægja kröfum skóla
umafköstJágmarkseinkunnirogeölilegaframvinduínámi.Ef
skóli setur engar reglur um eölilega framvindu á hverju árí
gerir LÍN þá kröfu aö námsmaður Ijúki a.m.k. 75% af fullu námi
samkvæmt skipulagi skóla á aðstoöartímanum. Þannig skal
Ijúka:
1. Eins árs námi á 3 misserum hið lengsta;
2. Tveggja ára námi á 5 misserum hið lengsta;
3. Þriggja ára námi á 8 misserum hið lengsta;
4. Fjögurra ára námi á 10 misserum hið lengsta.
Hámarkslán á mánuði
(frá 1. mars 1989)
Einstaklingur í foreldrahúsn 26.275
Einstaklingur leigu-/eigin húsn 37.535
Námsmaður 1 barn 46.919
Hjón/bæði í námi/1 barn 93.838
Hjón/annað í námi/2 börn 84.454
Einstætt foreldri/1 barn 56.303
Námsmenn munið að skrá nafn, nafnnúmer
og námsland á öll skjöl sem þið sendið sjóðnum
V____________________________________________________________J