Iðnneminn


Iðnneminn - 01.05.1989, Síða 18

Iðnneminn - 01.05.1989, Síða 18
18 IÐNNEMINN Samnorrænt dagsverk 1991 Árið 1985 var svokallað NOD (samnorrænt dagsverk) verkefni í gangi á norðurlöndunum og byggðist það upp á því að styrkja menntun í Suður-Afríku. Þetta verkefni tókst með ágætum í flestum löndunum en hér á ís- landi gekk dæmið ekki alveg upp. Það fékkst ekki leyfi hjá menntamálaráðherra þáverandi á elleftu stundu fyrir verkefninu, sem fólst í því að framhaldsskóla- nemendur áttu að fá frí í einn dag, og vinna að hinum ýmsu störfum til styrktar menntun jafnaldra sinna í Suður Afríku. Ýmsir þekktir menn lögðu málefninu lið og má þar nefna: Halldór Laxnes rithöf- und og Desmond Tutu erkibisk- up. Nú standa málin þannig að ákveðið hefur verið að ráðast í annað verkefni þessu líkt og það verður á degi sameinuðu þjóð- anna 24. október 1991. Mörgum þykir eflaust skrýtið að nú svo löngu fyrir þennan tíma sé verið að ákveða þetta og hitt, en þetta er mjög stórt og viðamikið verk- efni og mjög áríðandi að vandað sé til verksins. Sumarið 1988 hófst undirbún- ingur NOD 1991. íslendingar komu þó ekki inní dæmið fyrr en í janúar síðastliðnum vegna þess að bréf sem bárust í júlí 1988 komu þegar starfsmenn INSÍ og BÍSN voru í sumarfríi. Þau lönd sem munu taka þátt í þessu verða að öllum líkindum: fslendingar, Finnar, Norðmenn, Danir, Færeyingar, Grænlend- ingar og Svíar. Ákveðið hefur verið að mál- efnið sem verður unnið að í þetta skipti verði menntun í þriðja heim- inum, en nánar hefur það ekki verið skilgreint í bili. í janúar síð- astliðnum fór undirritaður ásamt Ólafi Loftsyni fulltrúa Bandalags íslenskra sérskólanema á fund í Helsinki ÍFinnlandi. Þarvar okkur kynnt málið og sagt frá því sem fram hefði komið í málefninu. Það hefur ekki verið ákveðið með hvaða hætti verður safnað, en það verður leitað til Rauða kross- ins eða Hjálparstofnunar kirkj- unnar um aðstoð. Þetta er mjög áhugavert verk- efni sem við íslendingar ættum að sjá sóma okkar í að leggja lið og vinna vel að. Georg Páll Skúlason. Upphafiö Það byrjaði allt á því að fyrst kólnaði jörðin, Svo komu risaeðlurnar. Þær voru svo stórar og feitar, að þær dóu og urðu að olíu. Þá.... birtust Arabarnir, þeir keyptu sér Bens og turban. Þannig hófst menningin. SBEG

x

Iðnneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.