Iðnneminn - 01.05.1989, Qupperneq 21
IÐNNEMINN
21
fyrir
1. tbl. Iðnnemans 1943.
Sundmenn Iðnskólans í heim-
boði hjá skólastjóra.
Eins og lesendum Iðnnemans
mun kunnugt vera, vann sunds-
veit Iðnskólans bikar þann, er
Stúdentaráð Háskóla fslands gaf
til keppni í bringusundi skólanna.
f tilefni þess bauð skólastjóri Iðn-
skólans, Helgi H. Eiríksson og frú
hans, okkur sundmönnunum
heim til sín þann 26. janúar síð-
astliðinn...
2. tbl. Iðnnemans 1944.
Framtíðarverkefni.
f vor útskrifuðust úr Iðnskólanum í
Reykjavík 104 nemendur, sem
senn bætast við í hinn stóra iðn-
aðarmannahóp......
3. tbl. Iðnnemans 1946.
Getur kvenfólk varðveitt leyndar-
mál?
Það hefur þrásinnis verið borið á
móti því. En hér er saga sem sýnir
að takast má það. Við leikhús eitt í
París var eigi alls fyrir löngu og er
ef til vill enn leikmær ein, Margrét
Martignac að nafni, sem náttúran
hafði búið ríkulega fágætum feg-
urðarþokka og harla prýðilegu
vaxtarlagi. Þar á ofan bættist
það.......
4.-5. tbl. Iðnnemans 1949.
Prentnemar í Reykjavík hafa í
hyggju að hefja fræðslustarfsemi
á vegum félagsins, nú í vor...
9.-10. tbl. Iðnnemans 1950.
Orðabelgur.
Kæri orðabelgur.
Þegar ég sótti um inngöngu í Iðn-
skólann í Reykjavík, var mér til-
kynnt að ég yrði fyrst að ganga
undir próf, er myndi sýna hvort
ég væri hæfur til að stunda nám
við Iðnskólann í Reykjavík....
1. tbl. Iðnnemans 1952.
Félag járniðnaðarnema 25 ára.
Fyrir 25 árum stofnuðu járniðnað-
arnemar í Reykjavík með sér fé-
lagsskap....
1. tbl. Iðnnemans 1953.
Sendibréf til pabba.
Sæll og blessaður pabbi minn og
þakka þér fyrir síðast.
Nú er ég búinn að vera tvö ár að
læra og fæ ég að vinna á verk-
stæði ef rigning er eða rok, en
áður var ég látinn rukka ef ekki
var hægt að vinna úti.......
Ég ætla að hætta að vera í Iðnn-
emafélaginu pabbi, því meista-
rinn minn sagði mér að það væru
allt kommúnistar í þessum iðnn-
emafélögum og meira að segja
hann Siggi Jóns sem alltaf hlust-
ar á hann Eystein, en aldrei á
kommana, er nú sagður kommi
síðan hann gekk í þetta iðnnema-
félag og unir hann því mjög illa
sem eðlilegt er.Og finnst mér það
eðlilegt, og ert þú ekki sammála
mér pabbi minn. Pabbi, ég er að
hugsa um að hætta að vera í
þessu iðnnemafélagi, en þú get-
FRH,—»