Iðnneminn


Iðnneminn - 01.05.1989, Side 31

Iðnneminn - 01.05.1989, Side 31
IÐNNEMINN 31 Oft er þörf en nú ... Nú hefur starf hjá FÉLAGI NEMA í RAFIÐNAÐI legið niðri undanfarin misseri, vil ég þar um kenna áhugaleysi nema og hræðslu þeirra við að koma á fundi, þó ber að athuga að fé- lagslegur þroski hjá unglingum á fyrstu árunum eftir grunnskóla er mjög bágborinn þar eð þeir hafa litla sem enga reynslu af vinnu- markaðnum og kjarabaráttu í sambandi við hann. Félag nema í rafiðnum (FNÍR) er ekki aðeins félag til að koma saman og ræða kjaramál, heldur félag til að halda saman rafiðnað- arnemum með öllum tiltækum ráðum og hafa komið upp hug- myndir um að leggja land undir fót og fara í skoðunarferðir í fyrir- tæki og virkjanir, eins um að halda skemmtikvöld og ferðir á vegum félagsins, ekkert hefur þó verið ákveðið enn. Á aðalfundin- um sem haldinn var nýlega mættu ekki nema átta nemar, en þeir náðu þó að setja saman stjórn sem ætlar að freista þess að ná saman rafiðnaðarnemum og ætla ég að vona að það takist, því eins og ástandið er í dag á vinnumarkaðinum þá hefur sjald- an eða aldrei verið eins mikil ástæða fyrir iðnnema að standa vörð um sinn hag. Nokkur orð um skólann. Iðn- skólinn í Reykjavík er sá skóli sem ætti að vera í fararbroddi annarra iðnskóla á landinu. En því miður er raunin önnur, skólann vantar tilfinnanlega fjármagn til tækja- kaupa svo að skólinn geti boðið upp á menntun í sama gæða- flokki og menntaskólarnir í land- inu. Það gefur auga leið að mun dýrara er að reka iðn- og verk- menntaskólaen bóknámsskóla. f dag er það þannig að verknáms- skólar fá sama fjármagn og bóknámsskólar fá frá ríkinu og Rauða Það var kalt. Veðrinu hafði hrakað niður á gólf. í fjarska heyrðist möppuglamur. Og ef betur var að gáð var hægt að sjá í rautt myndaalbúm sem var næst- um króknað í kaf. Það hafði strok- ið að heiman. Það var orðið leitt á því að verða fyrir barðinu á eilífum gestagangi, þar sem öllum gest- unum var AUÐVITAÐ boðið upp á að skoða „gömlu myndirnar". Og að heyra svo skrækróma kvenmann segja kannski: „Nei, ekki er þetta hann Siggi, svona myndó í Gaggó". Nei, nú sagði rauða myndaal- búmið STOPP! og valt út. Út í kuldann. Út þangað sem veðrinu hafði hrakað niður á gólf. Út þangað sem nú heyrðist möppu- glamur. SG ’89. Sigurberg Hauksson varafor- maður INSÍ. kemur það mjög niður á verk- menntanemendum. Auk alls þessa eru kennaramál IR í miklu ólagi, þar eð kennarar fá ekki nægan undirbúning fyrir veturinn vegna þess að að breyt- ingar verða bæði á kennslu og kennslugreinum. Það er öllum Ijóst að kennarar ættu að fá kennsluáætlun sem mark væri takandi á svo að hægt sé að und- irbúa og samræma kennslu eins vel og kostur er því miklir mis- brestir hafa verið á því að náms- efni hafi verið tilbúið í upphafi sumars. Það er mjög mikilvægt að iðn- og verkmenntaskólar fái meira fjármagn svo að skólarnir geti sinnt sínum skyldum en það er að mennta iðnaðarmenn sem best og sinna öllum tækninýjungum sem koma á markaðinn eins fljótt og kostur er. Sigurberg Flauksson

x

Iðnneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.