Iðnneminn


Iðnneminn - 01.05.1989, Side 33

Iðnneminn - 01.05.1989, Side 33
IÐNNEMINN 33 Félag Iðnnema á Akureyrí Sagan: Stofnfundur FÍNA var haldinn 17. október 1954, að viðstöddu nokkru fjölmenni. Félagið var stofnað að tilhlutan INSf sem stóð á þessum árum fyrir stofnun iðn- nemafélaga víða um land, til að efla félagsvitund og samheldni iðnnema. Tilgangur FfNA, sem annarra iðnnemafélaga er að tryggja iðnnemum sambærileg kaup og kjör og öðrum þjóðfé- lagsþegnum, að sjá til þess að fræðsla hvers nema sé fullkomin og að námssamningarnir séu haldnir. Framan af var félagið geysi- lega öflugt og alltaf hefur það barist fyrir rétti félagsmanna sinna. Svo fór að halla undan fæti og seinasta stjórn félagsins var kosin 1985. Eftir það lagðist starf- semi félagsins útaf. En heldur þótti mönnum það aumt að á Akureyri og nágrenni væri ekki hægt að halda uppi öfl- ugu iðnnemafélagi, svo að brátt hugðu menn á endurreisn félags- ins. En þrátt fyrir góðan vilja gekk það seint. Endurreisnin: Þaðvarsvo17. febrúar1989að endurreisnarfundur (og aðal- fundur) var haldinn í Verk- menntaskólanum á Akureyri. Þar mættu tæplega 100 manns auk gesta. Fundurinn fór af stað eins og lög gera ráð fyrir með kosningu fundarstjóra og fundar- ritara. Þá ávarpaði Flaukur Jóns- son aðstoðarskólastjóri og yfir- kennari iðndeild VMA fundinn. Flann hvatti menn til að samein- ast um sitt félag og styðja það með ráðum og dáðum. Óskaði hann svo félaginu velfarnaðar. Þá steig í pontu Ingólfur Þórsson sem talaði fyrir hönd undirbún- ingsnefndar og lýsti aðdraganda fundarins. Þriðji ræðumaðurinn var Jón Baldvinsson nemi í raf- eindavirkjun sem man tímanna tvenna í málum iðnnema og hafði frá mörgu að segja. Sérstaklega varð honum tíðrætt um iðnfræðsl- una í landinu og breytingar á lög- um og reglugerð í því sambandi. Þá gekk í ræðustól Gunnar Óli Vignisson og ræddi hann um rétt- indi iðnnema og skyldur og dró fram dæmi um iðnnema sem gróflega væri brotið á í starfi. Síðasti ræðumaðurinn var varaformaður INSÍ Sigurberg Flauksson og talaði hann um starf sambandsins og það sem helst væri að gerast um þessar mund- ir. Að því búnu svaraði hann fyrirspurnum úr sal og leysti það vel af hendi. Opnaði fundarstjóri nú mælendaskrá en fáir notfærðu sér það. Var þá gengið til kosn- inga og voru allir þeir sem stung- ið var upp á einróma samþykktir. Og var kosningin eftirfarandi: Formaður: Guðmundur Geirsson Aðrir í stjórn: Jón Ægir Jóhanns- son Helgi Ófeigsson Birgir Björnsson Helgi Guðbrandsson Varamenn: Gunnar Óli Vignisson Anna Kristveig Arnarsdóttir Eftir að hafa rætt lítillega við nýkjörinn formann FÍNA varð ég þess áskynja að þar fer maður fullur áhuga á að starfa vel fyrir Iðnnemahreyfinguna og tals- verður áhugi er fyrir virku starfi félagsins. Að lokum vill Iðnneminn óska nýjasta félagi INSÍ velfarnaðar í starfi og langra Iffdaga. Ingólfur Þórsson

x

Iðnneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.