Iðnneminn - 01.10.1997, Síða 25
ríkííin
Það er oft kátt á hjnlla í mötuneyti skólans.
Héreru þrír ttcmendur afjjarðplöntubraut,
þs:r Lindn, Þórhildur ojj Rnkel.
sveinsprófs í skrúðgarðyrkju er 17 mánuðir án
frídaga og leyfa og skiptist í 3ja mánaða
ósérhæft verknám (reynslutími) og 14 mánaða
sérhæft verknám (dagbókarskvlt).
Líf að loknu námi:
Starfsvettvangur er ólíkur eftir námsbrautum.
Þeir sem útskrifast af blómaskreytinga- og
markaðsbraut starfa t.d. í blómaverslunum við
skreytingar, útstillingar og sölu. Þeir sem
útskrifast af garðplöntubraut starfa í gai'ð-
plöntu- eða skógræktarstöðt'um við framleiðslu
og sölu garðplantna og skógarplantna. Þeir sem
útskrifast af ylræktar- og útimatjurtabraut starfa
við framleiðslu á grænmeti, afskornum
blómum og pottaplöntum í gróðurhúsum og
við útimatjurtaræktun. Þeir sem útskrifast af
umhverfisbraut starfa við hvers konar náttúru-
umönnun, skógrækt, landgræðslu og land-
vörslu. Þeir sem útskrifast af skrúðgarðyrkju-
braut starfa við nýbyggingar og viðhald
almenningsgarða, skrúðgarða, kirkjugarða og
íþróttasvæða.
Til þess að fá meistararéttindi þurfa skrúð-
garðyrkjusveinar að ljúka meistaranámi í
meistaraskóla. Um annað framhaldsnám er ekki
að ræða innanlands eins og er, en fjölbreytt
endurmenntunarstarf fer fram við Garðyrkju-
skólann. A hinum Norðurlöndunum eru
möguleikar á tækninámi á flestum sviðum
garðvrkju.
Háskólanám í garðyrkju og umhverfismálum
stendur víða til boða, en þá má búast við að
kröfur viðkomandi skóla um almennan
bóklegan undirbúning í grunngreinum, þ.e.
tungumálum og raungreinum, séu hærri en
lágmarkskröfúr Garðyrkjuskólans eru.
Nemendur cru tticð opið hús attnað hvert ár. Sl. vor hcimsáttu utn 8000 tnanns skólnns
ojf kynntu scr stnrfsemi hnns ojj tóku þátt i fjölmörjjum uppákomum settt ncmendur
skipulöjjðu. Hér er Hrönn Oskarsdóttir, netnandi á blómnskrcytinjjabraut við einn
bróðnrskreytinjjuna sem vnr til sýnis á sumardajjinn fyrstn.
Meðalaldur nemenda Garðyrkjuskólans er
nokkuð hár og nokkur hluti nemenda hefur
lokið stúdentsprófi, þótt það sé ekki skilyrði af
skólans hálfu. I þeirn könnunum og athugun-
um, sem gerðar hafa verið hefur komið í ljós að
mjög hátt hlutfall útskrifaðra nemenda skilar
sér út í atvinnulífið í störf sem eru í samræmi
við námið sem þeir luku.
&
skeiá/
7K
Photoshop
QuarkXPress FreeHand
Macintosh Director Heimasíðugerð
Margmiðlun Internet Litprentun
Bókband og margt fleira.
Hringið og biðjið um námskeiðaskrá
m
Prenttæknistofnun
http://www.apple.is/prent/
Sími 562 0720
ró
0'
'10.
H
V
H->
H\
fú
6*
ö
Iðnneminn 25