Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.11.2009, Qupperneq 3

Fréttablaðið - 02.11.2009, Qupperneq 3
Við færum höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána niður um 10% islandsbanki@islandsbanki.is www.islandsbanki.is Sími 440 4000 Þú getur lækkað höfuðstólinn á verðtryggðu húsnæðisláni Með skilmálabreytingu hjá Íslandsbanka býðst viðskiptavinum að lækka höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána og breyta þeim í óverðtryggð lán í íslenskum krónum. Hvernig lækkar höfuðstóllinn og hversu mikið? Lækkunin verður um það bil 10% á stöðu höfuðstóls 1. nóvember næstkomandi. Sjá dæmi á mynd A. Hvað verður um lánið mitt? Lánið breytist í óverð tryggt húsnæðislán með 25 eða 40 ára lánstíma. Hverjir verða vextirnir? Hægt verður að velja á milli breytilegra og fastra vaxta. Breytilegir vextir í dag skv. vaxtatöfl u eru 9,5%. Boðið verður upp á stiglækkandi afslátt frá þeim. Miðað við óbreytt vaxtastig þá yrðu vextir fyrsta árið 7,5% sem er vaxtaafsláttur upp á 2 prósentustig. Einnig er boðið upp á fasta vexti til þriggja ára sem í dag eru 9,0% að teknu tilliti til afsláttar. Get ég lækkað greiðslubyrðina á láninu mínu? Já, hægt er að sækja um greiðslujöfnun á óverð- tryggða láninu í þrjú ár, sem í fl estum tilfellum lækkar greiðslubyrði lánsins umtalsvert. Að þremur árum liðnum hefur viðskiptavinur val um hvort haldið sé áfram í greiðslujöfnun eða ekki. Dæmi um lækkun á greiðslubyrði má sjá á mynd B. Hversu mikið lengist lánið í greiðslujöfnun? Það er óvíst en greiðslujöfnun ofan á höfuðstólsleið- réttingu hefur ekki þak á lengingu lánstíma. Hvenær get ég sótt um höfuðstólsleiðréttingu? Byrjað verður að taka á móti umsóknum 6. nóvember 2009 og verður hægt að sækja um til og með 18. desember 2009. Hverjir geta sótt um? Allir viðskiptavinir Íslandsbanka með verðtryggð húsnæðislán sem voru tekin fyrir 15. október 2008. Lánið þarf að vera í skilum. Hentar þessi lausn öllum? Nei, hver og einn þarf að vega og meta kosti og galla þess að breyta láni sínu með þessum hætti. Þessi lausn hentar sumum betur en öðrum en einna helst þeim sem hyggjast selja eign sína eða greiða upp húsnæðislán sitt á næstu misserum. Mun þetta kosta viðskiptavini eitthvað? Skilmálabreyting kostar kr. 5.500 auk þinglýsingar- gjalds en lántöku- og stimpilkostnaður er enginn. Íslandsbanki hvetur alla til að kynna sér þá kosti sem í boði eru og taka ákvörðun að vandlega athuguðu máli. Reiknivél, dæmi og ítarlegri upplýsingar er að fi nna á www.islandsbanki.is Höfuðstóll – verðtryggð lán* Höfuðstóll nú Höfuðstóll eft ir leiðréttingu 20.000.000 18.000.000 Næsta greiðsla* Greiðslubyrði nú Greiðslubyrði eft ir leiðréttingu og með greiðslujöfnun Greiðslubyrði eft ir leiðréttingu 95.000 123.000 82.000 * m.v. 20.000.000 kr. lán til 40 ára

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.