Fréttablaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 2. nóvember 2009 11
„DV er bara besta blaðið í dag. Langbesta blaðið. Það þorir að segja hlutina og tala
um þá eins og þeir eru. Mér finnst þeir vera komnir með ansi þéttan hóp af blaða-
mönnum. Á meðan eitt blaðið er í hers höndum og annað þorir voða litlu og hefur
nú aldrei gert því það á svo mikið undir af auglýsingum. DV er mest afgerandi
blaðið. Almennt séð finnst mér mest púður í DV.“
Þorir meðan aðrir þegja
. . . nú á mánudögum
-Egill Helgason í morgunspjalli á Rás 2 30. október 2009
EFNAHAGSMÁL Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu
níu mánuði ársins var 108,7 milljörðum króna
hagstæðari en á sama tíma í fyrra. Í september-
mánuði voru fluttar út vörur fyrir 43,7 millj-
arða króna og inn fyrir tæpa 40,6 milljarða
króna. Vöruskiptin í september voru því hag-
stæð um 3,1 milljarð króna. Í september 2008
voru vöruskiptin hagstæð um 9,7 milljarða
króna á sama gengi.
Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar.
Þar segir að fyrstu níu mánuðina 2009 voru
fluttar út vörur fyrir 341,2 milljarða króna
en inn fyrir 297,5 milljarða króna. Afgangur
var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam
43,8 milljörðum en á sama tíma árið áður voru
þau óhagstæð um 64,9 milljarða á sama gengi.
Vöruskiptajöfnuðurinn var því 108,7 milljörð-
um króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Fyrstu níu mánuði ársins 2009 var verð-
mæti vöruútflutnings 128,7 milljörðum eða 27,4
prósent minna á föstu gengi en á sama tíma
árið áður. Sjávarafurðir voru 44,7 prósent alls
útflutnings og var verðmæti þeirra 9,5 prósent
minna en á sama tíma árið áður.
Útfluttar iðnaðarvörur voru 49,6 prósent alls
útflutnings og var verðmæti þeirra 29,5 pró-
sent minna en á sama tíma árið áður. Mestur
samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnað-
arvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í
útflutningi á skipum og flugvélum og sjávaraf-
urðum. Fyrstu níu mánuði ársins var verðmæti
vöruinnflutnings 237,4 milljörðum eða 44,4 pró-
sent minna á föstu gengi en á sama tíma árið
áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra
liða innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru,
flutningatækjum og fjárfestingavöru.
Vöruskiptajöfnuður 108 milljörðum hagstæðari en á sama tíma í fyrra:
Sjávarafurðir vega þyngst í útflutningi
TIL ÚTFLUTNINGS Sjávarafurðir námu rúmum 44 pró-
sentum af öllum útflutningi. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
VIÐSKIPTI Stjórn Atorku hefur
ráðið Benedikt Olgeirsson tíma-
bundið í starf forstjóra Atorku
Group. Ráðn-
ing hans stend-
ur til áramóta á
meðan unnið er
að því að ljúka
nauðasamning-
um félagsins,
að því er segir
í tilkynningu
Kauphallar-
innar.
Héraðsdómur Reykjaness féllst
á beiðni Atorku Group um heimild
til að leita nauðasamninga við lán-
ardrottna fyrir viku.
Benedikt var áður fram-
kvæmdastjóri hjá Atorku. Hann
tekur við af Magnúsi Jónssyni
sem lét af störfum í enda sept-
ember í tengslum við fjárhagslega
endurskipulagningu félagsins.
- jab
Nýr forstjóri yfir Atorku Group:
Situr fram á
gamlárskvöld
MAGNÚS JÓNSSON
Aserar Evrópumeistarar
Aserbaídsjan varð efst á Evrópumeist-
aramóti landsliða í skák sem fram
fór í Novi Sad í Serbíu. Rússland varð
í öðru sæti og Úkraína í því þriðja.
Ísland lenti í 34. sæti af 38 liðum en
íslenska liðið var án stórmeistara.
SKÁK
SVEITARSTJÓRNIR Eignarhaldsfé-
lagið Brunabótafélag Íslands
hefur styrkt Hveragerðisbæ um
fimm hundruð þúsund krónur til
að gera fótabað. „Verkefnið er
hluti af endurbótum og uppbygg-
ingu svæðisins með það að mark-
miði að auka aðsókn ferðamanna
á Hverasvæðið,“ segir um málið
í fundargerð mannvirkjanefnd-
ar Hveragerðis. „Hverasvæðið
er eitt af fáum svæðum þar sem
hægt er að sjá fjölbreytta nýtingu
jarðhita á Íslandi með ræktun í
gróðurhúsum, fótabaði í hvera-
vatni, borholum, suðu á eggjum,
rúgbrauðsbakstur auk goshvera,
leirhvera og hveralækja.“ - gar
Styrkur frá Brunabótafélaginu:
Hálf milljón
gefin í fótabað
JARÐHITI Í HVERAGERÐI Auka á dagskrá
á hverasvæðum í Hveragerði.
Bæjarstjórnin í beinni
Senda á bæjarstjórnarfundi á
Seltjarnarnesi beint út á netinu.
Bæjarstjórn samþykkti tillögu um
þetta á miðvikudag. „Verkefnið hefur
verið í skoðun um nokkurn tíma en
kostnaður vegna þess hefur þótt of
hár til þess að unnt væri að ráðast í
það. Nú er önnur staða uppi og því er
lagt til að verkefninu verði hrundið í
framkvæmd“, segir í tillögunni.
SELTJARNARNES
BANDARÍKIN Breska olíufélagið BP
hefur verið sektað um 87 millj-
ónir dala vegna sprengingar sem
varð í Texas árið 2005. 15 létu
lífið og 180 særðust í sprenging-
unni. Bandarísk stofnun, sem sér
um öryggismál á vinnustöðum,
kvað upp úr um sektina.
BP var talið bera ábyrgð á 270
brotum á öryggisreglum sem
leiddu til sprengingarinnar. Fyr-
irtækið greiddi 21,3 milljón-
ir dollara í sekt árið 2005 vegna
sprengingarinnar, 50 milljónir
dollara árið 2007 og hefur greitt
meira en 2 milljarða dollara í
einkamálum eftirlifenda og fjöl-
skyldna fórnarlamba. - kóp
Breski olíurisinn BP:
Há sekt vegna
sprengingar