Fréttablaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 5

Fréttablaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 5
Við færum höfuðstól erlendra húsnæðislána aft ur til loka september 2008 islandsbanki@islandsbanki.is www.islandsbanki.is Sími 440 4000 Með skilmálabreytingu hjá Íslandsbanka býðst viðskiptavinum að lækka höfuðstól erlendra húsnæðislána og breyta þeim í óverðtryggð lán í íslenskum krónum. Hvernig lækkar höfuðstóllinn og hversu mikið? Miðað er við leiðréttingu á höfuðstól þannig að hann sé svipaður og hann var 29. september 2008. Lækkun erlendra húsnæðislána verður um 25% að meðaltali miðað við stöðu gengis 26. okt. 2009. Sjá dæmi á mynd A. Hvað verður um lánið mitt? Lánið breytist í óverðtryggt húsnæðislán með 25 eða 40 ára lánstíma. Hverjir verða vextirnir? Hægt verður að velja á milli breytilegra og fastra vaxta. Breytilegir vextir í dag skv. vaxtatöfl u eru 9,5%. Boðið verður upp á stiglækkandi afslátt frá þeim. Miðað við óbreytt vaxtastig þá yrðu vextir fyrsta árið 7,5% sem er vaxtaafsláttur upp á 2 prósentustig. Einnig er boðið upp á fasta vexti til þriggja ára sem í dag eru 9,0% að teknu tilliti til afsláttar. Get ég lækkað greiðslubyrðina á láninu mínu? Já, hægt er að sækja um greiðslujöfnun á óverð- tryggða láninu í þrjú ár, sem í fl estum tilfellum lækkar greiðslubyrði lánsins umtalsvert. Að þremur árum liðnum hefur viðskiptavinur val um hvort haldið sé áfram í greiðslujöfnun eða ekki. Dæmi um lækkun á greiðslubyrði má sjá á mynd B. Hversu mikið lengist lánið í greiðslujöfnun? Það er óvíst en greiðslujöfnun ofan á höfuðstólsleið- réttingu hefur ekki þak á lengingu lánstíma. Hvenær get ég sótt um höfuðstólsleiðréttingu? Byrjað verður að taka á móti umsóknum 6. nóvember 2009 og verður hægt að sækja um til og með 18. desember 2009. Hverjir geta sótt um? Allir viðskiptavinir Íslandsbanka með erlend húsnæðis lán sem voru tekin fyrir 15. október 2008. Lánið þarf að vera í skilum. Hentar þessi lausn öllum? Nei, hver og einn þarf að vega og meta kosti og galla þess að breyta láni sínu með þessum hætti. Þessi lausn hentar sumum betur en öðrum en einna helst þeim sem hyggjast selja eign sína eða greiða upp húsnæðislán sitt á næstu misserum. Mun þetta kosta viðskiptavini eitthvað? Skilmálabreyting kostar kr. 5.500 auk þinglýsingar- gjalds en lántöku- og stimpilkostnaður er enginn. Íslandsbanki hvetur alla til að kynna sér þá kosti sem í boði eru og taka ákvörðun að vandlega athuguðu máli. Reiknivél, dæmi og ítarlegri upplýsingar er að fi nna á www.islandsbanki.is Þú getur lækkað höfuðstólinn á erlendu húsnæðisláni Höfuðstóll – erlend lán* Höfuðstóll nú Höfuðstóll eftir leiðréttingu 20.000.000 15.000.000 Næsta greiðsla* Greiðslubyrði nú Greiðslubyrði eft ir leiðréttingu og með greiðslujöfnun Greiðslubyrði eft ir leiðréttingu 106.000 102.000 92.000 * m.v. 20.000.000 kr. lán til 40 ára í hefðbundinni myntkörfu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.