Fréttablaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 41
MÁNUDAGUR 2. nóvember 2009 25
Enska úrvalsdeildin
Arsenal-Tottenham 3-0
1-0 Robin van Persie (42.), 2-0 Cesc Fabregas
(43.), 3-0 van Persie (60.).
Bolton-Chelsea 0-4
0-1 Frank Lampard (45.), 0-2 Deco (61.), 0-3
sjálfsmark (83.), 0-4 Didier Drogba (90.). Grétar
Rafn Steinsson var á varamannabekk Bolton.
Burnley-Hull 2-0
1-0 Graham Alexander (20.), 2-0 Alexander (77.).
Jóhannes Karl Guðjónsson var á bekk Burnley.
Everton-Aston Villa 1-1
1-0 Diniyar Bilyaletdinov(45.),1-1 John Carew(47.)
Fulham-Liverpool 3-1
1-0 Bobby Zamora (24.), 1-1 Fernando Torres
(42.),2-1 Erik Nevland(73.),3-1 Clint Demsey(87.)
Portsmouth-Wigan 4-0
1-0 Aruna Dindane (35.), 2-0 Frederic Piquionne
(45.), 3-0 Dindane (64.), 4-0 Dindane (90.)
Stoke-Wolves 2-2
1-0 sjálfsmark (17.), 2-0 Matthew Etherington
(44.), 2-1 Jody Craddock (47.), 2-2 Craddock (64.)
Sunderland-West Ham 2-2
0-1 Guillermo Franco (30.), 0-2 Carlton Cole
(36.), 1-2 Andy Reid (39.), 2-2 K. Richardson(76.)
Manchester United-Blackburn 2-0
1-0 Dimitar Berbatov(55.), 2-0 W. Rooney (87.)
Birmingham-Manchester City 0-0
Enska b-deildin
Coventry-Reading 1-3
Aron Gunnarsson var í byrjunarliði Coventry og
Gylfi Þór Sigurðsson í byrjunarliði Reading
en Brynjar Björn Gunnarsson sat á bekknum.
Middlesbrough-Plymouth 0-1
Kári Árnason lék allan leikinn með Plymouth.
Peterborough-Barnsley 1-2
Emil Hallfreðsson lék ekki með Barnsley.
WBA-Watford 5-0
Heiðar Helguson kom inn á sem varamaður hjá
Watford.
Skoska úrvalsdeildin
Motherwell-Hearts 1-0
Eggert Gunnþór Jónsson hjá Hearts fékk rautt
spjald á 71. mínútu í stöðunni 1-0.
St. Johnstone-Falkirk 3-1
Kjartan Finnbogason lék allan leikinn f. Falkirk.
Spænska úrvalsdeildin
Real Madrid-Getafe 2-0
1-0 Gonzalo Higuain (53.), 2-0 Higuain (56.).
Osasuna-Barcelona 1-1
0-1 Seydou Keita (73.), 1-1 sjálfsmark (90.+3)
Xerez-Sevilla 0-2
0-1 Alvaro Negredo (42.), 0-2 Luis Fabiano (90.).
Ítalska úrvalsdeildin
Juventus-Napoli 2-3
1-0 David Trezeguet (35.), 2-0 Sebastian Giovinco
(55.), 2-1 Marek Hamsik (58.), 2-2 Jesus Datolo
(64.), 2-3 Hamsik (81.).
AC Milan-Parma 2-0
1-0 Marco Borriello (12.), 2-0 Borriello (90.).
Roma-Bologna 2-1
0-1 Adailton (32.), 1-1 Mirko Vucinic (35.), 2-1
Simone Perrotta(52.)
Livorno-Inter 0-2
0-1 Diego Milito (49.), 0-2 Maicon (80.).
Sænska úrvalsdeildin
Halmstad-GAIS 1-3
Hallgrímur Jónasson skoraði þriðja mark GAIS og
Eyjólfur Héðinsson lagði upp annað mark liðsins.
Jónas Guðni Sævarsson lék með Halmstad.
Elfsborg-Helsingborg 1-0
Helgi Valur Daníelsson lék með Elfsborg og
Ólafur Ingi Skúlason lék með Helsingborg.
Gautaborg-AIK 1-2
Hjálmar Jónsson, Ragnar Sigurðsson og Theodór
Elmar Bjarnason léku með Gautaborg.
Norska úrvalsdeildin
Brann-Rosenborg 1-1
Kristján Örn Sigurðsson, Ólafur Örn Bjarnason og
Birkir Már Sævarsson voru í byrjunarliði Brann en
Gylfi Einarsson kom inn á sem varamaður.
Sandefjord-Stabæk 1-3
Pálmi Rafn Pálmason kom inn á sem varamaður
hjá Stabæk.
Molde-Lilleström 3-0
Stefán Logi Magnússon var í liði Lilleström.
Bodö/Glimt-Odd 1-1
Árni Gautur Arason var í liði Odd.
Lyn-Fredrikstad 0-5
Garðar Jóhannsson skoraði þriðja mark Fredrik
stad og lagði upp annað markið.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Arsenal, Chelsea og
Manchester United unnu góða
sigra í ensku úrvalsdeildinni um
helgina en Liverpool tapaði illa.
Arsenal og Tottenham mættust
í stórleik helgarinnar á Emirates-
leikvanginum en tvö mörk Arsen-
al með skömmu millibili í lok fyrri
hálfleik komu liðinu í kjörstöðu.
Robin van Persie opnaði marka-
reikninginn fyrir Arsenal á 42.
mínútu og Cesc Fabregas bætti við
öðru marki skömmu síðar þegar
hann stal boltanum af leikmönn-
um Tottenham og óð upp völlinn og
skoraði glæsilegt mark. Van Persie
innsiglaði svo sigur heimamanna
með þriðja markinu.
Knattspyrnustjórinn Arsene
Wenger var ánægður í leikslok.
„Hef ég trú á því að við getum
unnið deildina? Já, ég hef trú á því.
Ég sagði það fyrir tímabilið og ég
segi það enn nú að við erum með
nógu góðan hóp til þess að vinna.“
Chelsea og United áttu einn-
ig náðuga helgi þar sem Chelsea
vann 0-4 sigur gegn Bolton á Ree-
bok-leikvanginum og Manchest-
er United vann 2-0 sigur á Black-
burn en staðan var 0-0 í hálfleik á
Old Trafford. Knattspyrnustjórinn
Sir Alex Ferguson hrósaði sínum
mönnum fyrir þolinmæðina.
„Við vissum að við þyrftum að
vera þolinmóðir og við höfum
sem betur fer reynsluna til þess
að verða ekki stressaðir þó svo að
fyrsta markið láti bíða eftir sér.“
Knattspyrnustjórinn Rafa Ben-
itez var vitanlega ekki eins glaður
eftir að hafa horft upp á sína menn
í Liverpool tapa 3-1 gegn Fulham
á Craven Cottage-leikvanginum
þar sem tveir leikmenn Liverpool,
Philipp Degen og Jamie Carrag-
her, fengu rautt spjald. „Þetta
var óneitanlega mjög svekkjandi
því það var bara eitt lið á vellin-
um áður en þeir skoruðu sitt fyrsta
mark. Það sama gerðist í raun og
veru aftur í síðari hálfleik. Þeir
komust yfir á nýjan leik eftir að
við höfðum yfirspilað þá.“ - óþ
Arsenal, Chelsea og Manchester United með sigra en Liverpool missteig sig illa:
Við getum unnið deildina
MARKASKORAR Cesc Fabregas hafði ærna ástæðu til þess að fagna glæsilegu marki
sínu gegn Tottenham. Með honum á myndinni er Robin van Persie sem skoraði hin
tvö mörk Arsenal í leiknum. NORDIC PHOTOS/AFP