Fréttablaðið - 02.11.2009, Side 46

Fréttablaðið - 02.11.2009, Side 46
30 2. nóvember 2009 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HVAÐ SEGIR MAMMA? LÁRÉTT 2. fangi, 6. umhverfis, 8. sjáðu, 9. útdeildi, 11. í röð, 12. étur allt, 14. einkennis, 16. vörumerki, 17. hár, 18. kvenkyns hundur, 20. samtök, 21. laun. LÓÐRÉTT 1. endast, 3. klaki, 4. smjaðra, 5. hlemmur, 7. land í SA-Asíu, 10. fálæti, 13. efni, 15. áfall, 16. stykki, 19. mun. LAUSN LÁRÉTT: 2. gísl, 6. um, 8. sko, 9. gaf, 11. jk, 12. alæta, 14. aðals, 16. ss, 17. ull, 18. tík, 20. aa, 21. kaup. LÓÐRÉTT: 1. duga, 3. ís, 4. skjalla, 5. lok, 7. malasía, 10. fæð, 13. tau, 15. slag, 16. stk, 19. ku. „Þetta er alveg á pari við kúa mykj- una sem við köfuðum ofan í í Hús- dýragarðinum hérna um árið,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, sjónvarps- maður og kvikmyndastjarna. Hann fór ásamt félaga sínum, Auðuni Blöndal, á bæinn Tannstaðabakka í Hrútafirðinum og kynnti sér hvern- ig daglegt líf íslenskra bænda fer fram. Afraksturinn verður sýnd- ur í þætti þeirra en hápunkturinn var eflaust þegar Auðunn og Sverr- ir fengu að sæða belju. „Þetta er mjög sérstakt ferli, mennirnir sem eru að vinna í þessu dags daglega eru eldsnöggir og fyrir þá er þetta náttúrlega ekkert mál.“ Sama verð- ur ekki sagt um borgarbörnin þótt sjónvarpsmennirnir tveir hafi borið sig nokkuð vel miðað við aðstæður. Sverrir útskýrir að menn þurfi að ganga í skugga um að endaþarmur beljunnar sé alveg hreinn. „Þú ferð með hendina alveg inn og þarft að kafa nokkuð djúpt,“ segir Sverrir og bætir því við að beljan hafi sýnt Auðuni nokkurn áhuga. „Eina skipt- ið sem beljan sýndi sælusvip var þegar Auðunn gerði þetta. Hann kom sjálfum sér annars nokkuð á óvart því hann er nú þekktur fyrir að vera ekkert mikið fyrir ógeðs- lega hluti en kláraði þetta.“ Annars fannst sjónvarpsmann- inum magnað að taka á móti þrett- án þúsund lifandi kjúklingum sem voru fluttir í bæinn með sendiferða- bíl en hreifst mest af rollunum. „Ég er mikill kindamaður, þær eru svo- lítið eins og mannfólkið, finna sér forystusauð og elta hann alveg út í eitt. Sjálfur myndi ég hins vegar aldrei vilja vera kind en ég skil núna af hverju Bjarni Ármanns er alltaf hangandi uppi í sveit, það er voðalega gott að komast frá amstri dagsins.“ Skúli Einarsson, staðarhaldari á Tannstaðabakka, var nokkuð sátt- ur við það sem hann sá til strák- anna þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Þeir hafi verið reiðu- búnir að prófa allt. Hann taldi þá vel geta plummað sig sem bænd- ur. „Þeir eru svo miklir félagar og þekkja hvor annan svo vel að þetta starf ætti ekkert að flækjast fyrir þeim,“ segir Skúli. freyrgigja@frettabladid.is SVERRIR ÞÓR: FÉKK AÐ KYNNAST ÍSLENSKRI SVEITASÆLU OG LÍKAÐI VEL Sælusvipur á beljunni þeg- ar Auddi Blö sæddi hana AÐ SÆÐA BELJU Sverrir hreinsar endaþarminn á belju í Hrútafirði áður en sæðinu er sprautað inn í leg hennar. Endaþarmurinn verður að vera alveg hreinn áður en þetta er gert. Skúli bóndi fylgist grannt með að allt sé gert á réttan hátt. Til hliðar er Auddi en beljan hreifst mjög af honum að sögn Sveppa. Páll Tómas Finnsson er ein helsta stjarnan í Evrópu þegar kemur að áströlskum fótbolta. Hann hefur stundað íþróttina í tæp fimmtán ár, fyrst í Dan- mörku við góðan orðstír og nú í Frakklandi. Páll hefur náð því afreki að leika með þremur lands- liðum í íþróttinni, því danska, franska og síðast því íslenska. Páll er nú búsettur í París, er fyrirliði liðsins í borginni og varð nýverið Frakklands- meistari. Hart er sótt að honum að sækjast eftir kjöri forseta Evrópusambands ástralsks fótbolta á stofnfundi þess sem haldinn verður í Frankfurt í janúar á næsta ári. Páll er hógvær þegar þetta er hermt upp á hann, að hann sé ein helsta stjarnan í þess- ari harðskeyttu íþróttagrein. „Ég spilaði í Skandinvavíu lengi og hef því kynnst mjög mörgum enda er þetta tiltölulega ung íþrótt í Evrópu. Maður er því far- inn að kannast við ansi marga í kring- um þetta,“ segir Páll. Bróðir Páls, Jón Hrói Finnsson, kynnti hann fyrst fyrir íþróttinni í Dan- mörku og hann kolféll strax fyrir henni. „Hún hefur leikið ansi stórt hlutverk í veigamiklum ákvörðun- um sem ég hef tekið. Það fyrsta sem ég gerði þegar ég flutti frá Danmörku til Parísar var til að mynda að athuga hvort borgin væri ekki örugglega með lið í áströlskum fótbolta,“ útskýrir Páll. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir helgi er í kringum tuttugu manna hópur sem æfir íþróttina hér á landi og Páll segist vera ákaflega sáttur við það sem hann hafi séð til drengjanna. „Ég held að þessi íþrótt geti alveg slegið í gegn hér. Þeir sem hafa æft handbolta hafa náð mjög fljótt góðum tökum á henni og er hún ekki þjóðaríþróttin okkar?“ - fgg Stjarna í áströlskum fótbolta KOLFÉLL FYRIR ÍÞRÓTTINNI Páll Tómas hefur afrekað að leika með þremur mismunandi landsliðum í áströlskum fótbolta. „Hann Rökkvi er fyrst og fremst að verða pabbi á hverri stundu og ég veit að hann verður góður pabbi því hann hefur alltaf verið góður við lítil börn. Þetta er lítil Laufey og við bíðum bara eftir að hún komi í heiminn.“ Harpa Karlsdóttir, móðir Rökkva Vésteins- sonar skemmtikrafts. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki „Ég er búinn að bjóða þeim – ég myndi vilja fá þá á námskeið. Það þurfa allir á þessu að halda,“ segir vaxtarrækt- artröllið Magnús Þór Samúelsson og á þar við aðra risa; próteinbarónana Arnar Grant og Ívar Guðmunds. Magnús og Olga Ósk Ellertsdóttir, kærasta hans, standa fyrir vikuleg- um pósunámskeiðum fyrir vaxtar- ræktarfólk í World Class. Arnar og Ívar hafa ekki enn þá mætt á nám- skeið, en Magnús býst við að þeir mæti á endanum. Er ekki nóg að vera vöðvastæltur, þarf maður að læra að beita byssun- um? „Já, massaðasti maðurinn getur verið minnsti maðurinn á sviðinu, ef hann kann ekki að sýna vöðvana,“ segir Magnús Þór. „Menn læra að sýna það besta sem þeir hafa og fela gallana.“ Magnús Þór og Olga Ósk taka að sér hvort sitt kynið, hann sér um strákana og hún sér um stelpurnar. „Hún kennir þeim labbið og stöð- una sem stelpurnar þurfa að læra ásamt ráðleggingum um bikiní og annan klæðnað,“ segir hann. „Strák- arnir eru aðeins flóknari, það þarf að hnykla vöðvana rétt. Það eru sjö skyldustöður sem þarf að taka og svo er rútína – ég fer yfir hana líka.“ Magnús segir að allir sem ætli að keppa í vaxtarrækt njóti góðs af nám- skeiðinu, byrjendur og lengra komnir. „Það er alltaf hægt að betrumbæta. Ég sé kannski eitthvað sem keppend- urnir sjá ekki sjálfir,“ segir hann. - afb Býður Arnari og Ívari á pósunámskeið SVONA Á AÐ GERA ÞETTA Olga og Magnús Þór standa fyrir vikulegum pósu- námskeiðum í World Class. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Verðlaunahöfundurinn Erling Jepsen var beð- inn um að mæla með fjórum bókum sem allir ættu að lesa á vef Gyldendal-for- lagsins. Jepsen þessi varð stórstjarna í Danmörku þegar bók hans Listin að gráta í kór kom út en hún varð seinna kveikjan að samnefndri kvikmynd. Jepsen velur meðal annars Fávit- ann eftir Dostojevski og Rokland eftir Hallgrím Helgason. Leikstjóri kvikmyndarinnar Jóhann- es, Þorsteinn Gunn- ar Bjarnason, og aðstandendur Algjörs svepps eru vafa- lítið farnir að kæla kampavínið. Allt sem Laddi snertir virðist breytast í gull og hið sama á aug- ljóslega við um Sveppa. Jóhannes braut 20 þúsund gesta múrinn á miðvikudagskvöldið og Algjör sveppur og leitin að Villa náði því takmarki að fá þrjátíu þúsund gesti um helgina. Tökur á Áramótaskaupi Ríkissjón- varpsins hefjast í vikunni. Gunnar Björn Guðmundsson leikstjóri hefur haldið mikilli leynd yfir verk- efninu en þó er vitað að mikið er lagt í smíðavinnu og hafa ham- arshljóð ómað um Efstaleitið öll kvöld. Leikhópurinn er smám saman að skríða saman þótt hann hafi ekki verið gerður opinber en sam- kvæmt heimild- um Fréttablaðsins munu einhverjir ungleikarar þreyta frum- raun sína að þessu sinni. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1. Um 1.100 manns. 2. 100 milljarða evra. 3. Stjörnuna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.