Ljósberinn - 01.11.1944, Blaðsíða 23

Ljósberinn - 01.11.1944, Blaðsíða 23
ljósberinn 159 að, en þess vegna fer þeim líka vel fram“, svaraði gamla konan. Hún stóð fyrir framan rósatré, er bar tvær gular rósir. Onnur var útsprungin, en hin var enn þá knappur. Hún sleit hina síðarnefndu af og gaf Ingu hana. „Kærar þakkir. En er það ekki synd, að slíta knappinn af?“ „Blómin eru til þess að gleðja, og þar sem þú sjálf enn þá ert knappur, fannst niér það eiga svo vel við, að gefa þér þenna knapp. Hann springur út og visn- ar síðan. En hvað gerir það til, ef hann getur vakið gleði með liinu stutta lifi sínu“. Það lá eitthvað sérstakt í orðum gömlu konunnar og Inga skildi það. En hún gerði aðra kröfu til lífsins. „Maður lifir þó líklega til að njóla gleðinnar líka“, sagði liún. „Það er til tvenns konar gleði: hin forgengilega og hin óforgengilega“, sagði gamla konan. Inga reigði höfuðið þrjózkulega, því hún skildi það vel, að sú von er spádóni- urinn lét rætast, var einmitt vonin um forgengilega gleði. Hin óforgengilega gleði hafði ekkert aðdráttarafl fyrir hana. Gamla konan stóð þarna meðal blóm- anna sinna og liorfði á Ingu með hinu glaðlega og blíða augnaráði sínu. „Þegar þú hefur komist að raun um að sú gleði, sem þú nú sækist svo mjög eftir, er forgengileg, þá mundu það, að til er óforgengileg gleði og leitaðu lienn- ar“. Inga flýtti sér að kveðja, því henni var ekki mikið gefið um áminningar. Hún þakkaði aftur fyrir rósina og hélt svo af stað heimleiðis gegnum skóginn. Það var PÁLL JÓNSSON ÁRDAL: I fyrsta hausthretinu. Nú syrtii■ í álinn, og svífur að él með svalköldum noróangjósti, og blómgrösin fellir hin harölynda Hel; þau hallast að mó'Surbrjósti. Nú dauft er að líta yfir blásvellin ber og blómreitinn auóan, kalinn. En — sœtt er að hvílast, er sumariS þver og sólin er éljum falin. Hi<5 fegursta blóm á viö skafrenningsskafl liér skiptist, sem lán og nauóin, og Ijósið og svartnœttió leika sitt tafl, og lífinu skákar dau’ðinn. Til hamingju náttúran bœtur oss bjó þótt blómreidnn sjáum auðan, á endanum lífinu efalaust þó mun auðnast að sigra daupann. Þótt blómgrösin deyi, þau felt hafa frœ, sem frjóvgast á nœsta vori, og fjölmargur lífsneisti felst undir snœ og fjárafl í dauðans spori. komið kvöld og farið að skyggja. Inga gekk sem í draumi, hugsandi um spádóm- inn, sem þó hafði þegar misst mikið af ljóma sínum. En seinna, löngu eftir að hún hafði gleymt honum, komu henni í hug síðustu orð gömlu konunnar, um liina óforgengilegu gleði. Því sannleiks- orð eru varanleg, þó innantóm orð verði að engu. O. K. (Lögberg).

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.