Ljósberinn - 01.11.1944, Page 25

Ljósberinn - 01.11.1944, Page 25
ljósberinn 161 „En getur allt vatnið allt af fengið framrás gegnum gatið?“ spurði ég. „En ef of mikið vatn kemur niður eftir, þá flæðir það hér yfir?“ „Þvaður!“ svaraði frændi stuttaralega. í5Ég hef unnið hér í þrjátíu ár og hér hefur aldrei komið flóð“. Við vorum nú komnir til þess staðar í námunum, þar sem hann vann, og þeg- ar vagninn hafði verið fylltur með kol- nm, kenndi hann mér, hvernig ég ælti að ýta honum þangað, sem vögnunmn væri lyft upp. Vinnan var létt, en mér fannst það undarlegt, að ýta vögnunum í dimmum göngunum, án annarrar birtu en frá litla lampanum mínum og án þess að heyra önnur hljóð en tilbreytingarlaus hamarshöggin. Þannig leið dagurinn til kvölds. Flestir verkamennirnir höfðu yf- ^rgefið námuna, og við vorum í þann veg- lrui að fara. Ég var búinn að fylla vagn- mn og var kominn með hann gegnum fyrsta ganginn, þegar ég heyrði hræðí- ^egan dyn^ Það var sem þrumu hefði sleg- ið niður. Skelfdur stóð ég andartak kvrr °g hlustaði. Dynur hélzt við, og ég gat greinilega heyrt undarlegt hljóð, sem í rennandi vatni eftir gólfinu. Ég tók lamp- ann og lýsti á gólfið. Við fætur mína streymdi vatnið með ógurlegum þunga; hraðar og hraðar ultu öldurnar og hærra °g hærra steig vatnið. Ég flýtti mér aftur Þ1 Kasper frænda. Hann beið og var að tala við nokkra námumenn, sem þang- að höfðu komið, þegar þeir heyrðu dyn- inn. „Það er vatn í námunni“, hrópaði ég ^ueð andann á lofti. Allir hlustuðu andartak, hávaðinn varð Hieiri og meiri. „Guð varðveiti okkur“, sagði Kasper frændi. „Þetta hlýtur að vera í ánni, sem hefur flætt inn í námuna. En hvernig getur á því staðið?“ „Hún hefur brotið sér göng“, sagði einn af námumönnunum. „Vatnið lilýtur þá að liafa stigið svo hátt, að það flæðir inn um öll þrjú stóru göngin“, svaraði frændi, „þau hafa allt af legið of lágt“. Vatnið steig hratt, það náði okkur þeg- ar upp að hnjám. „Það er úti um okkur“, sagði annar námumaður. „Ekki ennþá“, svaraði Kasper frændi, „áfram að opinu!“ „Að opinu, að opinu!“ hrópuðu allir og í miklum æsingi fylgdu þeir frænda eftir, en hann liljóp á undan. Opið var há hvelfing, sem hafði mynd- ast við jarðsig. Annars vegar var kletta- helti, og þar leituðum við liælis. Stein- arnir voru ósléttir svo það var ekki erf- itt að klifra upp eftir þeim. Vatnið vall fram undir fótum voriun; það steig stöð- ugt, og ef það næmi ekki staðar, áður en það næði til okkar, vorum við dauðan- um ofurseldir. Við þrýstum okkur þétt hverjir að öðrum. Það var þröngt um okkur, og við urðum að hafa gát á okkur, ef við ált- um ekki að hrapa ofan í. Óttaslegnir fylgdumst við með því hvernig vatnið steig. „Börnin mín!“ sagði Kasper frændí, og rödd hans varð hærri í hinni djúpu þögn. „Börn! Við verðum að búa okkur undir dauðann. Eftir tíu mínútur hefur vatnið skolað okkur burtu. Við skuluin biðja“.

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.