Ljósberinn - 01.12.1955, Side 10

Ljósberinn - 01.12.1955, Side 10
um hætti stundum til að koma heim í fötum sínum, einkum buxunum, illa förnum eftir riðl sitt á húsþökum, görðum og girðingum, en hann lofaði statt og stöðugt bót og betrun og bað þá mömmu sína og Dóru gömlu afsökunar á aðförum sínum. Hann hugsaði mikið um æfintýralíf í fjarlægum löndum, og þegar pabbi eða mamma safnaði börnunum saman og sagði þeim frá kristniboðinu og ýmsum undraverðum atburðum, sem gerðust þar, ósk- aði Sveinn með sjálfum sér, að hann gæti ver- ið þar og varið kristniboðana fyrir villidýr- um og villimönnum. En þá þurfti hann að hafa góða byssu meðferðis. Afi varð líka öldungis forviða, er Svenni, blóðrjóður í kinnum, óskaði sér að fá byssu í jólagjöf, — reglulega byssu, sem hægt væri að drepa ljón með. — Systkinin ráku upp skellihlátur og afi gat ekki varist því að hlæja með þeim. En hann gat ekki orðið við þessari ósk Svenna, og það þó að hann fengi að vita tilgang og ástæður fyrir henni. Komu þeir sér þá saman um, að góður litakassi mundi henta betur. Eiríkur litli hafði mikinn áhuga fyrir garð- yrkju og honum var heitið skóflu og hjól- börum við hans hæfi. Og nú var röðin kornin að Jóni litla. Hann leit með trúnaðartrausti hálffeimnis- lega á afa sinn og hvíslaði að honum: — Mig langar mest að fá Biblíu með stóru letrí og góð gleraugu. , Einhvern veginn heyrðu systkini hans hverju hann hvíslaði að afa sínum og varð þá heldur en ekki ys og pískur þeirra á milli. — Hvað ætlar þú að gera við gleraugun? spurði Steini. — Heldurðu, að þú getir lesið, ef þú setur á þig gleraugu? sagði Eiríkur, sem var dálítið montinn yfir nýfenginni lestrarkunnáttu sinni, og þannig héldu þau áfram að spyrja hvert af öðru. Afi gat jafnvel ekki að sér gert að brosa að þessari einkennilegu ósk hins sex vetra sveins, en þegar honum varð litið á skjálfandi varir drengsins og tárin í augum hans, tók hann drenginn blíðlega á hné sér, strauk ljósa hárið frá enni hans og spurði: — Hvað ætlar þú að gera við þetta? Þú getur ekki lesið enn. Þá fór Jón litli að skæla. — Já, — en — ég ætlaði — að gefa — hon- um — Andrési — gamla það------------- Nú varð afi alvarlegur í bragði. — Það er allt annað mál, litli vinur minn. Þá skaltu sannarlega fá bæði Biblíuna og gler- augun. En segðu mér annars hver þessi Andrés gamli er. — Hann á heima . . ., sagði Steini, en afi tók fram í fyrir honum: — Nei, hann Jón litli á að segja mér frá því. — Já, — Jón litli andvarpaði og reyndi að stöðva snöktið, — já, hann býr hjá syni sín- um inni í skóginum. Hann átti svolítið hús sjálfur, en það brann og þá brann Biblían hans líka og gleraugun. En hann er svo fá- tækur, að hann getur ekki keypt sér það aft- ur honum þykir það svo leitt. , Afi kyssti drenginn á ennið og mælti: — Og nú vill Jonni minn enga jólagjöf frá mér handa sjálfum sér, heldur gleðja aðra með henni. Þú skalt sannarlega fá reglulega stóra Biblíu og beztu gleraugun, sem ég get fundið. Ég fer í kaupstaðinn á morgun með honum pabba þínum, og þá skal ég kaupa þetta allt. Jón litli andvárpaði af ánægju yfir þess- um málalokum, og það lá við að hin börnin færu hjá sér, er þau þökkuðu afa og gengu út. Síðdegis daginn eftir heyrðist loksins lang- þráður bjölluhljómur, þegar tveir sprækir klárar komu í ljós með sleðann í eftirdragi. Það hrikti ískyggilega í dyraþrepunum, þegar öll börnin ruddust út á þau. Hver böggullinn öðrum stærri var borinn inn í húsið, en engan þeirra mátti opna fyrr en á aðfangadagskvöld. -— Hvar er Jón litli? spurði afi, er hann var kominn úr loðkápunni. Jón kom skjótt í ljós, og pabbi hans faðm- aði hann að sér með óvenjulegri blíðu, því að hann fékk að heyra söguna um Biblíuna og gleraugun í kaupstaðarferðinni. Honum var það mikið gleðiefni, að litli drengurinn hans skyldi þegar á barnsaldri afneita sjálf- um sér til þess að geta glatt aðx-a. Jón litli var andlega bráðþroska, og niá vel vera, að seinþi'oski líkamans hafi átt sinn þátt í því, að hann hugsaði meira en títt er um börn á hans aldri. Biblíumyndir og frásögur úr Bibli- 118 LJ ÓS BERINN

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.