Ljósberinn - 01.12.1955, Qupperneq 11

Ljósberinn - 01.12.1955, Qupperneq 11
unni var yndi hans og eftirlæti, og þegar pabbi hans eða mamma áttu tómstund, bað hann þau ávallt um að segja sér frá Jesú, englun- um eða helgum mönnum Ritningarinnar. Þegar lokið var við að drekka síðdegiskaff- ið, gekk afi inn í herbergið sitt og sótti þang- að einn böggulinn. Jón litli stóð hjá, rjóður og eftirvæntingarfullur, á meðan leyst var utan aí bögglinum. Þegar Biblían, stór og falleg, kom loks í Ijós, rak hann upp fagnaðaróp. Hánn leit á hana, og svo mikið sá hann og skildi, að letrið á henni var stórt og skýrt. Svo komu gleraugun til viðbótar, og ákafinn var svo mikill, að hann gat varla beðið næsta dags með að færa Andrési gamla gjafirnar. En móðir hans sýndi honum fram á, að það væri of framorðið og dimmt úti til að fara með það nú. — En þú færð að fara með gjaf- irnar frá jólabarninu til Andrésar gamla á morgun, sagði hún. Morguninn eftir, á aðfangadaginn, var blítt og gott veður sem betur fór. Þegar hestun- um var beitt fyrir sleðann, lá við að hin börn- in öfunduðu Jón litla, er þau sáu hann leggja af stað, ásamt afa og mömmu, með böggulinn sinn í fanginu. Þau voru alllengi á leiðinni til Andrésar gamla, en þegar þangað var komið, knúði mamma dyra. Tengdadóttir gamla mannsins lauk upp fyrir þeim og bauð þeim að ganga í bæinn. Þau gengu svo öll inn, ásamt Pétri, ökumanninum, sem hafði stóra körfu, með margskonar jólagóðgæti, meðferðis. Pétur setti hana frá sér innan við dyrnar og hélt svo út til hesta sinna aftur. Inni var allt fágað og hreint, reglulega jólalegt um að litast, þó að fátæklegt væri. Andrés gamli sat við borðið með stóra sálmabók í hendinni. Við hlið hans sat sonardóttir hans og las jóla- sálma hátt fyrir afa sinn. Þau risu bæði á fætur fagnandi, er þau sáu að það var prests- konan, sem komin var. Það var auðséð, að Jón litli og mamma hans voru þar kærir gest- u- og velkomnir. — Góðan dag, Andrés minn, sá'gði frúin, við erum komin hingað, hann Jón litli og hann faðir minn elskulegur, til þess að. óska ykkur öllum gleðilegra jóla og friðar frá Jesú Kristi á heilagri jólahátíð. Og svo er drengurinn litli með dálitla jólagjöf handa þér. — Jólagjöf handa mér! anzaði Andrés undr- andi. Jón litli beið í mikilli eftirvæntingu á með- an gamli maðurinn leysti utan af bögglinum með stirðum fingrum. Loks var því lokið. — Biblía! — Guðs eigið, blessaða orð! —- Jafn stór og gamla Biblían mín var! varð Andrési gamla að orði. — Og hérna er ég með gleraugu handa þér Mka, svo að þú getir séð til að lesa, sagði Jón litli. Gamli maðurinn lét á sig gleraugun með skjálfandi höndum, lauk svo upp bókinni og las: „Drottinn er minn hirðir. mig mun ekk- ert bresta.“ , Alger þögn ríkti í stofunni andartak, en svo tók Andrés af sér gleraugun og féllu þá stór tár niður vanga hans. — Nú get ég þá aftur lesið blessað orð Drottins sjálfur, sagði hann titrandi, klökkum rórni. Ég hefi þráð það, en Biblían hans sonar míns er með svo smáu letri, að ógerlegt hefir verið fyrir mig að lesa það, og sjaldan hefir nokkur haft tóm til að lesa fyrir mig. Ég þakka þér, Jón litli. Guð blessi þig um tima og eiMfð. — Hann afi minn gaf mér það, sagði Jón litli og Ijómaði af gleði. — Já, það er rétt, sagði þá afi hans, en hann vildi heldur fá BibMuna og gleraugun handa Andrési, en jólagjöf handa sér sjálfum. — Guð blessi hann! endurtók Andrés gamM og fleiri orðum gat hann ekki upp komið. Þá var tekið upp það, sem í körfunni var, og gladdi það fátæka fjölskylduna, eins og nærri má geta. Að svo búnu héldu þau afi og mamma og Jón litli heimleiðis. Fögnuður fyllti hjörtu þeirra yfir morgunverkinu, en ekki veit ég hvert þeirra var glaðast. Um kvöldið fékk Steini bókina sína, Gunn- hildur töskuna, Svenni litakassann og Eirikur garðyrkjuáhöldin, ásamt jólagjöf frá pabba og mömmu, sem þau öll fengu. En Jón litli varð að sætta sig við faðmlag og blessunaróskir afa og jólagjöf foreldranna, og virtist honum það auðvelt, því að hann var jafnglaður og kátur og hin börnin þessi jól. —----- ♦----- LJÓSBERINN 119

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.