Ljósberinn - 01.12.1955, Síða 22

Ljósberinn - 01.12.1955, Síða 22
í bankahólfinu. Það getur verið, að þeir kafni. Þér verðið að flýta yður. Þórður ætlaði að flýta sér af stað aftur, en lögregluþjónninn þreif í hann. — Bíddu svolítið, karl minn, og útskýrðu þetta betur. — Ég má ekki vera að því, þér verðið að sleppa mér! — Hvað heitirðu? — Þórður Smith, — má ég nú fara? Lögregluþjónninn sleppti takinu andartak, og Þórður notaði tækifærið. Hann þaut af stað eins og elding niður eftir götunni. Það væri ekki satt að segja, að Sívertsen hafi verið reiður, þegar Þórður loks kom aft- ur. Hann var blátt áfram viti sínu fjær. — Afsakið, herra Sívertsen, stamaði Þórð- ur, má ég útskýra málið? — Haltu þér saman, annars skal ég kreista úr þér líftóruna. Hann þreif í herðarnar á drengnum og hristi hann fram og aftur. Þórður hélt, að sín síðasta stund væri komin. Honum fannst allt hringsnúast fyrir sér og vissi hvorki upp né niður, er Sívertsen loksins sleppti honum. Þórður og mamma hans voru búin að borða jólagrautinn. Þau sátu yfir kaffi og kökum. Þá stóð mamma upp til að kveikja á jólatrénu. Það tók dálítinn tíma. Það voru svo mörg kerti á því. Þórður hafði keypt fullan kassa. — Er þetta ekki fallegt, Þórður? sagði hún, þegar því var lokið. — Ég er að koma, sagði Þórður, hann var eitthvað að bauka inn í skápnum. Þá kveður allt í einu við indæll kórsöngur: Syng með oss þakkarljóð, himnanna herskari , glaður, heill vorri fagna þú, englanna dýrlegi staður: dauðlegra láð dásama vegsami náð: Guðs sonur gjörzt hefur maður. — Hvað er þetta, Þórður? segir mamma með tárin í augunum. Útvarp, hvernig stend- ur á þessu? — Vertu nú róleg, mamma. — Nú skulum við hlusta. Fréttirnar eru að byrja. — Hérna koma fréttir, segir röddin i út- varpinu. Snemma í morgun var framið inn- brot í aðalbankann hér í bænum. Drengur, að nafni Þórður Smith, stöðvaði lögregluþjón á götunni og bað hann um að flýta sér í bank- ann. Drengurinn hvarf, en er komið var í bankann, fannst húsvörðurinn og starfslið hans bundið. Enginn hefur samt orðið fyrir alvarlegum meiðslum. Þjófarnir fundust lok- aðir inni í bankahólfinu. Þeir höfðu meðferðis mikið af peningum. Ein af þvottakonunum telur sig hafa séð dreng skella aftur hurðinni á bankahólfinu. Lögreglan biður nú þennan hugrakka dreng, að nafni Þórð Smith, að gefa sig fram á lögreglustöðinni. — Þórður, hrópaði mamma upp yfir sig, hefur þú, — nei, það getur ekki átt sér stað! — Jú, það var víst ég. Ég gat ekki annað gert, annars hefðu þjófarnir hlaupið á brott með alla peningana. Það, sem nú gerðist, var allt svo óvænt, að Þórður gat ekkert skilið í allri þeirri ham- ingju, sem hann varð aðnjótandi. Hann fékk borgaðar 5000 krónur í verð- laun, og auk þess — og það var enn þá meira virði — bauð bankastjórinn honum vinnu við bankann. Loks ætlaði bankinn að kosta Þórð til náms, svo að hann gæti unnið sig upp í bankanum. En þegar Sívertsen las fréttina í blöðunum, sagði hann við sjálfan sig og klóraði sér á bak við eyrað: — Nei, hafið þið nú heyrt annað eins. Þessi auli, þessi hengilmæna . . . hvefjum hefði dottið annað eins í hug? Jæja, það getur ann- ars vel verið, að hann geti orðið bankastjóri, þó að hann geti ekki verið sendisveinn! 130 LJOSBERINN

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.