Ljósberinn - 01.12.1955, Blaðsíða 26

Ljósberinn - 01.12.1955, Blaðsíða 26
 Myndin á veggnum SAGA EFTIR LARS RUSTB0LE rjvAV.1 Bjarni var duglegur drengur, og honum gekk líka ágætlega í skólanum. Hann var í 12-ára bekk og var duglegri í reikningi og móðurmáli en allir hinir í bekknum. En hann hafði einn stóran galla, og hann kom í ljós í hvert skipti, sem foreldrar hans báðu hann um eitthvað. Hann svaraði ónotum eða gretti sig og gekk sína leið án þess að gera það, sem hann var beðinn um. Mamma hans hafði áhyggjur út af drengn- um sínum og sárnaði reglulega, þegar vondi gallinn var á honum. Hún hefði víst heldur viljað eiga dreng, sem væri bæði skakkur og skældur, en dreng, sem hafði vondar verur í fylgd með sér. — Eigum við að semja um dálítið, sagði mamma dag nokkurn, þegar Bjarni var bæði vondur og ólundarlegur. Þú átt sparibauk, sem þú villt gjarnan fá nokkra fleiri aura í, og ég þarf helzt að láta negla nokkra nagla í vegginn. — Nagla! Ég skal negla þó að þú vildir hundrað, bara ef ég fæ peninga fyrir. Pabbi segir, að ég eigi að safna mér svo ég geti feng- ið nýja skauta fyrir jólin. — Það er skynsamlegt af þér. Þú getur grætt mikla peninga, því ég hef hugsað mér að gefa þér 10 aura fyrir hvern nagla; en þegar þú segir nei, þá tek ég og tæmi allt úr sparibyssunni þinni í ihinn vasa. Gengur þú að þessu? — Já, já! Drengurinn horfði á mömmu sína og augun leiftruðu af ákafa. — Komdu, þá skal ég sýna þér hvar þú átt að negla naglana. Mamma kom með stóran pakka með þriggja þumlunga nöglum og stóran hamar, svo fór hún með drenginn með sér inn í svefnher- bergið. — Þú átt að reka þá í vegginn fyrir ofan rúmið þitt. — Á að hengja nokkuð á þá? — Nei, þú átt að reka þá alveg á kaf. Haus- inn á nöglunum á að ganga alveg inn í við- inn. Heldurðu að þú getir þetta? — Uss, þetta er ekkert. í fyrra hjálpaði ég smiðnum, sem var að setja nýja gólfið í geymsluna. Þú hefðir átt að sjá alla naglana, sem ég negldi þá. Bjarni þreif í hamarinn og ætlaði að fara að byrja. — Bíddu dálítið, ég skal láta þig vita hve- nær þú átt að reka fyrsta naglann. Hún tók naglapakkann og hamarinn og lagði hann undir rúmið. Bjarni fór út aftur. Honum þótti þetta kyn- legt uppátæki. Af hverju vildi hún eyðileggja fallega, nýmálaða vegginn með öllum þessum nöglum? Hann gat ekki skilið, að mamma væri svo heimsk. Og af hverju vildi hún láta hann bíða?. Það leið heill klukkutími. Bjarni var ein- mitt að setja nýtt tagl á tréhestinn sinn, þeg- ar mamma hans kom og spurði hann hvort hann vildi gera svo vel og hjálpa henni við uppþottinn. — Nei, ég er engin stelpa. Hún Inga getur gert það. Hann leit til systur sinnar, sem sat við borðið og var að hekla. — Nú mátt þú reka fyrsta naglann, sagði móðir hans. Bjarni var ekki seinn á sér að hlýða. Hann rak naglann í vegginn svo að glumdi í öllu húsinu. Hann hvarf nærri því inn í viðinn, svo fast var slegið, en hamarinn skildi eftir ljótt far á málningunni. Mamma kom inn og leit á verkið. Bjarni stóð kyrr og klóraði sér í hnakkan- um. — Það varð dálítið ljótt far eftir síðasta hamarshöggið, en þú vildir að ég ræki hann alveg á kaf. — Já, já, þetta er reglulega gott. Næst verður þú að gera það eins vel, en reyndu að koma nöglunum eins þétt og mögulegt er í ferhyrning. — Hvað á ferhyrningurinn að vera stór? i:si LJQSBERINN

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.