Ljósberinn - 01.12.1955, Side 29

Ljósberinn - 01.12.1955, Side 29
Jesús tólf ára Þegar Jesús var orðinn tólf ára, tóku þau Jósef og María hann með sér á páskahátíð- ina í Jerúsalem. Er þau sneru heim að hátíðinni lokinni, varð sveinninn Jesús eftir í Jerúsalem, án þess að þau yrðu þess vör. Fóru þau eina dagleið og leituðu hans. Er þau fundu hann ekki, sneru þau aftur til Jerúsalem og leituðu hans. Eftir þrjá daga fundu þau hann á meöal lœrimeistaranna í musterinu. Þegar María sá hann, sagði hún: — Barn, hví gerðirðu okkur þetta? Hann sagði við þau: — Vissuð þið ekki, að mér ber að vera í því, sem míns föður er? Hann fór síð- an með þeim heim til Nazaret og var þiem hlýðinn. Jesús þroskaðist að vizku og vexti og náð hjá Guði og mönnum. — Vinur, svaraði faðir hans. Þú verður að flýta þér að sækja nautið. Það stóð ekki á að semdist með þeim. Kaupandinn greiddi út í hönd sextíu silfur- dali. Það var rneira eh Fú Benn hafði gert sér von um. Vang Lí vissi ekki hvaðan á'hann stóð veðr- ið. Hann fékk sig ekki til að trúa þvi, að búið væri að selja nautið. Hann stóð lengi í sömu sporum og horfði á eftir nianninum, sem nú hafði kvatt og gekki niðúr veg með nautið í taumi. Við fyrstu bugðu á veginum leit nautið við, horfði í átt til húsa og baulaði. Þá var Vang Lí öllum lokið. Hann hljóp inn i bambuslundinn og gaf tilfinningunum laus- an tauminn. Hann hafði hirt nautið og um- gengist síðan það ' var lítill kálfur, og ekki átt neinn betri vin og leikfélaga. Og nú fór ókunnur maður með það, og hann mundi aldrei framar sjá það, aldrei framar líta glað- an dag. Einhver kallaði á hann. Það var pabbi hans. L J □ S e E R I N N i:i7

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.