Ljósberinn - 01.12.1955, Qupperneq 33

Ljósberinn - 01.12.1955, Qupperneq 33
Þektcirðu jólaguðspjallið? 1. Hvenær og hversvegna tóku þau Jósef og María sig upp? 2. Hvert var ferðinni heitið? 3. Hvers vegna fóru þau einmitt þangað? 4. Hvers vegna lagði María barnið í jötu? 5. Hverjir fengu fyrstir að heyra um fæð- ingu barnsins? 6. Hver var boðskapur englanna? 7. Hve mörgum hafði Guð búið frelsi? 8. Hvar áttu hirðarnir að finna barnið? 9. Hverjir sungu fyrsta jólasálminn? 10. Hvernig hljóðaði fyrsti jólasálmurinn? Athugaðu hve fljótur þú ert að svara rétt þessum spurningum. Leggðu þær líka fyrir félaga þína. Svörin finnurðu í jólaguðspjallinu í Lúk. 2, 1.—14. Hvað mundir þú gera? — Þú færð eina eldspýtu. Með henni átt þú að kveikja á arninum, kerti og oliulampa, sem hangir uppi í lofti. Á hverju mundir þú kveikja fyrst? — Pyrst á kertinu, með kertinu á hinu hvoru tveggja. — Er það auðveldast? Gizkaðu á: 1. Hve þungt er höfuðið á flóðhesti? 100 kg? — 200 kg? — 300 kg? 2. Hve marga kílómetra getur fíllinn hlaupið á klukkutíma? 10 km? — 15 km? — 20 km? 3. Hve mörg vængjatök getur húsfluga tekið á mínútu? 13000? — 19000? — 25000? 4. Hve marga kílómetra getur örninn flogið á klukkutíma? 100? — 150? — 200? 5. Hver af þessum borgum er nyrst? New York? — Kanton? — Róm? 6. Hve lengi er hljóðið að berast frá Norður- pólnum til Suðurpólsins? 8 tíma? — 16 tíma? — sólarhring? Spurningar og svör: 1. Hvor hleypur hraðar, strúturinn eða sebra- dýrið? 2. Hver var „ljóti andarunginn"? 3. Hvor borgin er sunnar, Melbourne eða J óhannesarborg ? 4. Hver var það í fornöld, sem hljóp nakinn út á götu og hrópaði: — Hevreka? 5. Hvað hét „galdramaðurinn i Menlo Park“? 6. Hvert af þessum löndum er stærst að flat- armáli: Kanada, Brazilía eða Bandarikin? 7. Hvað er það, sem kallað hefur verið „skip eyðimerkur innar“ ? 8. Hvaða dýr sefur með höfuðið niður? 9. Hver sagði þetta og hvar: — Ráði Guð fyrir lífi mínu, en aldrei mun ég á flótta leggja? LJDSBERINN Krossgáta: Lárétt 1 karlmannsnafn, 7 kraftur, 8 gælu- nafn konu, 9 ekki gömul, 10 karlmannsnafn, 11 hraði, 13 ekki sjaldan, 14 eignast, 15 kraftur, 16 lífgjafi, 17 ekki að innan. Lóðrétt: 1 persónufornafn, 2 gamall ættingi, 3 tveir eins, 4 gælunafn karlmanns, 5 gælunafn karlmanns, 6 á siglutré, 10 göfug tilfinning, 11 útvega sér, 12 viðskipti, 13 ekki sjaldan, 14 hélt af stað, 15 tvíhljóði, 16 skammstöfun. Hvernig stóð á því? Smith á heima á 17 hæð i skýjakljúfi. Hann fer alla leið niður í lyftu á hverjum morgni. En þegar hann kemur heim á kvöldin, fer hann með lyftunni aðeins upp á 5. hæð og gengur síðan það, sem eftir er. Hvernig stendur á sliku háttarlagi? Dularfulla flaskan: Á opinn stútinn á tómri gosdrykkjaflösku skaltu setja einseyring. Pyrst skaltu aðeins væta stútinn. Síðan skaltu taka þétt utan um flöskuna með báðum höndum. Eftir dá- litla stund lifnar yfir einseyringnum. Hann fer að lyftast upp. Það er vegna þess, að loftið í flöskunni þenst út við hitann af höndunum á þér. Erfið lína: Settu tvo punkta á blað með 7—8 cm milli- bili. Reyndu síðan að draga beina linu á milli punktanna með því að horfa í spegil. Hver getur dregið beinasta línu? Bókin lyftist: Pétur leggur stóra og allþunga bók á borðið og segir: — Eg get lyft þessari bók upp með því að blása á hana með munninum. — Það væri gaman að sjá, svaraði Óli. Hann heldur, að Pétur sé að leika á sig. Pétur brosir og tekur stóran bréfpoka og leggur undir bókina þannig, að opið er laust. Því næst blæs hann upp pokann, og — bókin lyftist upp. — Svör á bls. 142. — 141

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.