Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 11
T I M A R I T IÐNAÐARMANNA
mínsson, Einar Pálsson, Sigfús Eymundsson og
Olafur Sveinsson.
Þó viljinn væri góður hjá fjelagsmönnum, þá
treystust þeir þó eigi að ráðast í þetta fyrirtæki
að svo stöddu, vegna fjeleysis.
Næsta spor í málinu var stigið, er Magnús
Benjamínsson kom á fundi 10. des. 1893 fram
með tillögu um, að fjelagið fengi útmælt svæði
suður í tjörn undir hús handa fjelaginu. Var þetta
samþykt og ákveðið að byrja á uppfyllingu undir
grunninn svo fljótt, sem hægt væri og nefnd kos-
in til að standa fyrir verkinu.
Mörgum fjelagsmönnum fannst í mikið ráðist,
og varð það því úr, að reisa að eins lítið hús, og
á fundi 24. febr. 1895 var samþykt að húsið skyldi
verða 17 álnir á lengd, og 14 á breidd, og var
kostnaður áætlaður um 4000 krónur. Nokkrir menn
gáfu um leið peninga til húsbyggingarinnar, alls
215 kr. Aðrir lofuðu gjöfum síðar.
Sem betur fór, reyndust þó margir fjelagsmenn
svo stórhuga, að þeir vildu ekki sætta sig við
svona lítið hús, og hvað eftir annað komu fram
tillögur um að hafa það stærra, og 19. jan. 1896
var samþykt svohljóðandi tillaga frá Magnúsi Benja-
mínssyni. »Fundurinn samþykkir að veita húsbygg-
ingarnefndinni heimild til þess að byggja hús fyrir
fjelagið, samkvæmt teikningu þeirri, sem hún hefir
lagt fyrir fundinn, og verja til þess alt að 7000
krónum«. Enn var þó ekkert útkljáð um stærð
hússins, og fjelagsmenn voru ærið ósammála
á fundum. Var húsbyggingarnefndinni að síðustu
falið á hendur að sjá um allar framkvæmdir máls-
ins, með fundarsamþykt 1. mars 1896, og hún
ákvað að reisa húsið eins og það stendur enn
í dag.
Þegar fjelagið rjeðst í þetta stórræði, voru þess-
ir menn í stjórn þess. Matthías Matthíasson, for-
maður, Þorvarður Þorvarðsson ritari og Andrjes
Bjarnason gjaldkeri. I framkvæmdanefnd við bygg-
inguna voru þeir Magnús Benjamínsson, Olafur
Olafsson og Einar Pálsson, sem var yfirsmiður
hússins.
Sveinn Sveinsson trjesmiður var sendur utan,
til þess að kaupa við til hússins. Komst hann að
5