Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 25

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 25
T I M A R I T IÐNAÐARMANNA honum góða kenslukrafta, enda hefir tímakaup verið hið sama og í Mentaskólanum og ýmsum framhaldsskólum hjer. Næsta ár fjell niður bók- færslan og járnsmiðateikningin, sem þó var tekin upp aftur haustið 1907, og hefir hún og aðrar framangreindar námsgreinir verið kendar við skól- ann síðan, nema bókfærslan. Haustið 1914 var ensku bætt við, 1917 var þýskan feld niður og 1918 enskan líka, en 1921 er þýskan tekin upp aftur og 1924 enskan. Haustið 1911 sagði ]ón Þorláksson af sjer skóla- stjórastöðunni vegna annríkis, og var Asgeir Torfa- son efnafræðingur skipaður í hans stað. Hafði hann svo skólastjórnina á hendi til þess er hann ljest haustið 1916, og Þórarinn B. Þorláksson málari tók við. Hann sagði aftur af sjeri skólastjórastöðunni haustið 1923, og hafði þá verið fastur starfsmaður við skólann í nær því 20 ár, fyrst sem teiknikenn- ari og síðan sem skólstjóri. Eftir hann var nú- verandi skólastjóri, Helgi Hermann Eiríksson verk- fræðingur, skipaður í stöðuna. Haustið 1917, þegar Þórarinn B. Þorláksson var skipaður skólastjóri, sagði hann lausri stöðu sinni, sem fastur kennari við skólann. Skólanefnd ákvað þá, af sparnaðarástæðum, að veita ekki stöðuna fyrst um sinn, og hefir hún ekki verið veitt síðan. Frá því að skólinn tók til starfa sem iðnskóli, haustið 1904, hafa þessir verið kennarar við hann auk skólastjóranna: / íslensku: Olafur Olafsson, fríkirkjuprestur (1904—1905), Guðmundur Finnbogason (1905— 1907), Björn Bjarnarson (1907) og Matthías Þórð- arson (1908), Þorsteinn Erlingsson (1908—1910), Páll Sveinsson (1910—1911), Sigurður Guðmunds- son(1911 —1913), Andrjes Björnsson (1913— 1914), ]akob Smári (1914—1919), Þórbergur Þórðarson (1919—1925), Kristinn Andrjesson (1925—1926), Knútur Arngrhnsson (1925—) og Sveinbjörn Sigur- jónsson (1926—). / reikningi: Dr. Ólafur Daníelsson (1904—1918), Skúli Skúlason blaðamaður (1918—1919), Ólafur Ólafsson prófastur (1919—1925), Finnur Einarsson (1925—) og Sigurður Sigurðsson (1925—). / undirbúnings og fríhendisteikningu: Guðm. Jónsson (1917—), Brynjólfur Þórðarson 1920— 1925), Ásgrímur Jónsson (1920 — 1921), Gunn- laugur Blöndal (1921 —1923), Finnbogi Rútur Þor- valdsson (1924—) og Jóhannes Kjartansson (1926-). I byggingaefnafræði og iðnteiknigu: Jón Hall- dórsson (1905—1919 og 1921—), Rögnvaldur Ólafsson (1905—1906 og 1907—1910), Sigurgeir Finnsson (1905—1906 og 1907—1908). Einar Er- lendsson (1907—1909), Halldór Guðmundsson (1908—1910), Benedikt Jónasson (1909—1911), Páll Jónsson járnsmiður (1910—1912), Finnur Thorlacius (1911 — ), M. E. Jessen (1916—1920) Kristján Guðnason (1919—1921), Ólafur Þorsteins- son verkfræðingur (1917—1918), Bjarni Þorsteins- son (1920—1922), Pjetur Ottason (1920—1921), Hafliði Hafliðason (1921 —1923 og 1926—), Ólafur Einarsson (1922—1924), Jakob Gíslason (1924—1925) og Finnbogi Rútur Þorvaldsson (1924—). / dönsku: Þorsteinn Erlingsson (1904—1910), Jón Þórarinsson (1910—1911 og 1912—1913), Bjarni Hjaltested (1913—1925) og Sigfús M. Jóhnsen (1925—). / býsku: Þorsteinn Erlingsson (1905—1908), Jón Ófeigsson (1908—1911), Halldór Jónasson (1911 — 1917), G. Weber (1921 — 1923), Werner Haubold (1923—). / ensku: Halldór Jónasson (1914—1918), Jakob Gíslason (1924—1925), Sigurður Sigurðsson (1925—), Sveinbjörn Sigurjónsson (1926—). í bókfærslu: Ólafur G. Eyjólfsson (1905—1906), Jón Arnórsson (1917—1918), Þorsteinn Bjarnason (1918—1920). íprentfræði: Hallbjörn Halldórsson (1921 —1923). / rafmagnsfræði: Steingrímur Jónsson (1921 — 1923), Höskuldur Baldvinsson (1926—). Efnis- og áhaldafræði: Finnbogi Rútur Þor- valdsson (1926—), Bjarni Jósefsson (1926), Gísli Guðmundsson (1927—). Nemendafjöldinn síðan 1914 hefir verið þannig: 1904—05 voru 82 nem., 1905- 06 voru 93 nem. 1906-07 — 98 — 1907— 08 — 99 — 1908-09 — 73 — 1909- 10 — 57 — 1910—11 — 53 — 1911- 12 — 46 — 1912—13 — 56 — 1913- 14 — 64 — 1914—15 — 59 — 1915- 16 — 69 — 1916—17 — 62 — 1917- 18 — 65 — 1918—19 — 59 — 1919- -20 — 87 — 1920—21 — 100 — 1921- ■22 — 104 — 1922—23 — 94 — 1923- 24 — 101 — 1924—25 — 94 — 1925- 26 — 154 — 1926—27 — 176 — Það er ekki ætlun mín í grein þessari að bera sjerstakt lof á neinn af þeim mönnum, er hjer koma við sögu, en þó er það einn maður, sem ekki er unt að komast hjá að nefna sjerstaklega, þegar sögð er saga Iðnskólans á þessu tímabili. Þessi maður er Magnús Benjamínsson úrsmiður. [ 19 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.