Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 26

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 26
T I M A R I T IÐNAÐARMANNA Frá því fyrsta að hann kom í Iðnaðarmannafjelagið 1882, hefir hann ávalt látið iðnskólamálið til sín taka og verið skólanum hinn tryggasli haukur í horni, enda alt af í skólanefnd síðan 1893, að hann sá um skólann sem formaður fjelagsins og síðan sem skólanefndarmaður, nema 1895—96. Hefir •hann þannig verið í stjórn skólans í svo að segja samfleytt 34 ár. Er varla efi á því, að það hefir oftast verið framsýni hans og skilningi á menning- armálum iðnstjettarinnar að þakka, samfara áhrif- um hans innan Iðnaðarmannafjelagsins, hversu greiðlega oft hefir gengið að fá nauðsynjamálum skólans framgengt, svo að þroski hans og þróun hafa ekki verið tafin um skör fram. Að vísu eru margir fleiri, sem hjer eiga hlut að máli og heið- ur skilið, og mætti þar til nefna K. Zimsen borg- arstjóra, sem lengi var formaður fjelagsins og síð- ast í skólanefnd, og fleiri mæta menn, en enginn hefir starfað jafnlengi og með jafnmikilli lipurð og festu að skólamálunum og einmitt Magnús. Næst Magnúsi Benjamínssyni hafa þessir starfað lengst í skólanefnd, frá því að skólinn var endur- reistur 1892 og til þessa tima: Guðmundur Gama- líelsson 11 ár (1902—1913), ]ón Þorláksson og Helgi Helgason 8 ár (1916—24), Magnús Blön- dahl 7 ár (1902—09), Rögnvaldur Ólafsson 7 ár (1909—16), ]ón Brynjólfsson 5 ár (1896—01), Ólafur Ólafsson prentari 4 ár (1897—1901), Sveinn Sveinsson (1895—1897 og 1901), Finnur Thor- lacius (1913—16), Steingrímur ]ónsson (1924—) og K. Zimsen (1924—) sín 3 ár hver, Guðmundur ]akobsson (1901—03), Hjörtur Hjartarson (1901 — 03) og Björn Kristjánsson (1893—95) sín 2 ár hver og 1 ár þeir Björn Guðmundsson (1895), Einar Pálsson (1895) og Guðmundur Magnússon (]ón Trausti, 1901). Síðastliðið haust var sú breyting gerð á skól- anum, að áður fengnu samþykki fjelagsins, að kensla byrjar kl. 1 síðdegis á laugardögum, en kl, 6 að kvöldi aðra daga. Með því vinst það, að allur skólinn fær frí laugardagskvöldin og eitt kvöld að auki í efri bekkjunum, en tvö kvöld í tveimur þeim neðri, til lesturs. Einnig var bókfærslu, kostnaðarreikningi, efnisfræði [Materiallære] og á- haldafræði [Teknologi] bætt við sem námsgreinum f efri bekkjunum. Ennfremur var reynt að halda uppi sjerstakri deild fyrir bakaralærlinga, en að- sókn varð svo lítil, að í almennum námsgreinum varð að hafa þá með öðrum deildum skólans. Þarf nokkur breyting að verða á, ef hægt á að vera að halda uppi kenslu fyrir bakarana framvegis. Og nú er komið að undirbúningi fjórða þáttar- ins, fjórða tímabilsins í sögu skólans. Nú hefir verið borin fram og rædd tillaga, sem felur í sjer svo að segja óendanlega þroska- og vaxtarmögu- leika fyrir skólann; tillaga sem gerir það mögu- legt af hendi skólans að koma á fót og halda uppi dagskóla við Iðnskólann. En það er vitanlega næsta skrefið, sem stíga verður til fullkomnunar skólanum og fullnægingar iðnmentunarþörfinni í landinu. Frá þeirri tillögu er sagt ítarlega á öðrum stað í þessu riti. svo að jeg ætla ekki að fara út í það atriði hjer. En það er trú mín og sannfær- ing, að Iðnaðarmannafjelaginu muni takast jafn- giftusamlega með hana og með önnur nauðsynja- mál skólans, og að það muni stíga þetta spor fyrir skólann jafn örugt og ákveðið og önnur spor áður, þegar honum hefur legið mest á. Orðsending til iðnaðarmanna og kaupenda út um land. Enda þótt tímaritið fjalli nú eingöngu um Iðnaðarmannafjelagið í Reykjavík, þá er vitanlega til þess ætlast að fjelögin og iðnaðarmenn um land alt, hafi jafnan að- gang að ritinu. Það eru vinsamleg tilmæli vor að iðnaðarmannafjelögin noti sjer þennan rjett, og sendi tímaritinu greinar um áhugamál sín. Vilji fjelögin eða ein- stakir iðnaðarmenn leita til útgefenda við- víkjandi upplýsingum að því er iðnað snertir, þá mun verða reynt að láta þær í tje eftir föngum. tivað viðvíkur pöntunum á Tímariti Iðnaðarmanna eða auglýsingum í því, þá ber að snúa sjer í því efni til afgreiðslu- manns vors, sem er Jón Víðis, Hverfisg. 40 í Reykjavík. Utgefendur. [ 20 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.