Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 12

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 12
T I M A R I T IÐNAÐARMANNA góðum kaupum. Vmsir fjelagsmenn lögðu fram all- mikla vinnu ókeypis, og yfirleitt má segja, að iðn- aðarmenn Reykjavíkur hafi lagt mikið á sig, til þess að koma upp húsinu. Ekki gekk greiðlega að afla fjár til byggingar- innar. Fyrst fjekk nefndin lánaða tvo smáa sjóði. Leiktjaldasjóðinn og Talíusjóðinn gegn því, að söngfjelög bæjarins fengju til afnota leigulaust, eitt herbergi í húsinu til æfinga. Síðan fjekk nefndin 12,500 kr. úr Söfnunarsjóði, gegn fyrsta veðrjetti í húsinu og 5,000 kr. í Landsbankanum gegn sjálf- skuldarábyrgð 25 fjelagsmanna. Reynt var lítils- háttar að afla fjár með skuldabrjefum, er fjelagið gaf út og með hlutaveltum. Seinna var svo fengið lán í bankanum gegn sjálfskuldarábyrgð nokkurra fjelagsmanna. Húsið kostaði alls um 36,000 krón- ur. Miklir peningar í þá daga. Þann 29. des. 1896 hjelt fjelagið fyrsta fundinn í hinu nýja húsi sínu, en 30. og 31. jan. 1897 hófst notkun þess, sem samkomustaður bæjarbúa. Þá voru að tilhlutun Iðnaðarmannafjelagsins, haldn- ir þar samsöngvar og voru um 400 áheyrendur hvort kveldið. Munu aldrei jafn fjölmennar sam- komur fyr hafa verið haldnar í veraldlegu húsi á íslandi. Enda fanst bæjarbúum mikið til um hvort- tveggja, sönginn og húsið. Söngskemtanir þessar, sem Björn Kristjánsson stýrði, voru haldnar til þess að afla fjár, til að kaupa fyrir hljóðfæri í húsið. Um þessar söngskemtanir voru skrifaðar greinar í »Island« og »Isafold«. Það var ekki að furða, þó mönnum þætti húsið merkileg bygging, því að slíkt samkomuhús hafði aldrei fyr verið til á landi hjer. Og þó oss nú á dögum þyki því í ýmsu ábótavant, þá ber þess að gæta, að þegar gerð hússins var ákveðin, voru bæjarbúar að eins rúm 4000, og engan dreymdi um hinn stórkostlega vöxt höfuðstaðarins, sem átt hefir sjer stað á síðasta áratug, og þá var ekki byrjuð »steinöldin« í húsagerð Reykjavíkur. Ef vjer ættum nú að reisa samkomuhús jafn- stórt í hlutfalli við tölu bæjarbúa, þá yrði það að geta rúmað um 1400 menn í sætum við leiksýn- ingar og um 2200 á fundum, þegar margir standa og alt rúm er notað til þess ítrasta. Væri gaman að sjá það fjelag, sem vildi taka að sjer, að koma upp slíku húsi nú á dögum. Iðnaðarmannahúsið hefir í 30 ár verið leikhús bæjarins og lengst af helsta samkomuhúsið. Það má því með sanni segja, að það hafi haft stór- kostlegt menningargildi fyrir höfuðstaðinn. Stofnun Leikfjelagsins var ein fyrsta afleiðingin af byggingu hússins. Iðnaðarmannafjelagið átti mik- inn þátt í henni, enda var því hagur í, að fá fastan leigjanda. Leikfjelagið var stofnað 11. janúar 1897. Stofnendur voru 19, af þeim voru 14 karlmenn og 8 þeirra úr Iðnaðarmannafjelaginu. I hinni tyrstu stjórn Leikfjelagsins voru tveir Iðnaðarfjelagsmenn, Þorvarður Þorvarðsson og Friðfinnur Guðjónsson. Þriðji maðurinn var Borgþór Jósefsson, verslunar- maður. Ekki er víst, að hugmyndin um stofnun Leik- fjelagsins sje komin frá iðnaðarmönnum, en það er víst, að ef þeir hefðu ekki verið búnir að koma upp húsinu, þá hefði fjelagið ekki verið stofnað. Þó að Iðnaðarmannahúsið hafi haft mikla þýð- ingu fyrir höfuðstaðinn, og hafi verið mikið notað, þá var þó fjárhagur þess jafnan erfiður og sífelt varð að borga gömlu lánin með nýjum lánum. Þannig tók fjelagið 20 þús. kr. í Landsbankanum 22. des. 1905 gegn ábyrgð 13 fjelagsmanna. Þess vegna fóru, er tímar liðu, að heyrast raddir um, að best væri fyrir fjelagið, að losa sig við húsið. Það hefði lokið hlutverki sínu með því, að koma upp samkomuhúsi fyrir bæinn, og notkun hússins yrði sú sama, þó það væri eign einstakra manna, en ekki fjelagsins. Ábyrgðarmennirnir voru orðnir þreyttir á hinum sífeldu lánum, og hins vegar var útlit fyrir, að þyrfti að gera mikla endurbót á húsinu til þess, að það gæti dugað sem leikhús bæjarins. Þetta var orsök til þess, að fjelagið vildi losa sig við húseignina. Fjelagsmenn fjellust því að lokum á að selja húsið. Tilboð kom í það frá Fr. Hákonsen veit- ingamanni, en fjelaginu þótti sjálfsagt, að gefa Leikfjelaginu fyrst kost á að kaupa húsið, en er það treystist ekki til þess, var samþykt á fundi 6. maí 1918 svohljóðandi tillaga frá stjórn fjelagsins og húsnefnd. »Fundurinn samþykkir að selja Frantz Há- konsen Iðnaðarmannahúsið fyrir 75 þúsund krónur, samkvæmt tilboði hans, dagsettu 14. apríl 1918, með þeirri breytingu, að Iðnaðar- mannafjelagið fái 2. veðrjett með uppfærslurjetti á eigninni næst á eftir 25 þús. krónum 0 og felur stjórninni að gera kaupsamning við Há- konsen, enda greiði hann 2000 kr. í festarpening við undirskrift samningsins.« Fyrri hluti tillögunnar var samþyktur með 18 at- kvæðum, en seinni hlutinn með Öllum greiddum atkv. Þar með er lokið sögu Iðnaðarmannahússins sem eigu fjelagsins. 1) Er hvíldu á fyrsla veðrjetti. Útborgun ltaupanda var 10,000 krónur. [ 6 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.