Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 18

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 18
T í M A R I T IÐNAÐARMANNA Iðnaðarmannafjelagið, og leggja í hann það fje sem til væri í sjóði fjelagsins. Síðan var þetta mál rætt á nokkrum fundum, og loks samþykt 7. jan. 1894 svohljóðandi tillaga frá Daníel Símonarsyni: »Fjelagið stofni sem allra fyrst styrktarsjóð handa fátækum iðnaðarmönnum og ekkjum þeirra, þegar sjúkdómar eða ófyrirsjáanleg óhöpp bera að höndum. Einnig sje kosin þegar á þessum fundi fimm manna nefnd fil að semja lög og reglur fyrir sjóðinn.« Kosnir voru í nefndina W. O. Breiðfjörð, Sveinn Sveinsson, Magnús Benjamínsson, Matthías Matt- híasson og Þorvarður Þorvarðsson. Nú var komin fram sú hugmynd, að rjett væri. að einskorða ekki sjóðinn við Iðnaðarmannafjel- lagið, heldur gefa öllum iðnaðarmönnm kost á, að taka þátt í honum, enda þótt þeir væru ekki í fjelaginu. Nefndin samdi skipulagsskrá fyrir sjóðinn og lagði til, að Iðnaðarmannafjelagið stofnaði hann af því fje, er það átti á vöxtum í Söfnunarsjóðnum. Var þetta samþykt 7. apríl 1895, og skipulags- skráin sömuleiðis. Hún öðlaðist konunglega stað- fesíingu 18. sept. 1896. Upphæðin, sem Iðnaðarmannafjelagið átti í Söfn- unarsjóðnum í ársbyrjun 1895 var kr. 2263,66, og er það stofnfje sjóðsins. Akveðið var að meðlimir Iðnaðarmannafjelagsins, sem vildu ganga í sjúkra- sjóðinn, skyldu greiða til hans eina krónu og fimtíu aura á ári, en aðrir iðnaðarmenn tvær krónur. Stjórn sjóðsins átti að vera kosin árlega af Iðnaðarmannafjelaginu. Allir iðnaðarmenn, sem að greitt hafa tillag til sjóðsins gátu orðið aðnjótandi styrks úr sjóðnum, þó þeir hefðu aldrei verið í Iðnaðarmannafjelaginu. Sjóðurinn var þannig stofnaður og honum stjórn- að af fjelaginum, en þetta var óeðlileg tilhögun, sem varla gat haldist til lengdar, og á fundi fje- lagsins 14. febr. 1919 var því hreyft, að það væri óviðeigandi, að þeir menn, sem greiddu tillög til sjóðsins, en ekki væru í fjelaginu hefðu engin áhrif á stjórn hans. Að lokum bar Olafur Olafs- son fram svohljóðandi tillögu. »Aðalfundur Iðnaðarmannafjelagsins lýsir því hjermeð yfir, að hann álítur rjettara og eðli- legra, að stjórn og endurskoðendur Styrktar- sjóðs iðnaðarmanna í Reykjavík, sje hjer eftir kosin af meðlimum styrktarsjóðsins, og lætur sjer nægja, að Iðnaðarmannafjelaginu sje send árleg skýrsla um starfsemi og efnahag sjóðsins*. Málinu var frestað og nefnd kosin til þess að athuga það. A fundi 2, febr. 1921 voru menn yfirleitt sammála um að sjóðurinn skyldi verða sjálfstæð stofnun. Ennfremur var samþykt að gefa honum 1000 krónur úr fjelagssjóði, til minningar um að liðin væru 25 ár síðan reglugerð og skipu- lagsskrá hefði verið samin fyrir sjóðinn. Þann 6. apríl sama ár var skipulagsskrá sam- þykt fyrir sjóðinn og fjekk hún konunglega stað- festingu þann 17. maí 1921. I 2. gr. skipulagsskrárinnar er komist svo að orði: »Tilgangur sjóðsins er, að styrkja meðlimi sjóðs- ins, ekkjur þeirra og börn, en meðlimir geta orðið allir meðlimir Iðnaðarmannafjelagsins i Reykjavík og aðrir iðnaðarmenn í Reykjavík, ef þeir eru samþyktir á aðalfundi sjóðsins«. Þannig var sjóðurinn orðinn sjálfstæð stofnun, sem ekki tilheyrði fjelaginu lengur. Fyrsti fundur Sjúkrasjóðs iðnaðarmanna var haldinn 18. jan. 1921. Þegar fjelagið afhenti sjóðinn, átti hann kr. 9,573,3. Meðlimir voru 67 að tölu og ársgjald ákveðið 5 kr. I þau 25 ár, sem Iðnaðarmannafjelagið stjórn- aði sjóðnum, voru að eins sex menn í stjórn hans. Einar Finnsson var formaður 16 ár, en Olafur Ólafsson 9. Hann var einnig gjaldkeri í 9 ár. Guðjón Sigurðsson var gjaldkeri í 10 ár og þá varð Halldór Sigurðsson það, og er enn. Ritarar hafa verið Þorvarður Þorvarðarson í rúm 19 ár og síðan Magnús Benjamínsson. Þó að Iðnaðarmannafjelagið hafi látið sjúkrasjóð- inn af hendi, þá hefir það haldið sömu trygð við hann og áður. Og á hátíðisdegi fjelagsins, þegar Ingólfslíkneskið var afhjúpað, var ákveðið að gefa sjóðnum 10 þúsund krónur, eins og áður er sagt frá, Sjóðurínn er nú um 26 þúsund krónur. VI. Iðnaðarlöggjöf. Það hefir lengi verið mikið áhugamál Iðnaðar- mannafjelagsins að koma á fót fullkominni lög- gjöf um iðnaðarnám og iðnaðarrekstur. I þeim efnum hefir íslensk löggjöf verið æði fáskrúðug. Hinir ráðandi menn í þjóðfjelaginu virðast ekki hafa skilið, að semja þurfi lög og reglur fyrir iðn- að eins og aðrar atvinnugreinar. Arið 1893 voru þó samþykt á Alþingi lög um iðnaðarnám, en ann- ars var tilfinnanleg þörf á fullkomnari löggjöf í þessum efnum. Stjórn Iðnaðarmannafjelagsins tók málið að sjer, og reyndi að ná samvinnu við stjórn og þing. Hjer er ekki rúm til þess að rekja [ 12 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.