Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 14

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 14
T I M A R I T IÐNAÐARMANNA almenna sýningu í Reykjavík 1911. Hinsvegar virtist fjelagsmönum, að það væri nauðsynlegt að senda menn þangað til þess, að kynnast sýning- ingunni, og læra af Dönum hvernig sýningu skyldi haga. — A fundi 7. ágúst 1909 var samþykt svo hljóðandi tillaga: »Fundurinn telur rjett, að iðnsýningarnefndin í samráði við stjórn fjelagsins, verji nokkru fje, alt að 600 krónum til styrktar tveimur mönnum að fara á Arósa-sýninguna í því skyni, að þeir síðar meir láti iðnsýninguna 1911 njóta þeirrar reynslu og þekkingar, er þeir öðlast*. ]ón Halldórsson fór til Arósa á sýninguna og á fundi Iðnaðarmannafjelagsins 6. nóv. 1909 gaf hann ítarlega lýsingu af henni. Nokkrar umræður urðu út af því, og voru sumir fjelagsmenn vondaufir um, að hægt væri að halda sómasamlega sýningu í Reykjavík, en ]ón sagði, að sjer væri ljóst, að þó íslensk iðnsýning gæti ekki komist í hálfkvisti við þá dönsku, mundi hún samt hafa mikla þýð- ingu fyrir íslenskan iðnað og íslenska menningu. Sýningin hófst 17. júní 1911. Klemens Jónsson landritari opnaði hana með ræðu. Enn fremur tal- aði þar formaður sýningarnefndarinnar, ]ón Hall- dórsson trjesmiður. A sýningunni voru um 1100 munir. Dýrasti gripurinn (gullbelti) var virtur á 6000 krónur. Allir munirnir á sýningunni voru vátrygðir fyrir 65 þúsund krónur. Auk hinnar eiginlegu iðnsýn- ingar var einnig sýndur fjöldi muna frá Barna- skólunum í Reykjavík og á Akureyri; Kvenna- skólanum, Kennaraskólanum og Landakotsskólanum. Þessi sýning var miklu fjölbreyttari en hin fyrri. Þar voru sýnishorn af nálega öllu, sem unnið er hjer á Iandi, og á einhvern hátt getur talist til iðnaðar. Sýningargripir komu víðsvegar að af landinu, svo það má með sanni segja, að sýningin hafi verið þjóðleg, og sýnt glöggva mynd af þroska iðnaðarins hjer á landi á þeim tíma. Itarleg lýsing af sýningunni er í »Vísi« I. árg. Mikið fjölmenni kom til a^ skoða sýninguna. Veitt voru verðlaun 122 sýnendum. Af þeim fengu 32 I. verðlaun, 29 II. og 61 III. Verðlaunin voru silfurpeningar, eirpeningar og heiðursbrjef eins og á sýningunni 1883. Þess má geta, að ágóðinn af sýningunni varð 9 kr. 82 aurar. Sýningin var hin mesta og fjölbreyttasta sýning, sem haldin hefir verið hjer á landi, og þótti hún alment hafa hepnast ágætlega, og vera Iðnaðar- mannafjelaginu til mikils sóma. Iðnsýningin 1911 þótti hafa lánast svo vel, að margir óskuðu, að koma upp líkri sýningu áður en á löngu liði. En fyrst var þó málið tekið til alvarlegrar umræðu á fundi í Iðnaðarmannafjelag- inu 29. apríl 1924. Þá bar Björn Björnsson bak- ari fram áskorun til fjelagsins um, að það gengist fyrir iðnsýningu í Reykjavík á komandi sumri. Hann lýsti því hve mikil nauðsyn væri á því, að vakin væri eftirtekt manna á því, sem hjer væri framleitt af iðnaðarmönnum, og taldi sjálfsagt og eðlilegt, að Iðnaðarmannafjelagið hefði forgöngu fyrir málinu. Eftir nokkrar umræður var samþykt tillaga frá Knud Zimsen borgarastjóra um að kjósa fimm manna nefnd til þess að undirbúa málið. Kosnir voru: Björn Björnsson, Jón Halldórsson, Arni Sveinsson, Gísli Guðmundsson og Tómas Tómasson. Á næsta fundi, 7. maí, var málið svo rætt, og samþykt, að sýningin skyldi haldin, og nefndinni falið á hendur, að standa fyrir henni. Nú var tíminn svo naumur, að það reyndist ómögulegt, að hafa þessa sýningu fyrir alt landið, og því urðu það að eins iðnrekendur í Reykjavík og grend, er sýndu vörur sínar. Það studdi mikið að því, að sýningin var haldin, að Alþingi hafði þá samþykt lög um innflutnings- hömlur á allmörgum vörutegundum, sem framleiða má í landinu sjálfu. Var það áform forgöngu- mannanna, að reyna að vekja þjóðina til alvarlegr- ar umhugsunar um þann vísi til iðnaðar, sem til væri í landinu, og hvetja hana til að hlynna að honum eftir megni. Sýningin var haldin í Barnaskólanum og var opnuð 17. júní 1924. Knud Zimsen borgarstjóri hjelt vígsluræðuna. Er hún prentuð í »Morgunbl.« 137. tölubl. 1924. Vegna þess hve undirbúningstíminn var naumur var sýningin fáskrúðugri en ella mundi hafa verið. Engin skrá var prentuð um sýningargripina og verðlaun voru ekki veitt. Það helsta sem sýnt var 1924 var trjesmíði, húsgögn, járn- og blikksmíði ýmiskonar. Prentverk, bókband og myndamót. Dúkar og sútuð skinn. Brjóstsykur, kökur, smjörlíki, gosdrykkir og öl. Trjeskurður, gasáhöld og margskonar niðursuðu- vörur J). Samtímis hjelt Bandalag kvenna merkilega hann- yrðasýningu uppi á loftinu í Barnaskólahúsinu. Þessi sýning var auðvitað ekki sambærileg við 1) Lýsing á sýningunni er í „Vísi“ og „Morgunblaðinu" í júní 1924. 8

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.