Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 19

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 19
T I M A R I T IÐNAÐARMANNA gang málsins, en að eins skal skýrt frá árangr- inum. Stiórnin hefir með aðstoð nokkurra manna samið tvö ítarleg frumvörp til laga. Annað um iðnað og iðju, en hitt um iðnaðarnám. Svo var til ætlast, að frumvörp þessi kæmu fyrir Alþingi 1926. Það tókst þó ekki, en nú hefir ríkisstjórnin lofað að leggja bæði frumvörpin, með litlum breytingum, fyrir næsta Alþingi sem stjórnarfrumvörp. Vonandi verður þess því ekki langt að bíða, að vjer fáum fullkomna iðnaðarlöggjöf eins og ná- granna þjóðirnar. VII. Ýmislegt. Hjer að framan hefir verið skýrt frá því helsta, sem fjelagið hefir afkastað, en auk þess hefir það fengist við margt annað um dagana. Skal hjer drepið á nokkur atriði. Iðnaðarmannafjelagið hefir jafnan tekið mikinn þátt í samkvæmislífi bæjarins. Það hefir margsinnis staðið fyrir þjóðminningardegi, ásamt öðrum fjelög- um, og innan fjelagsins hefir oftast verið mikið og fjörugt samkvæmislíf. Nú hefir fjelagið hugsað sjer að taka þátt í hátíðahöldum þeim, sem ætlast er til að verði haldin árið 1930, á þúsund ára afmæli Alþingis. Á fundi 25. mars 1926 hreyfði formaður fjelagsins málinu, og eftir nokkrar umræður var samþykt svohljóðandi tillaga frá Árna Sveinssyni. »Stjórninni er falið á hendur að athuga hvaða afstöðu fjelagið á að taka viðvíkjandi hátíðahöldum 1930, og má hún velja með sjer fjóra menn sjer til aðstoðar«. Lengra er málið ekki komið, enda er tími til stefnu. En það mun vera áhugamál margra iðnað- armanna, að þúsund ára afmæli Alþingis, verði best heiðrað með því, að þá verði haldin í Reykjavík allsherjar iðnaðarsýning fyrir land alt. Sýning, sem verði meiri og fjölskrúðugri, en sýningar þær, sem áður hafa verið haldnar hjer á landi. Iðnaðarmannafjelagið byrjaði snemma á að koma sjer upp bókasafni. Alt var það þó í smáum stíl. Helst útlend iðnfræðistímarit. ]akob Sveinsson trje- smiður var aðalhvatamaður að þessu, og hann hjelt því fram, eins og rjett er, að það væri nauðsynlegt fyrir íslenska iðnaðarmenn, að þeir fengu tækifæri til þess að kynna sjer helstu nýjungar í erlendum iðnaði. Smátt og smátt safnaðist saman hjá fjelag- inu allmikið af bókum og tímarítum. Onnur fjelög svo sem Iðnfræðafjelagið og Verkfræðingafjelagið voru líka byrjuð á að koma sjer upp bókasöfnum og á fundi Iðnaðarmannafjelagsins 12. nóv. 1924 vakti Helgi H. Eiríksson verkfræðingur máls á því, að best væri, að sameina öll söfnin í eitt iðnfræðis- safn. Eftir nokkrar umræður var málshefjandi kos- inn til þess, að gera ásamt, fulltrúum frá Iðnfræða- fjelaginu og verkfræðingafjelagsins, tillögur um eignarrjett, afnot og fyrirkomulag væntanlegs bóka- safns fjelaganna. Á fundi 8. apríl 1925 lagði samnefnd fjelaganna fram álit sitt fyrir Iðnaðarmannafjelagið, og var samþykt, að stofnað skyldi eitt bókasafn, úr söfn- um allra fjelaganna, og skyldi það heita »Iðnbóka- safn Islands«. Það átti að vera sjálfstæð stofnun, en fá fyrst um sinn ókeypis húsnæði í Iðnskólahúsinu. Öll hin áðurnefndu fjelög skyldu styrkja það með fjárframlögum. Síðan var samin reglugerð fyrir bókasafnið 12. nóv. 1925 og Helgi H. Eiríksson kosinn í stjórn þess af Iðnaðarmannafjelaginu. Skólamál hafa jafnan verið rædd mikið í fjelag- inu, og Iðnskólinn hefir frá öndverðu verið eftir- lætisbarn þess. Nú á siðustu árum hafa heyrst margar raddir um, að skólafyrirkomulag landsins, og ekki síst höfuðstaðarins þurfi gagngerðar breyt- ingar, ef vel á að fara. ]ón Ófeigsson hefir komið fram með ýrnsar tillögur um kenslumál og á fundi Iðnaðarmannafjelagsins 29. apríl 1926 flutti hann fyrirlestur um skólamál, og lagði til að iðnaðar- menn, verslunarmenn og bæjarfjelagið í sameiningu stofnuðu einn allsherjarskóla fyrir bæinn, þar sem bæði færi fram bókleg og verkleg kensla, og þar sem mönnum væri frjálst að læra það, sem þeir helst óskuðu. Um þetta mál urðu allmiklar umræður, og að síðustu var samþykt tillaga um að fela skólanefnd Iðnskólans að athuga þetta mál nánar. Næst var málið til umræðu 13. jan. 1927. Helgi Eiríksson skýrði frá starfi nefndarinnar í skóla- málinu, og sagði að samkomulag hefði orðið um, að skólanefnd Iðnskólans boðaði hina ýmsu aðilja til fundar ásamt yfirstjórn Reykjavíkur, þessi fundur hefði svo verið haldinn og allir aðiljar verið mál- inu hlyntir. Á þessum fundi var samþykt að kjósa sameiginlega nefnd — tvo frá hverjum aðilja — til að koma málinu á framfæri við ríkisstjórnina. Þessi nefnd var kosin og var ]ón Ófeigsson einnig í henni. Las hann síðan upp lagafrumvarp það sem nefndin hafði samið, en gat þessijafnframt, að rík- isstjórnin hefði breytt því dálítið. Síðan taldi hann upp hina ýmsu kosti er skóla- fyrirkomulag þetta hefði, og lagði sjerstaka áherslu á, að samkvæmt 5. gr. skólafrumvarpsins væri hverjum og einum heimilt að koma í skólann og % [ 13 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.