Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Síða 13

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Síða 13
T I M A R I T I ÐNAÐARMANNA III. Sýningar. Einn merkasti þátturinn í starfsemi fjelagsins eru iðnsýningarnar. Það hefir haldið þrjár sýningar og í ráði er að hin fjórða, og mesta, verði haldin árið 1930. Hugmyndin um sýningar virðist hafa komið fyrst fram á fundi fjelagsins 6. mars 1882. Þá las formaður upp tillögu frá Eyjólfi Þorkelssyni og Páli Þorkelssyni »um að iðnaðarfjelagið annaðist um, að hjer í Reykjavík yrði haldin opinber sýning á allskonar iðnaði hjer á landi um miðsumarleyti árið 1883 og að 5 manna nefnd yrði kosin til að sjá um framkvæmdir«. A næsta fundi 1. apríl 1882 var tillagan rædd, og loks samþykt með 10 at- kvæðum, að sýningin skyldi haldin. I framkvæmda- nefnd voru kosnir: Sigfús Eymundsson ljósmyndari, Árni Gíslason leturgrafari, ]ón Borgfirðingur, Páll Þorkelsson og Helgi trjesmiður Helgason. Reynt var að afla fjár til að standa straum af sýningarkostnaðinum með hlutaveltu og samskot- um. Ennfremur veitti Landshöfðingi til þess 300 krónur úr Landssjóði. Sýningin var opnuð þjóð- hátíðardaginn 2. ágúst 1883 í Barnaskólahúsinu, þar sem pósthúsið er nú. Bergur Thorberg lands- höfðingi hjelt vígsluræðuna. Sýningin var opin til 19. ág. Alls komu um 1400 manns að skoða hana Á sýningunni voru 390 munir, og var hinn dýr- asti þeirra metinn á 400 krónur. Eftir að sýningin hófst bættust við nokkrir munir, sem ekki komust á skrá þá, sem prentuð var. Sjö manna nefnd dæmdi um sýningargripina og var 31 sýnanda dæmdur heiðurspeningur úr silfri, 32 heiðurspen- ingur úr bronse, og 56 fengu heiðursbrjef (Diplom) Sýning þessi vakti mikla eftirtekt, eins og vænta mátti. Fjelagið var svo ánægt með hana, að það ákvað, að koma bráðlega á stað nýrri sýningu. Fyrst var til ætlast, að hún yrði haldin árið 1885, en menn fjellu þó frá því, vegna þess hve tíminn var naumur. Hvað eftir annað komu þó fram til- lögur um að halda aftur sýningu, en ekkert varð úr framkvæmdum. Árið 1905 vakti ]ón Halldórsson aftur upp sýn- ingamálið, en ekki varð annað ágegnt í svipinn, en að ákveðið var að sýna prófsmíð iðnnema að afloknu námi, og hefir það verið gert síðan. Árið 1907 kaus Iðnaðarmannafjelagið á ný fimm manna nefnd til þess að athuga málið. Hún komst að þeirri niðurstöðu, að vel mundi við eiga að halda sýningar í öllum stærri kauptúnum landsins, til undirbúnings, áður en sameiginleg sýning fyrir alt landið yrði haldin. Ekki varð meira úr fram- kvæmdum að sinni. Nú nálgaðist aldarafmæli ]óns Sigurðssonar for- seta, og alþjóð Islendinga var sammála um að heiðra minningu síns mesta sonar. Iðnaðarmenn fundu að þá var hæfilegur tími tiJ að sýna það besta, sem þeir gátu búið til,1) og nú fór sýningar- málið að fá góðan byr, og á fundi Iðnaðarmanna- fjelagsins 5. maí 1908 var samþykt, að fjelagið skyldi gangast fyrir því, að iðnsýning fyrir alt ís- Iand yrði haldin í Reykjavík árið 1911. Kosin var þriggja manna nefnd til þess að hafa forgöngu í málinu og hlutu kosningu: Knud Zimsen, Th. Krabbe og ]ón Halldórsson. Kn. Zimsen gekk síðar úr nefndinni, en Jónatan þorsteinsson kom í hans stað. Á fundi 25. nóv. 1908 var samþykt til- laga frá sýningarnefndinni um að hún fengi heimild til að verja 500 kr. úr sjóði fjelagsins til undir- búnings sýningarinnar. Nefndin tók nú til starfa og vann af kappi. Fyrst lá fyrir að afla fjár. Hún skrifaði Alþingi 1909 og bað um styrk úr Landssjóði. Þingið sam- þykti að veita 2000 krónur til sýningarinnar, ef jafnmikið fje kæmi annarstaðar frá. Þá skrifaði nefndin Thorvaldsensfjelaginu og Búnaðarfjelaginu og bað þau að styrkja sýninguna með fje og taka þátt í henni. Búnaðarfjelagið sá sjer ekki fært að taka þátt í sýningunni, en með brjefi dagsettu 21. des. 1910 bauð það nefndinni 200 krónur til þess að verðlauna muni, sem sjerstaklega kæmu við landbúnaði. Thorvaldsensfjelagið lofaði með brjefi dags. 23. apríl 1910 að taka þátt í sýning- unni, og veitti 300 krónur til hennar, en tók það fram um leið, að það vildi ekki bera aðra fjár- hagslega ábyrgð af henni. Bæjarstjórn Reykjavíkur lánaði Barnaskólahúsið með brjefi dags. 21. 1910, til þess að halda sýn- inguna í, og veitti ennfremur 1000 krónur til hennar. Þá skrifaði nefndin iðnaðarfjelögum þeim, sem til voru út um land, og bað þau styrktar. Þau tóku öll vel í málið. Enn fremur bað hún allar sýslunefndir og bæjarstjórnir á landinu um fjár- styrk. Sumar þeirra veittu 25—100 krónur til sýn- ingarinnar, en sumar ekkert. Vmsir merkismenn víðsvegar um land ljetu nefndinni einnig í tje nokkurn stuðning. Árið 1909 átti að halda mikla sýningu í Árósum í Danmörku. Var Iðnaðarmannafélaginu boðið að taka þátt í henni. En því fanst ekki ráðlegt að gera það, þar sem ákveðið hefði verið, að halda 1) Páll Þorkelsson gullsmiður mun fyrstur, með greinum í „ Ingólfi“ 1907, hafa vakið máls á því að fæðingardagur ]óns Sigurðssonar væri rjettur dagur til þess að hefja sýn- inguna. [ 7

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.