Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Qupperneq 24
T I M A R I T
IÐNAÐARMANNA
um þetta mál og lagði til að vinnutími iðnaðar-
manna yfirleitt yrði færður niður í 10 tíma á dag,
og lærlinga niður í 8 tíma um skólatímann. Var
máli hans vel tekið og stjórn fjelagsins falið
að koma þessu fram, og ári síðar hafði fengist
samþykki flestra iðnaðarmanna í Reykjavík til
þessa.
Fyrsta ár skólans var hann til húsa í Vina-
minni, og hafði þar tvær stofur og tvö lítil herbergi.
Var tæplega hægt að komast þar fyrir meðan að-
eins voru 3 bekkir, en ómögulegt til frambúðar.
í byrjun des. 1904 hóf því Magnús Benjamínsson
máls á því í fjelaginu, að óhjákvæmlegt yrði að
útvega skólanum betra húsnæði, helst fyrir næsta
haust, og lagði til, að fjelagið bygði hús fyrir skól-
ann. Skýrði Jón Þorláksson málið nánar, hvernig
húsið þyrfti að vera og hvernig hægt væri að koma
málinu fram. Var stjórn fjelagsins, hússnefnd Iðn-
aðarmannahússins ásamt umsjónarmanni þess, Olafi
Ólafssyni, og yfirsmið, Einari Pálssyni, falið að í-
huga og undirbúa málið í samráði við skólanefnd.
Unnu þessir menn að málinu allan veturinn, og
höfðu það nokkurnveginn undirbúið um vorið, en
lóð fjekst ekki fyr en haustið eftir, að samþykt
var að kaupa lóð þá, sem skólinn stendur á, af
Búnaðarfjelagi íslands fyrir 3000 kr. Fje til hússins
var ákveðið að fá með reikningsláni og ábyrgð
allra fjelagsmanna.
Um veturinn og vorið var svo unnið að hús-
smíðinni. Var það tilbúið haustið 1906, og hefir
skólinn verið haldinn í því síðan. Veturinn 1905—
1906 var kent að nokkru leyti í Vinaminni og að
nokkru í Borgarasalnum í þinghúsi bæjarins. Þann
vetur var kenslan nokkuð aukin frá því, sem hún var
veturinn áður, iðnteikningunni var skift eftir iðnum í
húsgagnasmiða-, húsasmiða- og járnsmiða-teikningu
og kendu hana þeir Jón Halldórsson, Rögnvaldur
Ólafsson og Sigurgeir Finnsson, bókfærslu kendi
Ólafur Eyjólfsson, byggingaefnafræði kendi skóla-
stjóri, og þýsku kendi Þorsteinn Erlingsson auk
dönskunnar. Guðmundur Finnbogason kendi nokkuð
af íslenskunni þegar um haustið og tók við henni
allri í desember af sjera Ólafi Ólafssyni. Var á-
hersla lögð á það, að útvega skólanum vel menta
og duglega kennara, og hefir það jafnan verið
kappsmál fyrir stjórn skólans síðan, að tryggja
[ 18 ]