Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Side 30
T
M A R
T I Ð N A Ð A R
M A
N N A
Iðnaðarmannafjelagið í Reykjavík hefir komið sjer
upp dálitlum fundarskála á efsta lofti í Iðnskólan-
um. Skálinn er undir súð, og sniðinn eftir ramm-
íslenskri sveitabaðstofu. Skarsúð er á sperrum, en
reisusúð á stöfnum, og setubekkir í hverju staf-
gólfi. Mari er undir hverri sperru og í hvern þeirra
er gerð hönd, sem heldur á kyndli. Hún er skorin
úr íslensku birki. Fornar ljósakrónur eru í skamm-
bitum, og við innganginn í baðstofuna eru kolur.
Bak við stjórnarsætin eru útskornar öndvegissúlur,
en á milli þeirra er skráð eftirfarandi erindi, með
höfðaletri:
Stíg þú til hásætis,
hagleikans öld,
helga þjer dali og granda.
Fegra að nýju þinn föðurlands skjöld,
far þú sem drotning með Iistanna völd,
leið fram í ljósi og anda,
líf hinna starfsömu handa. (a. M.)
Vfir dyrunum á hinum stafni baðstofunnar er letrað:
Blessa þú, guð, hverja hagleikans hönd,
hverja sem trúlega vinna.
Birf þeim þín háleitu hugsjónalönd;
helgaðu blessaðu sjerhverja önd.
Lát þá í listunum finna
leiðir til hásala þinna. (G. M.)
Sín hvoru megin við dyrastafi eru útskornar
öndvegissúlur, og yfir dyrunum er letraður aldur
fjelagsins, þannig 1867 3./2. — 1927.
Gengið er inn í hlið baðstofunnar, og yfir þeim
dyrum er hinn forni málsháttur, gerður með höfða-
letri: Verkið lofar meistarann. Umhverfis dyrnar er
útskurður.
Húsgögn í baðstofunni eru gerð hjá ]óni Hall-
dórssyni & Co og í stólana er skorið fangamark
fjelagsins. Guðmundur Þorláksson, fyrrum bygging-
arfulltrúi í Reykjavík hefir gert uppdrátt að smíði
baðstofunnar, en Sigurður Halldórsson, trjesmíða-
meistari sá um smíðið. Ríkarður Jónsson, mynd-
höggvari, hefir gert allan trjeskurðinn, og uppdrátt-
inn að honum. Baðstofan þykir prýðisvel gerð, og
menn kunna vel við sig í þessum fundarskála.
Mynd sú, sem sýnd er hjer að ofan er af honum.
Prentsmiðjan Gutenberg h.f. — 7927.
[ 24 ]