Fréttablaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 6
6 17. nóvember 2009 ÞRIÐJUDAGUR Rúðuþurrkur NeoForm. Ný þurrkublöð frá Trico NÝ ÚTGÁFA af rúðuþurrkum frá D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Bræðraborgarstíg 9 Hetjudáðir hinna snauðu „Heillandi bók.“ Kolbeinn Óttarsson Proppé, Fréttablaðinu „Lætur vart nokkurn, sem hana les, ósnortinn.“ Ólafur Arnarson, Pressan.is D Y heldur áfram ÖRYGGISMÁL Ósamræmi er milli þess sem flugmálastjórn segir um það hverjir eiga að vera undan- þegnir öryggisleit í Leifsstöð og þess sem Keflavíkurflugvöllur ohf. segir vera sína starfsvenju. Í Fréttablaðinu síðasta fimmtu- dag var haft eftir Friðþóri Eydal, fulltrúa hjá Keflavíkurflugvelli ohf., að meðal þeirra sem undan- þegnir séu leit í öryggishliðum Leifsstöðvar séu tollverðir og lög- reglumenn. Það sé í samræmi við fyrirmæli frá flugmálastjórn. Þegar Fréttablaðið leitaði eftir því að fá skriflegan lista yfir þá sem eru undanþegnir öryggisleit- inni reyndist ekki unnt að útvega slíkt skjal. Valdís Ásta Aðalsteins- dóttir, upplýsingafulltrúi flugmála- stjórnar, segir hins vegar ljóst að hvorki lögreglumenn né tollverðir séu undanþegnir. „Það á að leita á þeim eins og öllum öðrum sem fara inn á svæðið.“ segir Valdís. Undan- þegnir séu aðeins forsetinn, forsæt- isráðherrann og makar þeirra auk erlendra þjóðhöfðingja sem eru hér í opinberri heimsókn og sérstak- lega sé tilkynnt um frá utanríkis- ráðuneytinu. Friðþór Eydal segir hins vegar að um einhvern misskilning hljóti að vera að ræða hjá flugmála- stjórn. Undanþágan fyrir tollverði og lögreglumenn sé stjórnvalds- aðgerð sem rúmist innan tilmæla frá Alþjóðaflugmálastofnuninni og samtökum flugmálastofnana í Evr- ópu. „Þetta eru menn sem starfs síns vegna þurfa að vera þarna. Þetta á til dæmis við um vopn- aða lögreglu,“ fullyrðir Friðþór sem ítrekar þó að allir hefðbundn- ir starfsmenn í Leifsstöð, þar með talinn forstjórinn sjálfur, þurfi að sæta vopnaleit og geri það í sérstöku starfsmannahliði á fyrstu hæð. Upplýsingafulltrúi flugmála- stjórnar tekur ekki undir með Friðþóri varðandi tollverðina og lögreglumennina. „Það eiga allir að fara í þessa skimun. Ef þeir eru með vopn vegna sinnar vinnu þarf að láta vita af því þegar þeir koma í skimunina,“ segir Valdís Ásta Aðal- steinsdóttir. gar@frettabladid.is Lögreglumenn sæti vopnaleit í Leifsstöð Tollverðir og lögreglumenn fara inn á öryggissvæði Leifsstöðvar án vopnaleit- ar þrátt fyrir að vera ekki undanþegnir leitinni að því er flugmálastjórn segir. Um er að ræða misskilning hjá flugmálastjórn segir talsmaður Keflavíkurflug- Í LEIFSSTÖÐ Á fimmtudaginn í síðustu viku sagði Fréttablaðið frá því að leitað hefði verið á forseta Alþingis í Leifsstöð og rakti blaðið af því tilefni hverjir væru undanþegnir slíkri leit. Eitthvað virðist málum blandið hverjir tilheyra þeim hópi. Það á að leita á þeim eins og öllum öðrum sem fara inn á svæðið. VALDÍS ÁSTA AÐALSTEINSDÓTTIR UPPLÝSINGAFULLTRÚI FLUGMÁLASTJÓRNAR Veiddir þú lax í sumar? Já 9,8 % Nei 90,2 % SPURNING DAGSINS Í DAG Á að taka upp samræmd loka- próf í grunnskólum að nýju? Segðu þína skoðun á visir.is FÉLAGSMÁL Atvinnulaus ungmenni á aldrinum 18 til 24 ára hafa mörg hver aðlagað sig því líferni að vera á bótum. Þetta kemur fram í niður stöðum rýnihópagreiningar sem kynnt var á fundi norrænna atvinnumálaráðherra sem fram fór í Reykjavík í síðustu viku. Kann- aðar voru aðstæður og viðhorf í fimm hópum, þremur í Reykjavík og tveimur á Suðurnesjum. Í grein- ingunni kemur fram að í mörgum tilvikum búi ungmennin í foreldra- húsum, hafi snúið sólarhringnum við og hafi hvorki áhuga á skóla né vinnu. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamála, segir að langtíma- atvinnuleysi ungs fólks sé með alvarlegri vandamálum sem hér sé staðið frammi fyrir. „Það virðist vera vaxandi til- hneiging til að ungt fólk verði eins og utanveltu og finni sig hvorki á vinnumarkaði né í skólakerfinu. Langtímaatvinnuleysi getur svo líka leitt til ótímabærrar örorku í framhaldinu og þetta er auð- vitað vandi sem takast verður á við,“ segir hann, en málið var til umfjöllunar á fundi norrænna atvinnumálaráðherra sem hér fór fram í síðustu viku. „Langtímaat- vinnulaus ungmenni hér núna eru um þrjú þúsund og þetta verður okkar stærsta viðfangsefni núna,“ segir Árni Páll. Meðal þeirra vandamála sem staðið er frammi fyrir er að atvinnulausa fólkið unga lítur ekki á skólavist sem valkost í stöðu sinni. „Þau líta ekki til baka á veru sína í skóla að það sé einhver lausn, heldur sé það bara meira kvalræði. Þetta er því krefjandi viðfangsefni að binda betur saman menntakerf- ið og atvinnuleysistryggingakerf- ið en gert hefur verið hingað til,“ segir Árni. - óká Í REYKJAVÍK Grípa á til aðgerða til að ýta við ungmennum sem hvorki virðast hafa áhuga á skóla né vinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Atvinnulaus ungmenni á aldrinum átján til tuttugu og fjögurra ára: Hafa lagað sig að lífi á bótum FJÁRMÁL Bretar og Hollendingar fyrir hönd 350 þúsund innistæðu- eigenda gera rúmlega tólf hundr- uð milljarða króna kröfu í þrotabú Landsbankans. Sex hundruð starfs- menn gamla bankans gera launa- kröfur upp á 4,6 milljarða. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Listi yfir lýstar kröfur á hendur Landsbankanum var birtur kröfu- höfum í gær. Meira en tólf þúsund kröfur bárust. Íslenski innistæðu- tryggingasjóðurinn tekur yfir kröfu Breta og Hollendinga ef rík- isábyrgðin á Icesave verður sam- þykkt á þingi. Stöð 2 hafði eftir Páli Benediktssyni, upplýsingafulltrúa skilanefndar Landsbankans, að samþykktar forgangskröfur, sem aðallega væru vegna Icesave, næmu um tólf hundruð og sjötíu milljörð- um króna. Á sjötta hundrað starfsmenn gera launakröfu, fyrir að meðaltali rúm- lega 7,5 milljón króna hver. Slita- stjórn Landsbankans hefur ekki tekið afstöðu til allra launakrafna en slíkar kröfur er forgangskröfur. Búist er við að um 87 til 89 pró- sent fáist upp í forgangskröfurnar, launakröfur og Icesave. „Því er ljóst að ekkert mun fást upp í almennar kröfur sem nema væntanlega þús- undum milljarða,“ sagði í fréttum Stöðvar 2. - gar Búist er við að eignir landsbankans dugi fyrir tæplega 90% af forgangskröfum: Tólf þúsund kröfur í Landsbankann FYRRVERANDI BANKASTJÓRAR LANDS- BANKANS Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason voru bankastjórar Landsbankans þegar hann komst í þrot. LISTIR Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráð- herra veitti í gær Þorsteini frá Hamri Verðlaun Jónasar Hall- grímssonar í ár. Í umsögn um Þorstein segir að hann sé á meðal okkar fremstu skálda. Á miðri atóm- öld hafi hann ort tvítugur að aldri undir dróttkvæðum hætti í bland við yngri og frjálsari form. Á mótunarárum Þorsteins hafi tekist á gamall og nýr siður í skáldskap og hann hafi glímt við þessi siðaskipti með sérstök- um hætti. Hin gamla íslenska ljóðhefð hafi alla tíð átt sterkar rætur í honum. - jhh Þorsteinn frá Hamri: Hlýtur verð- laun Jónasar KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.