Fréttablaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 17. nóvember 2009
FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn
Eiður Smári Guðjohnsen er sagð-
ur hafa lent í útistöðum við
annan gest á skemmti-
stað í Lúxemborg um
helgina. Frá því
var greint í þar-
lendu dagblaði.
Blaðamað-
ur Le Quot-
idien sagði í s a m-
tali við Fréttablaðið að
fréttamaður frá blaðinu
hefði komið auga á hann
á skemmtistað í miðbæ
Lúxemborgar.
„Hann hafði greini-
lega bragðað áfengi
og lenti í útistöðum við
annan gest á staðnum.
Snörp orðaskipti áttu
sér stað en þetta
leystist allt mjög fljótt og
voru engir frekari eftirmál-
ar af þessu,“ sagði hann.
Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins
var Eiður Smári úti
að skemmta sér með
öðrum landsliðs-
mönnum eftir vin-
áttulandsleik Lúxem-
borgar og Íslands á
laugardaginn. Engar
agareglur voru brotn-
ar og munu íslensku
leikmennirnir hafa haldið
hópinn allt kvöldið. - esá
Fjölmiðlar í Lúxemborg um Eið Smára Guðjohnsen:
Sagður hafa lent í úti-
stöðum á skemmtistað
EIÐUR SMÁRI Spilaði með íslenska landsliðinu
í Lúxemborg um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Skráðu þig í Sparitilboð N1
fyrir miðnætti á föstudag.
Allir þeir sem hafa skráð sig í
Sparitilboðið geta sparað tugi
þúsunda í rekstrarkostnaði
bílsins og unnið ferðavinninga
og fleira skemmtilegt.
MISSTU EKKI
AF ÞESSU!
TUGÞÚSUNDA SPARNAÐUR OG
GLÆSILEGIR VINNINGAR
Dekur í
Laugum
Snyrti-
vörur
Sushi frá
OSUSHI
Ferð til
USA
Ferðir til
Evrópu
WWW.N1.IS
Skráðu þig
fyrir miðnætti
á föstudag!
HANDBOLTI Tveir leikir fara fram
í 16-liða úrslitum Eimskipsbikar-
keppni karla í kvöld. Þróttur tekur
á móti Selfossi í Laugardalshöll-
inni en þá eigast við lið Hauka og
Hauka 2 á Ásvöllum.
Aron Kristjánsson er þjálfari
Hauka en útilokar ekki að spila
með Haukum 2 í leiknum.
„Þetta er auðvitað alvöru
leikur – sannkallaður leikur
leikjanna,“ sagði Aron í léttum
dúr við Fréttablaðið. Hann
vill gjarnan taka
þátt í leiknum en
gömul meiðsli
gætu haldið
honum á hlið-
arlínunni.
„Ég hrein-
lega veit
ekki hvort
ég treysti
hnénu. Ég
spilaði
með Hauk-
um 2 gegn
Val í bik-
arkeppn-
inni fyrir
tveimur
árum og
þurfti ég
að fara í
skurðað-
gerð eftir
þann leik.
Ég er því
efins núna,“
sagði hann.
„ E n þ a ð
gæti vel verið að
maður komi inn á í smástund til að
sýna strákunum hvernig best er
að skjóta á Birki Ívar í markinu,
hvernig á að gefa línusendingar og
fleira,“ sagði hann og hló.
Örvar Guðmundsson
er titlaður „eigandi“
liðs Hauka 2 og er
nú að safna liði fyrir
átök morgundagsins.
„Mér skilst að Sigurjón
Bjarnason, Þorvarður
Tjörvi Ólafsson, Þorkell
Magnússon og fleiri góðir
menn spili á morgun.
Það stóð jafnvel til
að Bjarni Frosta-
s o n m y n d i
standa í mark-
inu en Óskar
Ármannsson
er því miður
meiddur. En
ég á engu
a ð s í ð u r
von á afar
skemmti-
legum
leik.“
- esá
Haukar mæta Haukar 2 í bikarkeppni karla:
Vil kenna strákun-
um réttu handtökin
ARON KRISTJÁNSSON
Þjálfarinn sem gæti
spilað gegn eigin
leikmönnum í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Logi Geirsson segir
að hann hafi látið yfirfara sínar
fasteignir í kjölfar fréttaflutn-
ings í Þýskalandi um að fjöl-
margir atvinnumenn í handbolta
þarlendis hefðu verið ginntir í
fasteignabraski.
„Ekki veit ég hvaðan frétta-
mennirnir fengu sínar upplýsing-
ar því ég hef látið fara yfir mín
mál og ekki útlit fyrir annað en
að allt sé eins og það á að vera,“
sagði Logi við Fréttablaðið. Hann
var einn þeirra sem voru nefndir
sérstaklega á nafn í áðurnefndri
umfjöllun.
Samkvæmt fréttunum voru
handboltamennirnir ginntir til að
kaupa fasteignir á yfirverði. „Ég
hef látið fara yfir allar íbúðirn-
ar mína og fyrsta athugun hefur
ekki leitt neitt óeðlilegt í ljós. Ég
lít því á að þetta hafi verið lítið
annað en stormur í vatnsglasi.“
Hann segir þó að hann muni
áfram fylgjast vel með sínum
fjárfestingum. „Þetta er minn
atvinnumannasparnaður og ég
vil auðvitað fara eins vel með
þann pening og ég get. Hingað
til hef ég fjárfest með góðri sam-
visku og mun gera það áfram.“
- esá
Logi Geirsson segir sparnaði sínum vel varið:
Stormur í vatnsglasi
LOGI GEIRSSON Var sagður ginntur í
fasteignabraski. NORDIC PHOTOS/BONGARTS