Fréttablaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 10
10 17. nóvember 2009 ÞRIÐJUDAGUR Hengjum okkur ekki í smáatriði! Vinátta – alveg óháð kerfi. ÍTALÍA, AP „Í heiminum er meira en nóg til af mat,“ segir Ban Ki- moon, framkvæmdastjóri Sam- einu þjóðanna. „Samt þarf meira en milljarður manna að líða hung- ur. Þetta er óþolandi.“ Þetta sagði hann við upphaf alþjóðlegu matvælaráðstefnunn- ar, sem hófst í Róm í gær á vegum Matvæla- og landbúnaðarstofnun- ar Sameinuðu þjóðanna, FAO. Fulltrúar ríkja heims sam- þykktu samhljóða að auka fjár- hagsaðstoð við landbúnað í þró- unarheiminum. Ekki gátu þeir þó komið sér saman um að viðbót- arfjárhæðin nemi 44 milljörðum Bandaríkjadala á ári. Matvæla- og landbúnaðarstofn- unin hafði sagt þessa upphæð nauðsynlega næstu áratugina, eigi að takast að gera þann millj- arð manna, sem býr við hungur, sjálfum sér nógan um fæðu. Stofnunin hafði einnig gert sér vonir um að ríki heims myndu setja sér það markmið, að hungri verði útrýmt úr heiminum fyrir árið 2025. Þess í stað héldu full- trúar ráðstefnunnar sér við gamla markmiðið, sem sett var árið 2009, að fækka um helming fyrir árið 2015 þeim sem búa við hungur. Matvælaaðstoð hefur til þessa einkum falist í því, að auðug ríki hafa sent matvæli til fátækra ríkja, frekar en að senda þang- að tækjabúnað, áburð og fræ eða útvega þeim aðstoð við áveitu- gerð og tæknikunnáttu, sem gæti komið bændum og veiðimönnum að gagni. Matvælin hafa svo að stórum hluta verið keypt af bændum í auðugu ríkjunum, þannig að þeir hafa hagnast á aðstoðinni. Matvælastofnunin segir að þetta verði að breytast. „Verkefni okkar er ekki bara að útvega þeim sem hungrar fæðu, heldur gera þeim kleift að afla sér fæðu sjálfir,“ sagði Ban. Matvælastofnunin segir að alþjóðasamfélagið hafi árum saman vanrækt landbúnaðar- mál. „Stöðug fjárfesting í land- búnaði, sérstaklega landbúnaði smábænda, er lykillinn að mat- vælaöryggi,“ segir stofnunin í yfirlýsingu sinni. Vonast er til að þessi ráðstefna verði til þess að sú breyting, sem boðuð var á G8-fundinum í L‘Aquila á Ítalíu í sumar, nái fyrr fram að ganga. Þar hétu leiðtogar átta helstu iðnríkja heims því að verja 20 milljörðum Bandaríkja- dala næstu þrjú árin í aðstoð við fátæka bændur. gudsteinn@frettabladid.is Ætla að efla aðstoð við landbúnað í þróunarríkjum Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir óþolandi að meira en milljarður manna búi við hungur. Í staðinn fyrir að senda fátækum mat þurfi að aðstoða bændur fátækra ríkja við matvælaframleiðslu. HRÍSGRJÓNARÆKT Í BÚRMA Á alþjóðlegu matvælaráðstefnunni í Róm samþykktu ríki heims að auka landbúnaðaraðstoð veru- lega. NORDICPHOTOS/AFP Í heiminum er meira en nóg til af mat. BAN KI-MOON FRAMKVÆMDASTJÓRI SAMEINU ÞJÓÐANNA MENNING Guðmundur Jónsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, heldur í dag fyrirlest- ur í hádegis- fyrirlestraröð Sagnfræðinga- félags Íslands. Yfirskrift fyrir- lestraraðarinn- ar er Hvað er kreppa? Fyrir- lestur Guðmund- ar ber titilinn Velferðarríkið og efnahagskreppur á Íslandi. Guðmundur hyggst velta afleið- ingum efnahagslegs óstöðugleika á velferðarríkið fyrir sér og svara þeirri spurningu hvort óstöðug- leikinn hafi verið svo mikill að hann hafi hindrað að hér hafi jafn- víðtækt velferðarkerfi og á öðrum Norðurlöndum fest sig í sessi. - kóp Sagnfræðingafélagið: Áhrif kreppu á velferðarríkið GUÐMUNDUR JÓNSSON SKRAUTLEGUR HATTUR Þessi maður mætti með heldur óvenjulegan höfuð- búnað til þess að fylgjast með alþjóð- legu maraþonhlaupi kvenna í Yokohama í Japan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.