Fréttablaðið - 19.11.2009, Qupperneq 2
2 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
VEIÐIMENNSKA Metaðsókn hefur
verið á námskeið Umhverfisstofn-
unar í meðferð skotvopna og vegna
umsókna um veiðikort á þessu ári.
Fjölgun frá síðasta ári nemur um
fimmtíu prósentum, að sögn Einars
Guðmann, sérfræðings stofnunar-
innar sem heldur utan um nám-
skeiðin. Síðasta námskeið þessa árs
var haldið 12. nóvember.
„Það er aukin ásókn í bæði skot-
vopna- og veiðikortaleyfi,“ segir
Einar og bætir við að þótt á síðasta
ári hafi mátt merkja nokkuð aukna
aðsókn á námskeiðin sé aukning á
þessu ári umtalsverð. Til þess að
fá skotvopnaleyfi og/eða veiði-
leyfi þarf fólk að sitja námskeið og
standast próf úr því hjá Umhverfis-
stofnun.
Á höfuðborgarsvæðinu hafa í
tvígang á þessu ári verið yfir 100
manns á námskeiði stofnunarinn-
ar, en Einar segir kjörfjölda á nám-
skeið vera nær fimmtíu manns. „Ég
held að flestir hafi orðið 110 á einu
námskeiði hjá okkur,“ segir hann
og áréttar um leið að aukningin
sé á landsvísu, ekki höfuðborgar-
svæðinu einu. „Á þessu ári erum
við búin að halda 57 námskeið í
sextán bæjarfélögum.“
Einar segir hins vegar ekki gott
að segja hvað valdi þessari aukn-
ingu. „Getgátur eru hins vegar um
að núna komi eldri menn í aukn-
um mæli á námskeiðin. Áður fyrr
voru þetta meira og minna strákar
og stelpur nær tvítugu.“ Nú virð-
ist hins vegar meira um að menn
sem jafnvel hafi haft skotvopna-
leyfi í mörg ár séu að verða sér
úti um réttindi. „Þetta er í sjálfu
sér mjög jákvætt og vísbendingar
um að menn séu
að gera sig lög-
lega. En hvort
það er vegna
tíðra frétta af
því að lögreglan
g r í p i me n n
fyrir skammar-
strik gegn veiði-
löggjöfinni er
erfið ara um að
segja. Ég held
raunar að þetta séu samverkandi
áhrif margra þátta,“ segir hann
og nefnir að auk fregna af auknu
eftir liti með veiðum hafi verið
fjallað meira um veiði, sem veki
áhuga. Þá hafi verið gerðar breyt-
ingar á rjúpnaveiðitímabilinu, sem
nú standi fram í desember. „Það
verður til þess að eftirspurn eftir
námskeiðum varir óvenju lengi.“
Annar þáttur sé svo að tekið hafi
verið upp rafrænt skráningarform
á námskeið stofnunarinnar á vefn-
um veiðikort.is.
Þá segir Einar að merkja megi að
veiðimönnum fjölgi. „Á hverju ári
hættir stór hópur veiðum sökum
aldurs og fram að þessu ári hafa
námskeiðin ekki gert annað en að
halda í við fækkunina sem orðið
hefur.“
Núna segir hann að um tólf þús-
und manns séu í hópi þeirra sem
endurnýi veiðikort sín árlega, en
fjöldinn hafi verið undir ellefu þús-
undum síðustu ár. olikr@frettabladid.is
Stóraukin ásókn er í
byssu- og veiðileyfi
Þeim sem sækja námskeið Umhverfisstofnunar í meðferð skotvopna hefur fjölgað
um fimmtíu prósent milli ára. Námskeiðin eru forsenda þess að fólk fái byssu- eða
veiðileyfi. Í ár voru haldin 57 námskeið í sextán bæjarfélögum.
VEIÐIRIFFLAR TIL SÝNIS Gamlir veiðirifflar til sýnis í framleiðslustöð byssuframleið-
andans Beretta. Í lögum er kveðið á um að eigendur vopna verði að geyma þau í
læstum hirslum, og fleiri en þrjár byssur í sömu eigu verði að geyma í sérstökum
byssuskáp vottuðum af lögreglu. NORDICPHOTOS/AFP
EINAR GUÐMANN
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Bílavarahlutir
ALÞINGI Verði nýtt frumvarp þing-
manna Sjálfstæðisflokksins um
skattlagningu séreignarsparnaðar
að lögum renna samtals 115 millj-
arðar króna til ríkisins og sveitar-
félaganna um næstu áramót; 74,6
milljarðar renna til ríkisins og 40,5
milljarðar til sveitarfélaganna.
Næstu ár myndu svo tæpir sjö
milljarðar renna árlega í ríkis-
sjóð og tæpir fjórir til sveitar-
félaganna.
Skattur er nú greiddur við
útgreiðslu séreignarsparnaðar en
ekki við greiðslu iðgjalda. Því vilja
sjálfstæðismenn breyta til að mæta
mikilli fjárþörf hins opinbera.
Telja þeir óskynsamlegt að leggja
enn þyngri byrðar á atvinnulíf eða
einstaklinga í formi skattahækk-
ana eftir þau áföll sem dunið hafa
yfir, eins og segir í greinargerð
með frumvarpinu. Þar kemur líka
fram að samsvarandi aðgerð gagn-
vart samtryggingarsjóðum hafi
komið til skoðunar en sú leið ekki
talin skynsamleg.
Í frumvarpinu er lagt til að líf-
eyrissjóðunum verði gefinn kost-
ur á og veitt heimild til að gefa út
stöðluð skuldabréf til allt að 25 ára
til að greiða staðgreiðsluna. Er það
gert til að sjóðirnir neyðist ekki
til að setja eignasöfn sín á bruna-
útsölu með tilheyrandi verðfalli til
að mæta skattgreiðslunum. - bþs
Sjálfstæðismenn leggja fram frumvarp um skattlagningu séreignarsparnaðar:
Skilar 115 milljörðum um áramótin
FYLGST MEÐ UMRÆÐUM Þrír þingmenn
Sjálfstæðisflokksins í þingsalnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hrönn, er þetta daglegt brauð
hjá ykkur?
„Já, það er svo sannarlega daglegt
brauð að leika sér að góðu hráefni.“
Hjónin Hrönn Vilhelmsdóttir og Þórólfur
Antonsson á Café Loka bjóða þessa
dagana upp á framandi rúgbrauðsrétti í
tilefni af athafnaviku.
FJÁRMÁL Frestur til að afþakka
sjálfvirka greiðslujöfnun verð-
tryggðra fasteignalána rennur út
í dag. Í gærmorgun höfðu 15.872
einstaklingar hafnað greiðslujöfn-
un á 25.839 lánum hjá Íbúðalána-
sjóði. Þetta er 31 prósent af lánum
einstaklinga hjá sjóðnum.
Hafi menn hug á því að fá
greiðslujöfnun síðar, þótt þeir hafi
sagt sig frá henni, geta þeir sótt
um hana síðar. Greiðslujöfnun
verður sjálfkrafa sett á öll verð-
tryggð fasteignalán frá og með
gjalddaga í desember, hafi menn
ekki afþakkað hana. Það er hægt
að gera í netbanka, á heimasíðum,
eða í næsta útibúi lánveitanda. - kóp
Sjálfvirk greiðslujöfnun:
Fresturinn
rennur út í dag
MANNÓSÍUR Sokkabuxurnar eru vissu-
lega sérstakar.
TÍSKA Nælonsokkabuxur fyrir
karlmenn eru að ryðja sér til
rúms vestanhafs ef marka má
vefsíðuna e-mancipate.net.
Sokkabuxurnar, sem kallast
mantyhose upp á ensku en það
er dregið af orðinu pantyhose,
gætu útlagst á íslensku sem
mannósíur.
Sokkabuxurnar virðast vinsæl-
astar meðal íþrótta- og útivistar-
manna, sem finnst þær halda
vel við og gefa þreyttum fótum
kraft. - bb/ sjá Allt
Sokkabuxur fyrir karlmenn:
Mannósíur fyrir
sterklega leggi
Þingforsetinn í Albaníu
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti
Alþingis, er nú í opinberri heimsókn í
Albaníu í boði albanskrar starfssystur
sinnar. Með Ástu í för eru varafor-
setarnir Steinunn Valdís Óskarsdóttir
og Siv Friðleifsdóttir. Munu þær í
heimsókninni ræða við þingmenn og
ráðherra.
ALÞINGI
SAMFÉLAGSMÁL Varaformenn
Framsóknarflokks, Samfylk-
ingar, Sjálfstæðisflokks og
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs skrifa saman grein í
Fréttablaðið í dag þar sem þau
fagna athafnaseminni sem fylgir
athafnavikunni og hvetja Íslend-
inga til að styðja jákvætt frum-
kvæði og taka þátt í því.
„Í gegnum sögu Íslands hafa
margvísleg áföll dunið yfir þjóð-
ina. Sum hafa verið af völdum
náttúru og önnur hafa verið
efnahagsleg. Það sem öll þessi
áföll eiga þó sameiginlegt er að
íslensku þjóðinni hefur tekist
að vinna sig út úr þeim,“ segir í
greininni. Eina leiðin til þess sé
með athafnasemi. - sh / sjá síðu 32
Skrifa sameiginlega grein:
Varaformenn
samstiga um
athafnasemi
STJÓRNSÝSLA 26 manna hópur, með Jóhann Ágúst Hans-
en viðskiptafræðing í fararbroddi, hefur kvartað til
umboðsmanns Alþingis vegna meints brots Stein-
gríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra á 2. gr. stjórnar-
skrárinnar. Í henni er fjallað um þrískiptingu valds.
Telur hópurinn að Steingrímur hafi gerst brotlegur
við greinina þegar hann sem fjármálaráðherra og
handhafi framkvæmdarvalds gerði Icesave-samn-
ingana og síðar sem alþingismaður og handhafi lög-
gjafarvalds veitti þeim brautargengi á Alþingi með
atkvæði sínu. Er það mat hópsins að þetta stangist
ekki einasta á við stjórnarskrá heldur gangi líka gegn
mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og
mannréttindasáttmála Evrópu. Í kvörtuninni segist
hópurinn telja háttsemi Steingríms brot á mannrétt-
indum sínum.
Meðal þeirra sem standa að kvörtuninni eru þing-
menn Hreyfingarinnar: Birgitta Jónsdóttir, Þór Saari
og Margrét Tryggvadóttir en áðurnefndur Jóhann
Ágúst er eiginmaður Margrétar.
Ragnhildur Helgadóttir, lagaprófessor við Háskól-
ann í Reykjavík, segir að þrátt fyrir aðra greinina sé
beinlínis gert ráð fyrir því í stjórnarskránni að ráð-
herrar séu jafnframt þingmenn. Í 51. grein segi að
ráðherrar eigi sæti á Alþingi en hafi aðeins atkvæðis-
rétt ef þeir séu jafnframt kjörnir þingmenn. Umkvört-
unin vegna tilviks Steingríms eigi því varla stoð í
stjórnarskránni. Það sé svo annað mál hvort það sé
heppilegt fyrirkomulag eða ekki að þingmenn séu ráð-
herrar. - bþs
Telja Steingrím J. Sigfússon hafa brotið stjórnarskrá og kvarta til umboðsmanns:
Segja mannréttindi sín brotin
KVARTAR TIL UMBOÐSMANNS Jóhann Ágúst Hansen er í farar-
broddi hópsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KÍNA, AP „Ég þekki hann ekki vel.
Við hittumst fyrst fyrir tveim-
ur árum,“ sagði Barack Obama
Bandaríkjafor-
seti um hálf-
bróður sinn,
Mark Ndesand-
jo. Þeir hittust
í Peking þegar
Obama kom
þangað á mánu-
dag.
Ndesandjo
býr í Kína
ásamt kínverskri eiginkonu sinni.
Hann sagðist vera í skýjunum
yfir því að hafa hitt bróður sinn:
„Og konan mín. Hún er mesti
aðdáandi hans. Ég held hún sé
enn að jafna sig.“
Ndesandjo gaf nýverið út
skáldsögu um föður þeirra,
Barack Obama eldri, sem fór illa
með börn sín og fjölskyldu. - gb
Obama Bandaríkjaforseti:
Hitti hálfbróð-
ur sinn í Kína
MARK NDESANDJO
SPURNING DAGSINS