Fréttablaðið - 19.11.2009, Qupperneq 12
19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun
hefur í nýrri skýrslu gert athuga-
semdir við stjórnsýslu Varnar-
málastofnunar (VMSÍ). Úttektin
var gerð að ósk utanríkisráðuneytis-
ins sem vildi fá úr því skorið hvort
VMSÍ hefði brotið í bága við laga-
fyrirmæli og jafnframt hvort fjöl-
skyldu- og vinatengsl stjórnenda
stofnunarinnar kynnu að hafa
valdið vanhæfi við afgreiðslu ein-
stakra mála.
Utanríkisráðuneytið tilgreindi
fjögur atriði í beiðni sinni til Ríkis-
endurskoðunar. Varða þau ráðn-
ingar starfsmanna og opinber inn-
kaup.
VMSÍ keypti símkerfi af fyrir-
tækinu Svar tækni ehf. í desem-
ber 2008 fyrir sextán milljónir
króna án útboðs. VMSÍ taldi að
kaupin hefðu verið undanskilin
útboðsskyldu á grundvelli laga
um opinber innkaup sem snúa
að öryggisráðstöfunum. Ellisif
Tinna Víðisdóttir, forstjóri VMSÍ,
er mágkona framkvæmdastjóra
Svar tækni. Hún segist ekki hafa
komið nálægt kaupum símkerfis-
ins. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar
er ekki efast um að Ellisif hafi
sagt sig frá málinu en gagnrýnir
að sú ákvörðun var ekki skjalfest
hjá stofnuninni né hafi utanríkis-
ráðuneytinu verið greint frá þeirri
ákvörðun með óyggjandi hætti.
Ríkisendurskoðun skoðaði einnig
kaup VMSÍ á rafjöfnunarbúnaði frá
HBT hf. út frá sömu forsendum og
kaupin á símkerfinu. Ríkisendur-
skoðun telur að forstjóri VMSÍ og
aðrir stjórnendur hafi ekki verið
vanhæfir til að taka ákvarðanir
um kaup á búnaðinum en Jóhann
R. Benediktsson, fyrrverandi
lögreglu stjóri á Suðurnesjum, var
framkvæmdastjóri fyrirtækisins á
þeim tíma sem kaupin áttu sér stað.
Hann er fyrrverandi yfirmaður
Ellisifjar auk nokkurra annarra
stjórnenda VMSÍ.
VMSÍ taldi að kaupin á
rafjöfnunar búnaðinum væru undan-
skilin útboðsskyldu á grundvelli
sömu laga og kaupin á símkerfinu.
Á það fellst Ríkisendurskoðun
ekki og telur að kaupin hefði átt
að bjóða út og vegna umfangsins,
en búnaðurinn kostaði 38 milljónir
króna, hefði slíkt útboð átt að ná til
alls EES-svæðisins.
Utanríkisráðuneytið taldi vafa
leika á að VMSÍ hefði staðið rétt
að ráðningu starfsmanna við stofn-
unina. Ríkisendurskoðun kemst að
þeirri niðurstöðu að svo hafi ekki
verið enda viðurkennir ráðuneytið
að hafa misskilið upplýsingar um
ráðningarnar. svavar@frettabladid.is
Lög ekki brotin en
stjórnsýsla gagnrýnd
Ríkisendurskoðun gagnrýnir stjórnsýslu Varnarmálastofnunar en telur ekki að
lagafyrirmæli hafi verið brotin við ráðningar starfsmanna eða opinber inn-
kaup á búnaði af fyrirtækjum sem tengdust forstjóra stofnunarinnar.
UMDEILD STOFNUN Varnarmálastofnun er til húsa á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
FANGELSISMÁL Fangi á Litla-Hrauni
var tekinn með fjörutíu grömm
af nokkuð hreinu amfetamíni
innvortis í gær. Fíkniefnahundur
Litla-Hrauns, Amiga, merkti á
hann eftir heimsóknartíma, þar
sem hann hafði fengið heimsókn.
Maðurinn var þegar tekinn til
rannsóknar og fundust efnin í
endaþarminum á honum.
Vitað er hver var í heimsókn hjá
fanganum. Málið var þegar kært
til lögreglunnar á Selfossi þar sem
það er til rannsóknar.
Þá kom pólskur fangi með fíkni-
efni í skónum úr Héraðsdómi
Reykjaness í fyrradag. Þangað
hafði hann verið fluttur úr lausa-
gæslu á Litla-Hrauni þar sem hann
þurfti að mæta fyrir dóm sem einn
af átta manna hóp sem er nú fyrir
dómi vegna stórfelldra þjófnaðar-
mála. Árvakurt starfsfólk fang-
elsisins á Litla-Hrauni fann þrjú
grömm af amfetamíni og þrjátíu
og sjö töflur af rítalíni og öðrum
lyfseðils skyldum ávanabindandi
efnum í skósóla fangans við kom-
una til baka í fangelsið.
„Þetta er afrakstur ótrúlega
góðrar vinnu fangavarða á Litla-
Hrauni við óviðunandi aðstæður,
þar sem allir öryggisklefar og
aðrar vistarverur eru yfirfullar,“
segir Páll E. Winkel, forstjóri
Fangelsismálastofnunar ríkisins.
„Svona árangur í starfi við þær
aðstæður er afrek.“ - jss
Fíkniefnahundurinn Amiga á Litla-Hrauni kom upp um fíkniefnasmyglara:
Fundu amfetamín í endaþarmi fanga
LITLA-HRAUN Tveir fangar voru í vikunni
teknir með fíkniefni í fangelsinu.
Þú færð Michelin dekkin hjá
Hjólbarðaþjónustu N1
...og hef ég þó prófað fjölda vetrardekkja gegnum
tíðina, negld og ónegld, nú síðast undir EuroRAP
mælingabílnum. Dekkin gefa frábært grip við allar
aðstæður og eru hljóðlát og endingargóð. Best af
öllu er þó, að eyðslan er 0.52 lítrum minni á
hundraðið en á sumardekkjunum sem bíllinn kom
á frá framleiðanda.“
„Michelin X-ICE eru bestu
vetrardekk sem ég hef
prófað hingað til...
Ólafur Kr. Guðmundsson.
Tæknistjóri EuroRAP á Íslandi og dómari í Formúlu 1.
Sókn til
betra samfélags
13:00 Árangur og umbætur
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra
og formaður Samfylkingarinnar
Heilbrigt viðskiptaumhverfi
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra
14:00 Kaffi hlé
14:15 Málefnanefndir
Fulltrúar nefnda gera grein fyrir umræðum.
15:00 Almennar umræður og fyrirspurnir
Ráðherrar sitja fyrir svörum.
Önnur mál
16:30 Fundi slitið
Fundarstjórar: Margrét S. Björnsdóttir,
formaður framkvæmdastjórnar og
Oddný G. Harðardóttir, þingkona.
www.xs.is Allir velkomnir
Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar
Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Reykjanesbæ,
laugardaginn 21. nóvember kl. 13:00
Athugið:
• Málefnanefndir funda kl. 10–12 á sama stað.
• Verkalýðsmálaráð fundar í hádeginu.
• Örnámskeið í notkun á samskiptavefnum
Facebook kl. 12:15.