Fréttablaðið - 19.11.2009, Qupperneq 17
ÖRYGGISMÁL Björgunarskip Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar,
Húnabjörg á Skagaströnd, var
kallað út klukkan 10.45 í gær-
morgun vegna vélarvana báts,
tvær sjómílur suðvestur af
Skagaströnd. Um rúmlega
tuttugu metra langan afturbyggð-
an trébát var að ræða sem hafði
fengið snurvoð í skrúfuna. Þrír
menn voru um borð.
Húnabjörgin fór úr höfn tólf
mínútum eftir að útkall barst
og kom að bátnum innan við
fimmtán mínútum síðar. Hinn
vélarvana bátur var dreginn til
hafnar á Skagaströnd. Veður var
fínt á svæðinu og því ekki talin
mikil hætta á ferðum. - shá
Bátur dreginn í land:
Fékk snurvoð í
skrúfuna
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Össur ræddi
meðal annars við ítalskan starfsbróður
sinn um aðildarumsókn Íslands að
Evrópusambandinu.
UTANRÍKISMÁL Össur Skarp-
héðinsson utanríkisráðherra
sat leiðtogafund Matvæla- og
landbúnaðar stofnunar Samein-
uðu þjóðanna í Róm í gær. Efni
fundarins var fæðuöryggi.
Í tilkynningu utanríkisráðu-
neytisins kemur fram að Össur
hafi í ræðu sinni lagt áherslu á
aðgerðir til að auka fæðu öryggi
á komandi árum. Íslendingar
væru tilbúnir til að deila þekk-
ingu sinni með umheiminum í
þeim efnum. Þá sat ráðherra
fund með ítölskum starfsbróður
sínum, Franco Frattini, um sam-
skipti ríkjanna og aðildarumsókn
Íslands að Evrópusambandinu.
- kóp
Utanríkisráðherra:
Situr fund um
matvælaöryggi
ÍSRAEL, AP Ísraelsk stjórnvöld
undirbúa að níu hundruð íbúðir
verði reistar í austurhluta
Jerúsalem borgar, en Palestínu-
menn gera kröfu til þess að sá
hluti borgarinnar verði framtíðar-
höfuðborg Palestínuríkis.
Saeb Erekat, aðalsamningafull-
trúi Palestínustjórnar, segir til-
gangslítið að hefja samningavið-
ræður þegar Ísraelar haldi áfram
að byggja við hverfi gyðinga í
austanverðri borginni.
Ísrael hertók austurhluta
borgar innar árið 1967 ásamt
Vestur bakkanum og Gasa. - gb
Palestínumenn ósáttir:
Ísraelar huga að
frekari byggð
ÍRAN, AP Fimm þeirra sem tóku
þátt í mótmælum í Teheran,
höfuð borg Írans, í kjölfar
umdeildra forsetakosninga í júní
voru í gær dæmdir til dauða.
Að minnsta kosti þrír aðrir
úr hópi mótmælenda hafa hlotið
dauðadóm. Að auki hefur 81 verið
dæmdur til fangelsisvistar frá
hálfu ári allt upp í fimmtán ár.
Mótmælendur sökuðu stjórn-
völd um kosningasvik þegar til-
kynnt var að Mahmoud Ahmadin-
ejad væri sigurvegari og sæti því
annað kjörtímabil í embættinu.
Óeirðirnar voru þær mestu í
landinu í þrjátíu ár. - gb
Hart tekið á mótmælendum:
Fimm dæmdir
til dauða í Íran
SKIPULAGSMÁL Meirihluti Sjálf-
stæðisflokks og óháðra í skipu-
lags- og byggingarnefnd Álftaness
hefur samþykkt byggingarleyfi á
umdeildri sjávarlóð á Mið skógum
8.
Mikll styr hefur staðið um bygg-
ingu húss á umræddri lóð. Meiri-
hluti Á-listans, sem sprakk í fyrra-
vor, heimilaði ekki að húsið yrði
reist og afmáði hana sem bygg-
ingarlóð með breyttu skipulagi.
Úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála felldi nýja skipu-
lagið hins vegar úr gildi og einnig
ákvörðun bæjarstjórnar Álftaness
um að neita lóðar eigendunum um
byggingarleyfi.
Á fundi skipulags- og byggingar-
nefndar Álftaness á mánu-
dag lagði fulltrúi Á-listans til
að byggingarleyfis umsókninni
yrði aftur hafnað „með tilvís-
un í ákvæði um hverfisvernd í
aðalskipulagi Álftaness 2005-
2024 og samþykkt deiliskipulag
fyrir Vestur-Skógtjarnarsvæðið,
enda verði samið um sanngjarnar
bætur fyrir réttmætar væntingar
um að þarna yrði leyft að byggja.“
Þá sagði fulltrúi Á-listans hús á
bakka Skógtjarnar stríða gegn
samþykktu aðalskipulagi og
ákvæðum um hverfisvernd.
Meirihlutinn vísaði hins vegar
í lögfræðiálit sem aflað var og
samþykkti umsóknina þar sem
hún uppfyllti ákvæði byggingar-
reglugerðar. Ítrekað var að sam-
þykktin næði til framkvæmda á
lóðinni ofan núverandi sjóvarnar-
garðs. - gar
Nýr meirihluti í bæjarstjórn Álftaness vill hlíta niðurstöðu úrskurðarnefndar:
Meirihlutinn leyfir umdeilt hús á sjávarlóð
MIÐSKÓGAR 8 Eftir áralangan ágreining um heimild til byggingar einbýlishúss á
þessari sjávarlóð framan við íbúðarhús fyrrverandi forseta bæjarstjórnar hefur leyfið
nú verið veitt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FIMMTUDAGUR 19. nóvember 2009 17
Opið í útibúinu
í Kringlunni
til klukkan 21 í kvöld
Komdu og kynntu þér úrræði
vegna húsnæðis- og bílalána
Að undanförnu höfum við kynnt úrræði með það að markmiði að auðvelda
viðskiptavinum að taka upplýstar ákvarðanir um fjármál heimilisins.
Má þar nefna höfuðstólslækkun og greiðslujöfnun fyrir einstaklinga á:
• verðtryggðum húsnæðislánum
• erlendum húsnæðislánum
• bílalánum og bílasamningum
Úrræðin henta viðskiptavinum misvel og við viljum hjálpa þér að vega
og meta kosti þeirra og galla. Þess vegna bjóðum við viðskiptavinum að
setjast niður með starfsfólki okkar í kvöld og fara ítarlega yfir þau úrræði
sem eru í boði. Ekki verður opið hjá gjaldkerum.
Allir viðskiptavinir Íslandsbanka velkomnir.HV
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
9
-2
0
8
3
Starfsfólk okkar í Þjónustuverinu
verður einnig við símann til kl. 21
í kvöld. Síminn er 440 4000.