Fréttablaðið - 19.11.2009, Page 26
26 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Velta: 47,9 milljónir
OMX ÍSLAND 6
806 +0,30%
MESTA HÆKKUN
ÖSSUR 0,37%
MAREL 0,15%
MESTA LÆKKUN
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atlantic Petroleum 166,00
+0,00% ... Bakkavör 1,50 +0,00% ... Føroya Banki 134,00 +0,00%
... Icelandair Group 4,00 +0,00% ... Marel 68,00 +0,15% ... Össur
136,50 +0,37%
Ósáttur við rannsókn
Regin Freyr Mogensen, yfirlögfræðingur
Kaupþings, hætti störfum í vikunni. Hann var
nýsestur í stjórn 1998 ehf., móðurfélags Haga, í
nafni bankans. Regin var einn af þremur stjórnar-
mönnum og hafði þar Kaupþing tvo á móti
Jóhannesi Jónssyni, stofnanda Bónuss. Regin
sagði í samtali við Vísi í fyrradag brotthvarf sitt
úr bankanum ekki tengjast stjórnarsetunni.
Heyrst hefur að stjórn Kaupþings hafi
látið undan pólitískum þrýstingi
og fengið utanaðkomandi aðila til
að kanna hvort Regin hafi farið út
fyrir heimildir í stjórn 1998. Niður-
staðan mun hafa verið sú að svo
var ekki. Eftir því sem næst hefur
komist var Regin ósáttur við van-
traustið sem fólst í rannsókninni
og sagði starfi sínu lausu. Ekki náðist
í Regin til að bera þetta undir hann þegar
eftir því var leitað í gær.
Ókeypis og ekki nýtt
Og meira af Kaupþingi. Bankinn kynnir við-
skiptavinum sínum um þessar mundir það
kostaboð að þeir geti lækkað yfirdráttarheimildir
sínar í netbankanum eftir hentugleika. Breyting-
unni fylgja hvorki skilyrði né skuldbindingar og
gefur þetta viðskiptavinum bankans færi á að
ráða sjálfir ferðinni þegar kemur að því
að lækka greiðslubyrð-
ina. Flestir eru með
yfirdráttarheimildir og
nýta margir hana ekki.
Á mannamáli má segja
að yfirdráttarheimild
sem kosti ekki neitt
sé svipað brauði sem
maður kýs að kaupa
ekki. Það kostar
ekki neitt.
Peningaskápurinn...
Umtak, félag sem heldur utan um
fasteignir olíufélagsins N1, skuldaði
13,5 milljarða króna í lok árs 2007. Í
lok ársins átti félagið eignir á móti
skuldum, eða fyrir tæpa 14,4 millj-
arða króna.
Skuldirnar eru að mestu í evrum,
svissneskum frönkum og japönsk-
um jenum og standa eftir hrun krón-
unnar nú í tæpum tuttugu milljörð-
um króna.
N1 stofnaði Umtak í ársbyrjun
2007. Félagið hefur ekki skilað árs-
reikningi fyrir síðasta ár.
Sævar Þór Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Umtaks, segir hafa
verið skrifað undir ársreikning um
mitt ár og hafi honum verið skilað
til ársreikningaskrár. Þá sé það því
miður algengt að lán fyrirtækja í
erlendri mynt hafi hækkað mikið við
fall krónunnar. Hann segir öll lán í
skilum og enga gjalddagar í nánustu
framtíð.
Fréttablaðið greindi frá því á
þriðjudag að framkvæmdastjórar
N1, sem eru með afkomutengd laun,
hafi síðustu daga verið að innleysa
bónusa sína. Þeir nemi í einhverj-
um tilvikum tugum milljóna króna.
Ástæðan mun ótti þeirra við að lán-
ardrottnar félagsins kunni að taka
það yfir.
N1 er með 1,5 milljarða króna lán
á gjalddaga fyrir mitt næsta ár og
sjö milljarða á gjalddaga árið eftir.
- jab
Fasteignafélag N1
skuldum hlaðið
Skilanefnd Glitnis hefur enn ekki
fundið hvar skuldabréfakrafa upp
á 140 milljarða króna liggur í bók-
haldi þrotabús gamla bankans.
Glitnir gaf skuldabréfið út á
fyrri hluta síðasta árs. Fyrir hálf-
um mánuði kom upp á fundi með
kröfuhöfum að krafan, sem jafn-
gildir fimm prósentum af heildar-
kröfum í búið, stemmdi ekki við
bókhaldið og var endurskoðenda-
fyrirtækið Deloitte fengið til að
skoða málið. Árni Tómasson, for-
maður skilanefndar Glitnis, sagði í
samtali við Fréttablaðið í kjölfarið
ekkert óeðlilegt þurfa að vera við
misræmið. Skuldabréfið kunni að
vera fært undir öðrum bókhalds-
lið. Niðurstöðu var vænst á föstu-
daginn var.
Leitin stendur hins vegar enn
yfir og mun tilkynning um málið
verða gefin út fljótlega, samkvæmt
upplýsingum frá skilanefndinni.
Ekki liggur fyrir hver á skulda-
bréfið en frestur til að skila inn
kröfu í bú Glitnis rennur út eftir
viku. Reiknað er með því að þorri
krafnanna skili sér í búið síðustu
dagana fyrir lokafrestinn. - jab
Skuldabréfið ófundið
ÚR VERSLUN N1 Félag sem heldur utan
um fasteignir olíufélagsins N1 skuldar
milljarða í erlendri mynt.
BLAÐAÐ Í PAPPÍRUM Enn er unnið að
því að stemma af bókhald þrotabús
Glitnis. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fjögur fyrirtæki, Eskill, Land-
steinar strengur, Kögun og
Skýrr, hafa verið sameinuð undir
heiti þess síðastnefnda. Gestur
G. Gestsson hefur verið ráð-
inn forstjóri, en hann var áður
framkvæmdastjóri tæknisviðs
Vodafone og stýrði þar áður Marg-
miðlun.
Þórólfur Árnason, forstjóri
Skýrr, og Sigurjón Pétursson, for-
stjóri Landsteina Strengs, munu
láta af störfum hjá fyrirtækinu.
Sigrún Eva Ármannsdóttir, for-
stjóri Eskils, og Bjarni Birgis-
son, forstjóri Kögunar, munu
starfa áfram hjá fyrirtækinu.
Sameininguna bar brátt að; starfs-
fólki var tilkynnt um hana í gær og
forstjórar kvöddu starfsfólk sitt.
Starfsfólk sameinaðs fyrirtæk-
is er um 320 talsins og áætlaðar
tekjur árið 2009 eru tæplega fimm
milljarðar króna. Viðskiptavinir
þess eru um þrjú þúsund talsins.
„Við sameininguna verða hags-
munir viðskiptavina í hvívetna
hafðir að leiðarljósi. Hið nýja sam-
einaða fyrirtæki hvílir á sterk-
um stoðum gömlu fyrirtækjanna,
sem öll hafa náð góðum árangri
og áunnið sér eftirsóknarvert
orðspor úti í atvinnulífinu,“ segir
hinn nýráðni forstjóri. - kóp
Fjögur fyrirtæki í eina sæng
GESTUR G. GESTSSON Nýi forstjórinn
kemur frá Vodafone og tekur við rekstri
fyrirtækisins. Um 320 manns vinna hjá
nýja fyrirtækinu.
Saga Investments býður
1,7 milljarða króna fyrir
Íslenska erfðagreiningu.
Erlendir fjölmiðlar segja
DeCode hafa runnið út á
tíma. Þeir hafa áhyggjur
af lífsýnabanka Íslenskrar
erfðagreiningar.
Fjölmargir erlendir fjölmiðlar hafa
birt fréttir um greiðslustöðvun
DeCode, sem lögð var fram í Dela-
ware í Bandaríkjunum á þriðjudag.
Þeir eru sammála um að sala á
genaprófum hafi ekki staðist vænt-
ingar, handbært fé fyrirtækisins
brunnið upp og það lent í greiðslu-
erfiðleikum.
Á sama tíma og greiðslustöðvun
deCode var lögð fram gerði fjár-
festingarfélagið Saga Investments
bindandi tilboð í reksturinn. Til-
boðið hljóðar upp á fjórtán millj-
ónir dala, jafnvirði 1,7 milljarða
íslenskra króna. Þar af er ellefu
milljónum ætlað að duga á greiðslu-
stöðvunartíma DeCode sem endar
í janúar, að sögn Bloomberg-frétta-
veitunnar.
Nokkrir netmiðlar sögðu í gær
kaupin tímabundna lausn. Hætt
væri við að félagið færi á hliðina
innan nokkurra ára, rættist ekki
úr áætlunum.
Breska dagblaðið Times varaði
við því að nýir eigendur fyrir-
tækisins kynnu með kaupunum
að komast yfir dýrmætan lífsýna-
banka Íslenskrar erfðagreining-
ar og gætu nýtt hann með öðrum
hætti en upphaflega hefði staðið
til. Í safni Íslenskrar erfðagrein-
ingar (ÍE) eru lífsýni 140 þúsund
Íslendinga. Álíka mikið af gögn-
um er frá erlendum einstakling-
um. Persónuvernd hefur lýst yfir
áhyggjum af afdrifum safnsins.
Kári Stefánsson, forstjóri
DeCode, segir í samtali við Frétta-
blaðið ÍE eiga lífsýnabankann og
lúti hann afar ströngum skilyrðum
Persónuverndar og fleiri eftirlits-
aðila. Ekki komi til greina að skilja
hann frá félaginu. Sé það stefnan
verði ekkert úr sölunni á Íslenskri
erfðagreiningu. jonab@frettabladid.is
Lífsýnasafnið ekki til sölu
ÚR HÚSAKYNNUM ÍE Fjölmargir hafa áhyggjur af afdrifum verðmæts lífsýnabanka
Íslenskrar erfðagreiningar. Í honum eru gögn þrjú hundruð þúsund einstaklinga.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Veldu það
sem þú þarft
Við komum með það til
þín, fyllum á og tryggjum
að vinnustaðurinn þinn eigi
alltaf allt til alls.
Virðisaukaskattskyld velta
fyrirtækja í júlí og ágúst nam
460,1 milljarði króna í júlí og
ágúst. Þetta er 0,7 prósenta
samdráttur að nafnvirði á milli
ára. Að teknu tilliti til verðlags-
þróunar er samdrátturinn rúm
tíu prósent. Þetta kemur fram
í Hagsjá hagfræðideildar Nýja
Landsbankans (NBI).
Af tíu atvinnugreinum hefur
veltan í flugsamgöngum aukist
mest að nafnvirði, um tæpan
þriðjung. Samdrátturinn er
mestur í bygginga- og mann-
virkjagreinunum en veltan þar
hefur dregist saman um tæp
fimmtíu prósent.
- jab
Veltan dróst
saman um 10%