Fréttablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 35
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
BURBERRY stendur líkt og mörg önnur tískufyrirtæki höllum
fæti eftir efnahagsþrengingar síðasta árs. Fyrirtækið hefur nú
ákveðið að breyta um áherslur og leggja meira upp úr fylgihlutum
en fötum til að bregðast við breyttu viðskiptaumhverfi.
„Ég er í kjól sem ég keypti fyrir
tólf árum á kílóamarkaði í Spút-
ník og er svo heppin að passar enn
á mig,“ segir Sigríður Ásdís Jón-
asdóttir sem ávallt er kölluð Sigga
Dís. Það voru litirnir í kjólnum
sem heilluðu hana á sínum tíma.
„Hann er svartur í grunninn
en svo eru margir litir í honum.
Þannig er bæði hægt að nota hann
sem sumarkjól og á veturna yfir
hlýrri föt,“ segir hún.
Á höndunum ber Sigga Dís fal-
legar handstúkur sem hún bjó til
sjálf í vinnunni en hún starfar
hjá JM design. „Stúkurnar eru úr
þæfðri ull með bómullarfóðri og
stinga því ekki. Mér finnst þær
ægilega hlýjar og praktískar en
einnig mjög fallegar,“ segir Sigga
Dís sem notar stúkur bæði þegar
kalt er í veðri en einnig í vinn-
unni þegar hún býr til hálsmen
og eyrnalokka. „Við notum einn-
ig þæfða ull í skartið. Til dæmis
þæfðar ullarperlur og alls konar
steina, perlur, kristalla og hraun,“
útskýrir Sigga Dís en fylgihlutir
á borð við stúkur, trefla, sjöl og
skart eru aðalsmerki JM design.
Við kjólinn er Sigga Dís í legg-
hlífum sem hún segist mjög hrifin
af. „Ég geng mikið í kjólum og á
veturna er gott að vera í þykkum
sokkabuxum og legghlífum við,“
segir hún og bætir við að yfir-
leitt sé fataval hennar samtíning-
ur af huggulegheitum og praktík.
Hún segist vera mjög hagkvæm í
fatakaupum og fatavali. „Ég nota
það sem fellur til og nýti tæki-
færin þegar ég dett inn á útsölur
og lagersölur auk þess sem Rauði
krossinn er líka alveg ágætur.
solveig@frettabladid.is
Huggulegheit og praktík
Sigríður Ásdís Jónasdóttir er hagkvæm í sínum tískuinnkaupum. Hún notar það sem til fellur og er dug-
leg að nýta sér útsölulagera og Rauða krossinn auk þess sem hún býr til eigin fylgihluti í vinnunni.
Sigga Dís í kjól sem hún keypti fyrir tólf árum á kílóamarkaði í Spútník. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
Fyrst og fremst í heilsudýnum
JÓLATILBOÐ
á stillanlegum rúmum
6 mán.
vaxtalausar greiðslur
• Dregur úr vöðvaspennu
• Höfuð- háls- og bakverkjum
• Hefur góð áhrif gegn streitu
• Er slakandi og bætir svefn
Opið virka daga frá kl. 9 -18 og laugardaga til jóla kl. 11-16
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Verð frá 9.750 kr.
Nálastungudýnan
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is