Fréttablaðið - 19.11.2009, Side 36
19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR2
LÍFSMOTTÓ fyrirsætunnar Kate Moss er „Nothing tastes as
good as skinny feels“ sem útleggst á íslensku sem, „ekkert er svo
gómsætt að það jafnist á við það að vera grannur“. Þetta lét hún
hafa eftir sér í nýlegu viðtali við WWD-tískuvefsíðuna.
Munir sem tengjast Michael Jackson verða boðnir upp í
New York um helgina.
Gimsteinum skreyttur hanskinn sem Michael Jackson klæddist þegar
heimurinn leit í fyrsta sinn danssporið Moonwalk verður boðinn upp
21. nóvember næstkomandi. Jackson kom fram í sjónvarpsþættinum
Motown 25 árið 1983, söng lagið Billie Jean og dansaði þá fyrir áhorf-
endur sem urðu gáttaðir á fótafimi poppkóngsins verðandi.
Talið er að fyrir hanskann sem framleiddur var í Kóreu á sínum
tíma, fáist um 40 til 60 þúsund dollarar en líklegt er að boð fáist víða
að úr heiminum.
Fleiri munir Jacksons verða á uppboðinu sem haldið verður á
Hard Rock Café á Manhattan í New York um helgina. Þar má nefna
glitrandi skó, myndir af Charlie Chaplin sem Jackson teiknaði þegar
hann var níu ára, svört skyrta sem goðið hafði áritað, hattar, Benz-
bifreið frá 1985 og handskrifuð bréf. Hreinn fjársjóður fyrir Jacksons-
áhangendur um allan heim.
Hanski Jacksons boðinn upp
Hanskinn er talinn
vera 40 til 60 þúsund
dollara virði.
Breski rýmis- og vöruhönnuður-
inn Aaron Charles Bullion sneri
sér að fatahönnun fyrir skemmstu
og gerir herraskyrtur og kven-
mannsaxlabönd. Á teikniborðinu
eru síðan ullarvörur og yfirhafnir
fyrir konur bæði og karla.
„Ég elska föt og er nánast öfund-
sjúkur út í þá óendanlegu mögu-
leika sem konur hafa í fatavali.
Að sama skapi finnst mér karl-
mannsföt oft skorta sjarma. Fram
til þessa hef ég hvorki haft tæki-
færi né gilda ástæðu til að snúa
mér að fatahönnun að neinu ráði
en þegar önnur verkefni runnu út
í sandinn vegna kreppunnar ákvað
ég að slá til.“ Aaron gerir aðsniðn-
ar herraskyrtur með úthugsuðum
smáatriðum og kvenmannsaxla-
bönd sem eru ígildi skartgripa.
„Þau má bæði bera á hefðbundinn
hátt en allt eins láta hanga niður
með pilsi eða gallabuxum.“
Aaron kom hingað til lands fyrir
nokkrum árum og kynntist þá
kærustunni, Þóreyju Björk Hall-
dórsdóttur fatahönnuði, sem hann-
ar undir merkinu Eight of Hearts.
Hann hefur unnið við sjónvarps-
framleiðslu og auglýsingagerð
hjá Sagafilm og Pegasus, við leik-
myndagerð í Clint Eastwood mynd-
inni Flags of Our Fathers og við
að útbúa senur og leikmuni fyrir
Stelpurnar. Þá hefur hann starf-
að sem sviðsmaður í Þjóðleikhús-
inu og við rýmishönnun. „Mér
var falið að hanna sjö hús, fjögur
þeirra voru byggð en hin þrjú risu
aldrei sökum efnahagshrunsins.“
Aaron beinir því sköpunargáf-
unni í nýjan farveg og ætlar að sjá
hvert það leiðir hann. „Skyrturnar
verða fáanlegar í herrafataverslun
Kormáks og Skjaldar innan tíðar
en auk þess er hægt að nálg-
ast vörurnar hans á Pop-
up-mörkuðunum sem hafa
skotið upp kollinum með
reglulegu millibili frá
því í haust. Þar er um
að ræða milliliðalausa
verslun frá hönnuðum
til neytenda en markað-
irnir skjóta upp kollin-
um á nýjum stað hverju
sinni. „Þetta er hefð sem
hefur skapast í Lond-
on, New York og öðrum
tískuborgum og gefist
afar vel,“ segir Aaron en
hægt er að fylgjast með
því hvar næsti markaður
verður á Facebook með
því að slá inn: Milliliða-
laus verzlun, frá hönnuði
til neytandans.
vera@frettabladid.is
Axlabönd sem jafnast
á við skartgripi
Aaron Charles Bullion hefur komið víða við síðan hann kom hingað til lands fyrir nokkrum árum. Hann
hefur starfað við sjónvarpsframleiðslu og rýmishönnun en sneri sér nýlega að því að hanna föt.
Aaron beinir nú sköpunargáfunni í nýjan farveg. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Axlaböndin eru ígildi
skartgripa og má bera með
hefðbundnum hætti eða láta
hanga niður með pilsi eða
gallabuxum.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
/A
FP
!
"#$%
&'( )* +
,-%,.,/,-%,.,0&
Frábært úrval af flottum
jólafötum frá
Stærðir 42-56
Auglýsingasími
– Mest lesið