Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.11.2009, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 19.11.2009, Qupperneq 40
 19. NÓVEMBER 2009 FIMMTUDAGUR Margir vinnuveitendur hafa komið á þeirri hefð að gefa starfsfólki sínu eðalkjöt í hátíðamatinn. Annaðhvort hangikjöt eða hamborgar- hrygg eða jafnvel hvort tveggja. „Það er mikill annatími hér þessar vikurnar. Bæði eru jólahlaðborðin að sigla af stað nú um helgina og svo fer kjöt frá okkur í jólapakka starfsfólks stórra og smárra fyrir- tækja,“ segir Vilbergur Sverris- son, einn af þremur eigendum kjötvinnslunnar Esju í Dugguvogi í Reykjavík. Fullyrða má að kjöt sé gjöf sem komi að góðum notum víða og Vilbergur segir suma ganga hreinlega að því vísu hjá sínu fyrirtæki. Í Esju eru unnar margs konar kjötvörur. Þær fara þó yfirleitt ekki í verslanir heldur mötu- neyti, veitingastaði og fyrirtæki að sögn Vilbergs nema svokölluð drottningar skinka sem fer á mark- að fyrir jól og páska. Á leið inn í vinnslusalina er gengið fram hjá stórum ofni sem brennir sagi. Þar er álegg í reyk og þaðan leggur ljúfan og léttan ilm. Vilbergur er nýbúinn að hengja upp úrbeinuð svínalæri í rekka og búa þau undir reyk. Eftir reykingu kallast þau bayonneskinka. „Við gerum þetta dálítið öðru- vísi en þeir sem eru á búðamark- aði,“ segir hann. „Við þurfum ekki að salta kjötið mikið til að auka geymsluþolið því við verkum það nánast beint á borðin og í pakkana rétt fyrir hátíðina.“ Hangikjötslærin eru til bæði heil og úrbeinuð í Esju en Vilberg- ur segir þau reykt úti á landi því taðreykur sé ekki vinsæll innan höfuðstaðarins. - gun Lokkandi ilmur af hátíðamat Vilbergur Sverrisson með girnilegan hamborgarhrygg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Lárus Þórhallsson stoltur með jólahangikjötið. Londonlamb í vinnslu hjá Pétri Karls- syni. Salami og spægipylsa. Bayonneskinkan rétt ófarin í reykingu. ● ALLIR FÁ ÞÁ EITTHVAÐ ÆTT Þegar gefa þarf mörgum og ólíkum einstaklingum jóla- gjöf getur verið snúið að finna eitthvað sem öllum líkar. Þá er góð lausn að lauma einhverju bragðgóðu í jólapakkann. Flestir vilja gera sér dagamun í mat og drykk yfir hátíðirnar en hafa kannski ekki tíma eða hugmyndaflug til að kynna sér og kaupa allt sem er í boði. Þá er vel þegið að fá góðan glaðning í gogg og ekki verra ef hann er óvæntur. Ostakörfur eru sí- gildar og hitta alltaf í mark og ekki er verra að skeyta einhverri framandi sultu eða mauki með. Reyktur og grafinn lax, fiskpaté og fleira gómsætt úr hafinu gleður líka á þeirri miklu kjöthátíð sem jólin eru og svo má ekki gleyma enskum jólakökum, handgerðu konfekti og marsipangrísum. Þeir sem vilja gefa eitthvað varanlegra ættu að hug- leiða gjafakörfur með olíum, kryddi og ediki sem gleðja viðtakandann langt fram eftir ári. 20% afsláttur á meðan birgðir endast! Metasys er áhrifaríkt fæðubótaefni sem hefur hjálpað þúsundum Íslendinga við að létta sig. Að auki er Metasys mjög heilnæmt og þykir auka orku og úthald. Þeir sem hafa náð bestum árangri á Metasys hafa bætt inn hæfi- legri hreyfingu og viðhaft skynsamlegt mataræði Kíktu inn á www.metasys.is Þú færð Metasys í heilsu- og lyfjaverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. 100% náttúrulegt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.