Fréttablaðið - 19.11.2009, Side 42
19. NÓVEMBER 2009 FIMMTUDAGUR
Sögur útgáfa lætur ekki nægja
að gefa út ævisögu Magnúsar
Eiríkssonar tónlistarmanns
fyrir jólin, heldur hefur hljóm-
sveitin Buff hljóðritað nýjar
útgáfur á nokkrum þekktustu
lögum hans.
„Við erum í skýjunum yfir út-
komunni. Þetta gekk svo vel að
við værum alveg til í að gera aðra
svona plötu,“ segir Hannes Frið-
bjarnarson, starfsmaður útgáfu-
fyrirtækisins Sögur og trommu-
leikari hljómsveitarinnar Buff. Auk
þess að gefa út starfssögu Jónas-
ar Kristjánssonar, fyrrverandi
ritstjóra, og ævisögu Magnúsar
Eiríkssonar tónlistarmanns fyrir
jólin kemur einnig út á vegum fyr-
irtækisins geisladiskurinn Reyndu
aftur, þar sem Buffið tekur mörg
af þekktustu lögum Magnúsar í
spánnýjum útgáfum.
Hannes segir hugmyndina
að disknum hafa fæðst í sumar.
„Tómas Hermannsson hjá Sögum,
sem ritaði ævisögu Magnúsar,
hafði oftsinnis viðrað þá hugmynd
við Magga að fá nokkrar ungar
hljómsveitir til að taka nýja vinkla
á lögin hans, en Maggi tók aldrei
sérstaklega vel í það. Svo spurði
Tómas mig hvort Buffið væri til
í verkefnið og ég sagði auðvitað
strax já. Maggi var líka hrifinn af
hugmyndinni. Ég fór í bíltúr með
honum til að ræða gerð plötunnar
og hann sagði okkur að gera bara
það sem okkur sýndist. Ef við vild-
um að hann syngi þá skyldum við
hringja í hann, en ef ekki þá skyld-
um við bara sleppa því. Þetta var
mjög fljótákveðið.“
Sjálfur syngur Magnús í nokkr-
um lögum á disknum. Hann-
es segir hafa verið erfitt að velja
lögin sem enduðu á disknum, enda
úr miklum fjölda frábærra laga að
velja. „Mikið til eru þetta okkar
eftirlætislög, en við ákváðum líka
að taka ekki lög á borð við Bragga-
blús því það hefur verið gert of oft.
Við erum auðvitað miklir aðdáend-
ur Magga frá blautu barnsbeini,
eins og flestir íslenskir tónlistar-
menn,“ segir Hannes.
Verandi starfmaður útgáfu-
fyrirtækisins hafði Hannes lesið
ævisögu Magnúsar þegar upp-
tökur á Reyndu aftur stóðu yfir í
haust. „Í stúdíóinu, sem við bjugg-
um til heima hjá Bergi bassaleik-
ara, var ég sífellt að segja sögur úr
bókinni, sögurnar á bak við lögin
og slíkt, til að koma mönnum í rétt-
an fíling.
Þetta var stórskemmtilegt, og
Magnús sjálfur hafði líka mjög
gaman af þessu,“ segir Hannes.
Aðdáendur Magnúsar
frá blautu barnsbeini
Umtalaðasta ævisagan vestanhafs um þessar mundir
er bók fyrrverandi varaforsetaframbjóðandans Söruh
Palin, Going Rogue: An American Life, sem út kom
síðastliðinn þriðjudag.
Upphaflega átti bókin að koma út næsta vor, en
útgáfudeginum var flýtt. Útgáfufyrirtækið virð-
ist ekki draga í efa að bókin komi til með að selj-
ast vel, en fyrsta upplag bókarinnar er ein og hálf
milljón eintaka.
Sögur sem lekið hafa út í aðdraganda útgáfu bók-
arinnar snúast langflestar um atburði sem áttu sér
stað þegar Palin var varaforsetaefni repúblikana,
en John McCain forsetaefni. Palin segir að gríðar-
leg spenna hafi ríkt milli stuðningsmanna sinna og
stuðningshóps McCains. Þá viðurkennir hún að sér
hafi verið meinað að halda ræðu á kosninganótt þegar
ljóst var orðið að kosningabaráttan hefði tapast.
Þá talar Palin um áfallið sem hún varð fyrir
þegar hún uppgötvaði að Bristol, sautján ára dóttir
hennar, var barnshafandi. Hún segist ekki hafa vitað
að Bristol stundaði kynlíf fyrr en hún fékk hinar af-
drifaríku fréttir.
Einn vinsælasti spjallþáttastjórnandi Bandaríkj-
anna, hinn kaldhæðni David Letterman, hefur síðast-
liðnar vikur haft sem fastan lið í þáttum sínum að
benda á hluti sem eru skemmtilegri en að lesa ævi-
sögu Palin. Að drekka
hland og að verða fyrir
bíl hafa meðal ann-
ars komist þar á
blað.
Palin lætur allt flakka
Bók Palin er
umtalaðasta ævi-
sagan vestanhafs.
● SYSTIR CASTROS NJÓSNAÐI FYRIR BANDARÍKIN Juanita Castro,
systir kúbverska leiðtogans Fídels Castro, upplýsir í nýrri ævisögu sinni að hún hafi
njósnað um bróður sinn fyrir bandarísku leyniþjónustuna CIA.
Í bókinni, sem heitir Fidel y Raul, mis hermanos. La historia secreta (Fidel og
Raul, bræður mínir. Sagan sem aldrei var sögð), segist Juanita hafa njósnað fyrir
CIA á árunum 1961 til 1964, en þá flúði hún og fékk hæli í Bandaríkjunum. Í upp-
hafi hafi hún verið hlynnt byltingu bróður síns, en misst trúna á henni þegar hann
lét myrða andstæðinga sína í stórum stíl og sigldi hraðbyri inn í kommúnismann.
Juanita hefur ekki talað við bræður sína í fjörutíu ár.
Hannes Friðbjarnarson, trommari Buffsins, segir það mikinn heiður að hafa fengið
tækifæri til að hljóðrita lög Magnúsar Eiríkssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmaður auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is s. 512 5462